Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1955, Blaðsíða 4
432
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Hansahúsin á Bryggjunni.
(Ljósm. Vigfús Sigurgeirsson).
blóm, minjagripir og ýmislegt ann-
að.
Þarna vék sér að mér maður og
slóst óbeðinn í fylgd með mér.
Hann var mjög skrafhreyfinn.
Sagði hann mér margt frá spreng-
ingunni miklu, sem varð í höfninni
20. apríl 1944. Þá hefði komið svo
mikil flóðalda, að skipin hentust
upp á hafnarbakkana, en 25 menn
fórust í húsum „Bergenska“ er þau
hrundu. Þetta var snemma morg-
uns og ekki fleiri komnir, en mann-
tjón mundi hafa orðið miklu meira
ef þetta hefði skeð um miðjan dag.
„En nú ætlar félagið að byggja sér
stórhýsi þarna rétt hjá „Norden-
fjeldske“-húsinu,“ sagði hann og
benti mér á stórt hvítt hús út með
voginum. Stórkostlegar skemmdir
hefði orðið á borgarhverfinu í
Norðnesi og víða hefði varla verið
faert um götur fyrir glerbrotum,
því að allar rúður í nánd við vog-
inrr brotnuðu. Hákonarhöllin
hrundi svo, að ekki stóð eftir nema
útveggir, en þar hefði áður verið
veglegasti samkomustaður borgar-
innar, sagði hann. Lét hann dæluna
ganga stöðugt og vissi ég ekki
hvort hann gerði það af einskærri
umhyggju fyrir framandi manni,
að fræða hann sem mest, eða hann
ætlaðist til að hafa eitthvað upp
úr krafsinu. Og sem ég er að velta
þessu fyrir mér, tekur hann allt í
einu á rás og hverfur inn í mann-
fjöldann á götunni.
Ég gekk út Bryggjuna. Þetta var
áður kölluð Þýzkabryggja, en nú
hafa borgarbúar breytt nafninu og
kalla aðeins Bryggjuna. Er það þó
ekki bryggja í venjulegum skiln-
ingi, heldur breið uppfylling og
steinlögð, framan við gömlu
„Hansa“-húsin, sem stinga háum
stöfnum fram að götu. Þau eru nú
miklu færri en áður var og aðeins
þau stærstu eftir. Hvergi gat ég
séð bíl forsetans, svo ég helt að
farið hefði verið út að Hákonar-
höll. Gekk ég því þangað, og greip
í tómt. Rosenkranzturninn stendur
lítt haggaður og múrarnir, þótt
nokkuð hafi molnað þar úr, en
Líkneskja Holberg's
á torginu
• » * «