Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1956, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1956, Blaðsíða 1
33. tbl. XXXI. árg. Sunnudagur 16. sept. 1956. Bjarni M. Gislason: Handrifin og norrœn samvinna BJARNI M. GISLASON rithöfundur er nýlega kominn heim til Dan- merkur úr rúmlega þriggja mánaða íyrirlestraferð um Noreg, Finn- land og Svíþjóð. Töluðu blöðin mikið um þessa för hans og bók hans um handritamálið, einkum í Noregi og Finnlandi. Þar tóku öll blöðin í þann strenginn, að ísland ætti að fá handritin aftur. Létu blöðin mikið yfir þekkingu Bjarna á norrænum málefnum og sagði t.d. „Huf udstadsbladet" i Helsinki, að Bjarni muni vera einhver margfróðasti menningarfrömuður, sem Island hafi á að skipa á framandi grund. í ritgerð þeirri, sem hér fer á landa til handritamálsins. iJiIL ERU þeir menn, sem álíta norrænt samstarf gagnslaust eins og það nú er og telja það aðal- lega fólgið í orðagjálfri á skemmti- samkomum. Þó er alltaf verið að hamra á norrænni samvinnu og vináttu Norðurlandaþjóða. Er þá bent til þess hve skyldar þjóðirnar séu, þær eigi sameiginlega erfða- menningu, tungur þeirra sé af sömu rót o. s. frv. Þetta á þó ekki við um allar þær þjóðir, sem sjálfsagðar eru til að taka þátt í norrænni samvinnu. Finnar tala tungu, sem er alveg óskyld hinum Norðurlandamálun- um. Meðan Eistland var frjálst, kappkostaði það að efla gömul og ný menningarsambönd við Norður- lönd. Og í Suðurslésvík er danskt eftir ræðir Bjarni um afstöðu Norður- þjóðarbrot, sem örlögin hafa leikið svo grátt, að það hefir nær alveg glatað móðurmáli sínu, talar nú fremur þýzku en dönsku. En tví- mælalaust eiga íbúar Suðurslés- víkur og Eistlands samstöðu með Norðurlandaþjóðtmum. 1" ítum á sögu Þjóðverja. Þessi mikla þjóð, sem alið hefir einhverja mikilhæfustu gáfu- menn og snillinga heimsins, hefir um langt skeið treyst á valdið. Hún hefir treyst meira á sigur vopn- anna, en sigur mannsandans í friði. Saga hennar er keðja ótal sigra á vígvöllum — en þó hefir hún alltaf verið að tapa. Forsögu Norðurlanda svipar til þessa. Harðstjórn og valdbeiting eru einkenni hennar. Einvaldir konungar og hershöfðingjar unnu mikla sigra, en voru þó alltaf að tapa. En þá fyrst hefst sigursaga Norð- urlanda er fram koma menn eins og Grundtvig og Rasmus Kristian Rask í Danmörk, Vergeland og Ivar Aasen í Noregi, Snellmann og Olof Fraudendal í Finnlandi, Jón Sigurðsson á íslandi og Hammers- haimb í Færeyum. Þessir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.