Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1955, Síða 10
558
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Fulltrúar á fundi
samgöng-umáía
□efndar Norður-
landaráðs
Kolbeinsstaðahreppi. Brann þar nokk-
að af heyi og súgþurrkunartæki (20.)
Flutningapramma með tveimur jarð-
ýtum, sem áttu að fara að Ögri,
hvolfdi á ísafjarðardjúpi og sukku ýt-
umar þar niður (24.)
Björgunarflugvél frá varnarliðinu
hiekktist á i sundunum hjá Reykjavík,
en var þó bjargað lítt skemmdri (27.)
Tveir menn slösuðust í vöruskemmu
Eimskipafélagsins við það að hlaði af
kornpokum féll og urðu þeir und-
ir (30.)
Eldur kom upp í bílasmiðju við
Vatnsnesveg í Keflavík. Varð fljótt
slökktur, en olli þó talsverðu tjóni
(30.)
ÍÞRÓTTIR
íþróttaþing ÍSÍ var háð að Hlégarði
í Mosfellssveit. Benedikt G. Waage var
enn kosinn forseti sambandsins (10.)
Knattspyrnufélag Reykjavíkur varð
íslandsmeistari þessa árs i ^knatt-
spyrnu (13.)
í bæakeppni í knattspyrnu sigraði
Akranes Reykvíkinga (27.)
Argentínski skákmeistarinn Pilnik
kom hingað til að tefla við íslenzka
skákmenn. Fyrsta kvöldið tefldi hann
fjölskák á 52 borðum, vann 23, gerði
15 jafntefli og tapaði 14. — Sama
kvöldið tefldi Ingi R. Jóhannesson
fjölskák á 20 borðum, vann 17 og gerði
3 jafntefli (30.)
MANNALAT
Sigurjón Jónsson fv. héraðslæknir
á Dalvík (d. 30. ág.)
1. Frú Þóra Magnúsdóttir, Miðseli,
Reykjavík.
3. Hörður Kristinsson, bílstjóri, Rvík.
4. Guðmundur Þorbjörnsson múrara-
meistari frá Reyðarfirði.
4. Frú Sigríður Línberg, Reykjavík.
Grímsárfoss. —
Hviti hringurinn
sýnir hvar stöðvar-
húsið verður. —
Svarta örin sýnir
hvar stíflan verður
gerð.