Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1955, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1955, Page 8
r »36 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Legstaður Griegs-hjónanna í klettinum hurð. Á hana stendur letrað með einföldum stöfum: Edvard Nina Grieg. DVÖLIN í BJÖRGVIN Þær tvær nætur, sem dvalizt var í Björgvin, var gist í Hotel Bristol, sem er mikið og glæsilegt hús í miðri borginni. Fyrra kvöldið var forsetahjón- unum og fylgdarliði boðið í Þjóð- lega . leikhúsið (Den Nationale Scene). Stendur það skammt frá gistihúsinu. Þar var sýnd „Villi- öndin“ eftir Ibsen. Seinna kvöldið var boðið á hátíðarhljómleika í Hljómleikahöllinni (Konsertpalé- et). Hver maður, sem til Björgvinjar kemur, verður að fara upp á Flöj- en. Það er 320 metra hátt fjall í jaðri borgarinnar. Þangað er farið upp í rafknúðum vagni, sem renn- ur á tannbraut og er það um 8 mín. ferðalag. Sumum ókunnugum þyk- ir þetta bæði bratt og hátt, en þeim, sem hafa farið upp í gegnum fjallið hjá Sunnudalseyri, finnst þetta ekki mikið. Uppi á fjallinu eru veitingaskálar og þar var snæddur miðdegisverður seinni daginn. Af fjallinu er dýrleg út- sýn yfir borgina í góðu veðri. Fyrir þá, sem standa stutt við, er nauð- synlegt að fara upp á Flöjen. Þess má að lokum geta hér til gamans, að meðan vér vorum í Björgvin var þar í kvikmyndahúsi sýnd aukamynd frá heimsókn ís- lenzku blaðamannanna í Ósló, þá fyrir hálfum mánuði. Var þarna komin kvikmyndin sem tekin var af okkur þegar við fórum að skoða nýbyggingar höfuðborgarinnar í Lambertseter. Árni Óla. Korkur KORKURINN er börkur af sérstakri eikartegund, sem á latínu nefnist „Quercus suber“. Tré þetta vex aðal- lega í Portúgal, á Spáni og í Algier. Það verður um 40—60 fet á hæð, og á Pyreneaskaga eru heilir skógar af því. Þessi þykki börkur hlífir trjánum bæði við hita og kulda, eigi aðeins stofnun- um, heldur einnig greinum og rótum. Hann varnar of mikilli útgufun, og hann ver ræturnar fyrir vatnsaga. Meðan trén eru ung er þunn húð utan á þeim, en er þau fara að vaxa, fer að myndast korklag milli þessarar húðar og hins uppvaxandi stofns. En er frá líður flagnar húðin utan af og korkurinn verður ber eftir. Hann þykknar með hverju ári og þegar hann hefur náð ákveðinni þykkt, fer annað korklag að myndast þar undir, og flagn -ar þá fyrra korklagið af trénu. Þegar trén eru orðin um fimmtán ára gömul, er óhætt að fara að flá korkinn af þeim, og síðan má flá þau á 8—10 ára fresti, því að þá er komið nýtt korklag hæfilega þykkt. Það þarf sérstakt lag til þess að flá korkinn af trjánum, en þeir sem eru orðnir leiknir í því, geta svift stórum korkfeldum af trjánum í einu. Þessum feldum er svo hlaðið í hauga og látnir þorna þar. Síðan er korkurinn soðinn í vatni í nokkrar mínútur og við það verður hann betri og seigari. Það er venjulega aðferðin, en ýmsar aðrar aðferðir hafa menn til þess að gera korkinn mjúkan og seigan. Annars skiftir það mestu máli um gæði korksins hvernig veðr- átta er þar sem hann vex, og hve gömul trén eru. Beztur er korkurinn þar sem trén vaxa upp við mestan hita. Korkurinn er til margra hluta nyt- samlegur, og á sumum sviðum getur ekkert annað efni komið í 'stað hans. Hann fúnar ekki, hann er ákaflega léttur en þó sterkur, hann einangrar vel fyrir hita og kulda og hljóð berast trauðla í gegnum hann. Vegna þessara eiginleika er hann notaður á óteljandi marga vegu og i margs konar tilgangi. Hann er notaður í tappa, í flotholt á veiðinet, í flothylki og björgunartæki, í skósóla, til hitaeinangrunar og hljóð- einangrunar, til þéttunar í alls konar leiðslum og lokum á niðursuðudósum; hann er notaður sem gólfdúkur og til þéttingar á samskeytum. Þannig mætti lengi telja.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.