Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1955, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1955, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 437 ÞBTTA GERÐIST I JÚLÍ FORSETAHJÓNIN, herra Ásgeir Ásgeirsson og Dóra Þórhalls- dóttir fóru í opinberar heimsóknir viða um land í þessum mánuði. Fyrst var farið til Vestmanneya og siðan norður og ferðast um Þing- eyarsýslur. Seinast var farið til Ákraness. Móttökur voru alls staðar hinar virðulegustu og hjartanleg- ustu. Eisenhower forseti Bandaríkjanna kom við á Keflavíkurflugvelli á leið sinni til Genf. Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, Ólafur Thors forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra og Eysteinn Jónsson fjármáiaráðherra, tóku á móti honum á flugvellinum. Þar dvaldist hann tvær stundir og snæddi hádegisverð í boði ríkis- stjórnarinnar. Með Eisenhower for- seta voru kona hans og sonur. VEÐRÁTTAN í þessum mánuði var í tvennskonar ham. Norðan og austan lands voru sífelld blíðviðri, þurkar og hitar svo miklir að óvenjulegt má kalla. Höfðu bændur víðast hvar náð inn allri töðu sinni með beztu verkun fyrir mánaða- mót. En sunnan lands og vestan voru sífelldir óþurrkar og úrkomur og náð- ist þar hvergi þurrt hey í hlöðu. Eigi var heldur hægt að nota súgþurkun, vegna þess að taðan var alltaf renn- andi blaut, en sumir fylltu súrheys- gryfjur sínar, þótt þær séu aðallega ætlaðar hánni. Ekki komu votheys- turnarnir að notum, vegna þess að grasið var svo blautt og þungt, að ekki var hægt að blása því upp í turn-. ana. Túnin varð að slá vegna þess að þau voru úr sér sprottin. Þar hraktist svo taðan, maðkaði sums staðar. Voru því heyskaparhorfur hinar verstu. Óþurkasvæðið náði frá Mýrdalssandi vestur um til Húnavatnssýslu. AFLABRÖGÐ Mikið kapp hefir verið lagt á fiski- leit um þessar mundir. Togarinn Eisenhower forseti, kona hans og sonur Harðbakur leitaði karfamiða fyrir Norðurlandi, en togarinn Jón Þorláks- son vestur í hafi. Fyrir norðan bar leitin engan árangur, en vestur í hafi, nokkuð vestur af Jónsmiðum, fundust ný karfamið og fengu fjórir togarar þar fullfermi á fáum dögum. Varð- skipið Ægir var sent til að leita síld- ar fyrir Norðurlandi og leiðbeina veiðibátunum. Síldveiðarnar námu um 148 þús. tunnum og málum í mánaðarlok og er það svipað aflamagn og á sama tíma í fyrra, en um 8 milj. kr. meira verðmæti vegna þess hve mikið hefir verið saltað. BÍLSLYS Vörubíll valt út af veginum í Pat- reksfirði og eyðilagðist. Bifreiðarstjór- inn meiddist mikið (5.) Jeppabíl hvolfdi á Barðaströnd, og var hann fullur af fólki. Bílstjórinn og farþegi meiddust mikið og 63 ára gömul kona, Ólöf Guðmundsdóttir frá Hvammi, beið bana (15.) Bíl hvolfdi skammt fyrir ofan Kambabrún. Var einn maður í honum og höfuðkúpubrotnaði hann og var fluttur í Landspítalann (20.) Árekstur varð á Keflavíkurvegi milli vörubils og sérleyfisbíls. — Skemmdist hinn síðarnefndi talsvert, en farþegar sluppu svo að segja ó- meiddir (22.) Annars varð óvenjumikið um bíla- árekstra i Reykjavík í þessum mán- uði, og margir bílstjórar voru teknir fastir vegna ölvunar. AÐRAR SLYSFARIR Vélbáturinn Ársæll frá Patreksfirði sökk i fiskiróðri. Strandferðaskipið Skjaldbreið bjargaði mönnunum (L) Mannýgt naut réðist á Þórð bónda á Litla Fljóti í Biskupstungum og meiddi hann talsvert (5.) Bændurnir í Fljótstungu í Hvítár- síðu, Bergþór Jónsson og Hjörtur Jó- hannesson tengdasonur hans, fóru til silungsveiða að Úlfsvatni á Tvídægru, en drukknuðu báðir í vatninu (13.) Báti með fjórum veiðimönnum hvolfdi á Þingvallavatni. Mennirnir náðu í bátinn, en einn þeirra Gylfi Kristinsson (Markússonar kaupmanns í Reykjavík), var vel syndur og ætlaði að synda til lands. Á leiðinni mun hann hafa fengið stjarfa, vegna þess hve vatnið var kalt og þar drukkn- aði hann. Hinum þremur var bjargað, aðframkomnum (16.) Ungur stúdent, Hólmsteinn Valdi- marsson frá Steintúni í Lýtingsstaða- hreppi, ætlaði að synda yfir Jökulsá eystri í Skagafirði, en drukknaði (16.) Ung stúlka á Tjömesi, Hulda Jó- hannesdóttir, féll af rakstrarvél, við- beinsbrotnaði og marðist allmikið (26.) EUfcfu ára drengur, Þorsteinn Jóns-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.