Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1955, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1955, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 203 H rossakjötsát í HEIÐNI höfðu menn miklar mæt- ur á hrossakjöti, eins og sést á því, að það var notað í öllum blót- veizlum, en blótveizlurnar voru fórnarhátíðir heiðinna manna. Það var því eðlilegt að kristnin vildi útrýma öllu því, er stóð í sambandi við blótveizlurnar. Þó þótti það ekki ráðlegt þegar í upphafi. Þor- geir Ljósvetningagoði sagði í hinni frægu ræðu sinni á Alþingi við siða skiftin: „Nú þykir mér það ráð, að vér létum eigi þá ráða, er mest vilja í gegn gangast, og miðlum svo mál á milli þeirra, að hvorir tveggja hafi nokkuð síns máls og höfum allir ein lög og einn sið, því það mun verða satt er vér slít- um í sundur lögum, að vér munum slíta og friðinn“. Og þær ívilnanir, er kristnir menn veittu þá heið- ingjum voru þær, að forn lög um barnaútburð skyldu haldast „og um hrossakjötsát, skyldu menn blóta á laun ef vildu, en varða fjörbaugsgarður, ef vottum kæmi við“. Þorgeir þorði ekki að ganga algjörlega í berhögg við hinn forna sið, „en síðar fám vetrum var sú heiðni afnumin sem önnur“, segir í íslendingabók. Síðan gekk kirkjuvaldið mjög ríkt eftir því að menn æti ekki hrossakjöt. Þegar hallæri gengu og menn urðu að leggja sér til munns skóbætur, hrafna og refi, þá máttu menn alls ekki eta hrossakjöt, og lágu hinar þyngstu refsingar við. En hver maður er frekur til fjörs- ins og fóru sumir ekki að þessu, þegar um lífið var að tefla, og fór hrossakjötsát að ágerast eftir að hinn kaþólska sið leið. Þó vilja yfirvöldin halda dauðahaldi í bannið. Á prestastefnu á Alþingi hinn 12. júlí 1759 var þetta mál til um- ræðu og var þar samþykkt eftir- farandi ályktun. Undir hana skrif- uðu þeir Magnús amtmaður Gísla- son, Finnur Jónsson biskup og 11 prestar: Hrossakjötsát hefir frá alda öðli trúarbragðabóta verið álitið hneiksl- anlegt, og þess vegna nú, þá trúarbrögð vor eru í blóma, álíst það viðbjóðslegt nema í hæstu lífsnauðsyn, þá mönn- um er leyfilegt að nota allt hvað nátt- úran ei hefir skaða af og þeir með frjálsu mega. Og þar góður guð hefir frelsað landið frá hallæri, þá álíst hrossakjötsát bæði ólíðanlegt og straff- verðugt. En svo enginn af þeim, sem sig þar eftir hafa lagt og sætan smekk á fengið, kunni að afsaka sig með þekk- ingarleysi, að slíkt kjöt er í vorrar kirkju lögum fyrirboðið, þá ber prest- unum að undirrétta þeim, er þeir verða varir við að slíks neyta, að sama sé óhæfa í vorri kristilegu kirkju, og Ieggi þeir það ei af, þá megi vænta straffs, fyrst með opinberri áminningu í safnaðarins viðurvist, þar næst, vetði þeim framhald hrossakjötsátsins yfir- bevísað, þá straffist þeir ei einasta með opinberri áminningu, heldur með gapa- stokki í alls safnaðarins þá fjölmenn- astur er hans viðurvist. En hjálpi ei þessi viðleitni þá tilsegist verðslegu yfirvaldi til straff eftir Friðriks III Forordning af 3. maí 1650“. ----0----- Tilskipun Friðriks konungs III. sem hér er vitnað til, var á þessa leið: Þar sem Vér höfum náðarsam- legast sannfrétt, að nokkrir for- hertir og harðsvíraðir menn á Voru landi íslandi dirfist á óforsvaran- legan hátt að hirða lítt eða ekki um áminningar prestanna og kirkjuag- ann, þá biðjum Vér sýslumennina að refsa rækilega þeim mönnum, er gera sig seka um þetta, öðrum til viðvörunar. * I staðinn fyrir aga Eftir Walter Wilson SÁLFRÆÐINGAR hafa að und- anförnu verið að bítast út af sínum eigin kenningum, einkum um barnasálarfræði. Orsökin til þess er aukin afbrot barna og unglinga á undanförnum árum, og að foreldrar hafi misst tök á börnum sínum. Foreldrana geta þeir ekki dæmt hart, án þess að hitta sjálfa sig, því að foreldrar hafa einmitt reynt að fylgja kenningum sálar- fræðinganna um barnauppeldi, vegna þess að þeir trúðu þvi að þetta væri hin eina rétta leið. Sálfræðingarnir hafa hamazt gegn heimilisaganum. En nú eru þeir orðnir hræddir við afleið- ingarnar og í útvarpi bað einn þeirra menn að gefa heilræði um hvað ætti að koma í staðinn fyrir hann. Það ætti ekki að vera mikill vandi að finna hvað ætti „að koma í staðinn". Það hlýtur fyrst og fremst að vera kærlcikur, ekki aðeins kærleikur til barn- anna, heldur gagnkvæmur kær- leikur allra á heimilinu. Hann leiðir af sér virðingu — virð- ingu barna fyrir foreldrum og virðingu foreldra fyrir börnum. Kærleikurinn skapar gagnkvæmt traust. Börnin finna að foreldr- arnir bera umhyggju fyrir vel- ferð þeirra og fyrir það skilja þau sjálf hvað rétt og rangt er, hvað þau mega gera og hvað þau mega ekki gera. Og þá verður heimilið sannkallað heimili — ekki aðeins staður þar sem fólk borðar og sefur, heldur sá staður, sem mönnum er kærastur og þar sem þeir vilja helzt vera. Skyldi þessi ályktun prestastefn- unnar á Þingvöllum fyrir rúmum 200 árum, nokkurn tíma hafa venð numin úr gildi?

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.