Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1955, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1955, Side 11
athöfn er fram fór í kirkju hinna 12 postula. Föstudagsmessan var því lesin þar. Laugardagurinn var helgaður þökk fyrir gæzku Guðs, og góðum framtið- aráformum. Prestarnir, sem létu vígja sig Guði, hétu opinberlega dyggri þjón- ustu. Og þar sem olívuuppskeran var i december urðu laugardagar imbruviku decembermánaðar helztu prestvígslu- dagarnir, en hendur prestanna eru smurðar með olíu. Þessi athöfn fór fram í aðalkirkju kristninnar, Basilicu heilags Péturs postula. Laugardagshátíðin varð vaka, sem hófst snemma kvölds og lauk að morgni sunnudags með messu. Vöku þessari svipaði til vöku laugardagsins helga,* nema að hún var undanfari skírnar, en Imbruvikan undanfari prestvígslu. Vaka laugardagsins helga leið við lestur úr heilagri ritningu og sálmasöng og voru lesnir 12 alllangir kaflar. Á sama hátt leið vaka Imbru- laugardagsins. Næst síðasti kaflinn er ávallt úr Daníel, um ungmennin þrjú, er syngja Guði dýrð í glóandi eldsofni. Prestarnir sem vígja á í lok vökunnar, eiga einnig að syngja Guði lof í starfi sinu í messunni. Við höfum nú fengið heildarmynd af Imbrudögunum, en skulum líta aðeins nánar á Imbrudaga septembermánaðar og heigihald þeirra. September þýðir sjöundi mánuður. Nú er hann að vísu níundi mánuður ársins, en áður fyr var marz sá fyrsti. í þessum mánuði voru þrjár stórhátíð- ir hjá Gyðingum: Nýársdagur þeirra, en þá hugleiddu þeir gjafir þær, sem þeim höfðu hlotnazt frá Guði á liðnu ári, Dagur Friðþægingarinnar, þegar þeir gerðu yfirbót fyrir syndir sínar og færðu fórnir, og Hátíð Tjaldbúð- anna, en á henni fórnfærðu þeir frum- gróða víngarðanna. Á Hátíð Tjaldbúð- anna dvöldu þeir í tjöldum til að minna sig á dvölina í eyðimörkinni, þegar þeir enga víngarða áttu. Það eru þessi þrenns konar tilefni, sem tekin eru upp af kristninni, að vísu í nýu kristnu formi, á Imbrudögum septembermán- aðar. Á miðvikudeginum skulum við ferð- ast í anda til Marie Maggiore kirkj- unnar og hugleiða með þeim, sem þar eru allt hið góða, sem Guð hefur gert fyrir oss. Ef við lesum messutextann, finnum við víða áminningar um að * Laugardagsins fyrir páska. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 199 JIJI J1 MANNKYNIÐ er að komast af gelgjuskeiðinu á þroskaár. Ný viðhorf og reynsla er fyrir höndum. Og nú verður mannkyn- ið að fara að hugsa sjálfstætt, eins og unglingurinn sem kemst ó þroskaár. Afstaða þess er önn- ur en nokkuru sinni fyr. Alþýðan er ekki lengur barn, sem verður að láta hina reyndari og ráðsett- ari leiða sig. Hún verður nú að skilja hvaða leið henni er ætlað að fara, og hvers vegna hún verð- ur að velja þá leið. Framvindan hefur nú náð því marki, að al~ menningur verður nú sjálfur að leita sannleikans, án leiðsögu annarra. Hann verður að læra að trevsta á eigin dómgreind til þess að haldið sé i óttina að mark- miði mannkynsins. Ef einstökum mönnum á að líðast að hneppa lífið í fjötra og segja öðrum fyrir hvernig þeir eiga að hugsa og breyta, þá endar það með því að alþýðan missir hæfileikann til að hugsa og taka sínar ókvarðanir. Þá er allri framvindu lokið, því að alþýðan getur ekki þroskast, ef henni er bannað að hugsa sjálfstætt og draga ályktanir af hugsun sinni. Framvindan er ómótstæðilegt afl, hún knýr lífið til þess að sækja fram og leita hærra og hærra. Mannkvnið verður því að ganga fram úr þeim snorum, sem það hefur áður staðið í og af- neita því, sem var. Það verður að losa sig við ófrelsi aldanna. Og til þess þarf hver maður að leita hið innra með sjálfum sér þess styrks sem hann þarfnast. Það er fvrsta sporið til þess að finna guðdóminn í sjálfum sér, en það er lokatakmark mann- lífsins á þessari jörð. (Paul Brunton). QE>5>*>‘S>S>S>í>«>«>«>«>«>«><5>*><S>ff-5>e><S>S><®>«>«>«><5>ff*S>«><5>«><S>«><5>S><B>S>«S minnast gæzku Guðs. Inngangsversið segir oss „að minnast eins og Jósef er hann fór frá Egyptalandi". f Graduale segir: „Hver er sem Drottinn, Guð vor, er situr hátt og lítur lógt, á himni og á jörðu, sem reisir hinn lítilmótlega úr duftinu og lyftir hinum snauða upp úr aurnum.“ Næsti kafli, sem lesinn er. talar um að ísraelslýð sé byggt landið fyrirheitna, og Esrea prestur les fyrir hann úr lögmálsbókinni um gjafir þær, er Guð hefur veitt þeim. Og guðspjallið er sagan um drenginn, sem er losaður við illan anda. Hún minnir oss á hvern - ig Jesú hefur frelsað mannkynið undan hinu illa með þjáningum sínum og dauða. Á föstudaginn höldum við svo döpur í huga og iðrumst synda vorra, til kirkju hinna tólf postula. í fyrsta kafl- anum, sem lesinn er úr riti Hósea spá- manns segir: „Snú þú aftur, fsrael, til Drottins, Guðs þins, því að þú steyptist fyrir misgjörð þína“. Og í Graduale er lesið úr 89. sálmi: ,Enú þú aftur Drott- inn, og aumkvast yfir þjóna þína. Drottinn, þú hefur verið athvarf vort frá kyni til kyns.“ Og guðspjallið set- ur okkur fyrir sjónir hinn iðrandi syndara, Maríu frá Magdölum, er hún þvær fætur lausnarans með tárum sín- um. Við setjum fórnargjafirnar á altarið og biðjum yfir þeim: „Drottinn, vér biðjum þig, megi fórn föstu vorrar vera þér þóknanieg, sem yfirbót fyrir syndir vorar, og gjöra oss verðug náðar þinnar.“ Á laugardeginum höldum við svo til Péturskirkjunnar, full þakklætis til Guðs. Og í inngangsversinu segjum við: „Komum, fögnum fyrir Drottni, látum gleðióp gjalla fyrir skapara vor- um.“ Við heyrum Móse kenna lýðnum, hvernig halda skuli viku föstu: „Þér skulið búa í laufskálum.... allir inn- fæddir menn í ísrael skulu þá búa i iaufskálum." Sakaría spámaður segir okkur, að „Fastan í hinum tíunda mán- uði muni verða húsi Juda tii fagnað- ar og gleði, og að unaðslegum hátíðis- dögum.“ Og Daníel hefur utv fyrir okkur lofsöng ungmennanna þriggja: „Lofaður sért þú, Drottinn, Guð feðra vorra, og vegsamaður og tign- aður um aldir alda.“ ' 7 <•

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.