Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1955, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
561
Reykjavík. Alls höfðu borizt ljóð frá
18 höfundum (16.)
Prófessor Einar Haugen kom hingað
til stuttrar dvalar. Hann er prófessor
í norrænum fræðum við háskólann í
Wisconsin í Bandaríkjunum (16.)
Jóhann Frímann hefir verið settur
skólastjóri Gagnfræðaskólans á Akur-
eyri (16.)
Sendiherra Noregs, hr. Torger And-
erssen-Ryst, hefir verið hækkaður í
tign og er nú „ambassador" (16.)
Nýtt útgáfufélag, Almenna bókafé-
lagið, var stofnað og hefur allsherjar
bókaútgáfu á þessu ári (16.)
Georg Means, aðalritari Rotary-fé-
laganna, kom í kynnisför til lands-
ins (17.)
Dr. Kristinn Guðmundsson utanrík-
isráðherra, Hermann Jónasson alþm. og
Einar Ingimundarson alþm. fóru til
New York að sitja allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna (20.)
Kaj A. Svanholm, danskur maður í
Brazilíu, sendi Náttúrugripasafninu að
gjöf hami af ýmsum þarlendum dýr-
um. Ennfremur fékk safnið bókagjöf
frá Mr. James Whittaker í Lond-
on (20.)
Verkamennirnir á Akureyri, sem
fóru til Grænlands, komu heim aft-
ur (20.)
Milliþinganefnd Norðurlandaráðs
kom saman í Reykjavík til að ræða
um bættar samgöngur milli landanna.
Ekki var loftferðasamningurinn rædd-
ur þar (22. og 23.)
Ólafur Þ. Kristjánsson var settur
skólastjóri Flensborgarskólans í Hafn-
arfirði (25.)
Henrik Seyffarth, norskur læknir,
kom hingað og hélt fyrirlestra um or-
sakir ofþreytu (27.)
Gunnar Bjarnason var skipaður
skólastjóri Vélstjóraskólans í Reykja-
vik (27.)
Dr. Kristinn Guðmundsson utanrík-
isráðherra, tók við formennsku í Norð-
ur Atlantshafsráðinu (27.)
Hanna Friðriksdóttir framkvæmda-
stjóra Sigurbjörnssonar í Reykjavík,
lauk einmenningsflugprófi. Hún er 19
ára (27.)
Heilbrigðismálaráðherra Ingólfur
Jónsson, skipaði nefnd til að gera til-
lögur um framtíðarskipan lyfjafræða-
kennslu (28.)
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga fékk
að gjöf bréf og handrit Magnúss Jóns-
sonar, gamals Skagfirðings, er andaðist
vestan hafs. Flutti Árni G. Eylands
stjórnarráðsfulltr. safnið hingað heim
(28.)
Varnarliðið hefir afhent Flugbjörg-
unarsveitinni tvo snjóbíla að gjöf (29.)
Ólafur Lárusson prófessor hefir ver-
ið kjörinn heiðursdoktor í lögum við
háskólann í Helsinki (30.)
ÝMISLEGT
Járnprammi sást á reki vestur af
Vestmanneyum og var talinn hættu-
legur siglingum. Vb. Erlingur IV. fór
þá á staðixm, náði prammanum og dró
til hafnar. Þótti það góð „veiði“. —
Pramminn er 20 m á lengd, 7 m á
breidd og mjög verðmætur, en enginn
veit hvaðan hann er kominn (1.)
Verðlaun voru að vanda veitt fyrr
fegursta húsagarð í Reykjavík. Var
það að þessu sinni garður við Otrateig
6, eign hjónanna Þóru Magnúsdóttur
og Guðmundar Jónssonar lögreglu-
manns. Níu aðrir garðar fengu viður-
kenningu. En yfirleitt var garðagróður
nú með lélegra móti og eins hirðing
garða vegna inna sífelldu votviðra (2.)
Sendiherra Dana afhenti Slysavarna-
félagi íslands 10 þús. danskar krón-
ur að gjöf í viðurkenningarskyni fyrir
björgun danska mælingaskipsins
„Ternen", sem strandaði í Mávabót í
sumar. Þeir sem unnu að björguninni
fengu heiðursmerki (3.)
Lauk verkfalli verkakvenna í Kefla-
vík og á Akranesi (4.)
Vöxtur hljóp í Skaftá og er talinn
stafa af jarðhita undir Vatnajökli. —
Lagði megna brennisteinsfýlu af vatn-
inu og barst hún alla leið norður um
Þingeyar- og Eyjafjarðarsýslu (7.)
Gengu í gildi reglur um akstur bif-
hjóla. Fá nú ekki ökuleyfi þeir, sem
yngri eru en 16 ára (9.)
Svertingjakvartett, Delta Rhytm
Boys, kom hingað og söng mörgum
sinnum (10.)
Tilraunir voru gerðar með síldar-
botnvörpu, svonefnda Larsensvörpu
(11.)
8540 nemendur í Reykjavík munu
sækja skyldunám í vetur (16.)
Laxveiði varð meiri í sumar en á
undanförnum árum (17.)
Það lá við að hjónaband þeirra færi
út um þúfur, vegna þess að Jón frændi
var á heimilin^. Hann hafði verið hjá
þeim í 10 ár, alltaf jafn önugur og
vanþakklátur. Að lokum dó hann.
Á leiðinni frá jarðarförinni sagði
maðurinn við konu sína:
— Elskan mín, ég verð að gera eina
játningu. Ef ég hefði ekki elskað þig
jafn heitt og ég geri, þá hefði ég fyrir
löngu rekið hann frænda þinn af heim-
ilinu.
Konan rak upp stór augu.
— Frænda minn! hrópaði hún. Ég
hef alltaf haldið að hann væri frændi
þinn!