Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1956, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1956, Síða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 525 hrökk skammt upp í skuldina við konungsfjárhirslu. Skildu þau þá hjónin, því að þau áttu ekki neitt hæli. Fór Úlfdís fótgangandi heim til foreldra sinna. En Finnur reið norður til Víðimýrar á fund Bene- dikts Vídalíns mágs síns og var með honum um hríð. Þaðan fór hann svo til Hóla á fund Gísla bróð- ur síns. Var það þá ætlan Finns að reyna að komast til Kaupmanna- hafnar og kæra dóminn yfir sér og freista þess að fá leiðrétting mála sinna, og varð það að ráði, eftir að hann hafði hitt mág sinn og bróður. Var þó ekki árennilegt að sigla, því að þá var hafinn ófrið- ur með Dönum og Englendingum. ¥ón Espólin var nú orðinn sýslu- " maður í Skagafjarðarsýslu og bjó í Viðvík. Nú var það einn morgun í áliðnum septembermán- uði, að gesti bar þar að garði. Voru þeir þar komnir Finnur sýslumað- ur og Gísli bróðir hans á Hólum, og með þeim Kristján launsonur Finns, þá unglingur. Erindi þeirra var að biðja Espó- lín um vegabréf handa Finni til Kaupmannahafnar, því að hann langaði til þess að komast utan með Hofsóss skipi, en enginn hafði viljað gefa honum vegabréf vestra. Var Finnur þá svo aðþrengdur, að Espólín aumkaðist yfir hann, og hét honum vegabréfi, þótt ekki væri það löglegt, þar sem hann hefði átt að hafa vegabréf úr Vest- uramti. Urðu þeir bræður harla glaðir við þetta og riðu þegar til Hofsóss að biðja um far. Þama fengu þeir skjótt góð er- indislok, en settust þá að drykkju og drukku fram í myrkur. Voru þeir þá báðir orðnir mjög ölvaðir. Vildi Finnur nú komast á stað og ríða heim að Viðvík til þess að taka vegabréfið og kveðja sýslumann. En Gísli vildi sitja lengur. Varð þeim þá mjög sundurorða bræðr- um. Finnur sat á hestbaki og lykt- aði deilunni þannig, að Gísli sló í hestinn undir honum og sagði honum að fara norður og niður. Þeir Finnur og sveinninn lögðu nú á stað og komu að Ártúnum. Þar bjó hreppstjórinn. Finnur var þá mjög illa haldinn af drykkjunni og svo máttlaus, að hann gat naum- ast setið á hestinum. Bað hann um að fá að hvíla sig í Ártúnum, en því var neitað. Riðu þeir þá suður yfir ána, og keyrði Finnur þá hest- inn sporum og reið sveininn af sér. Hvarf hann brátt út í nátt- myrkrið, en pilturinn komst að Gröf til Benjamíns prests Jóns- sonar og fekk þar gistingu um nótt- ina. Daginn eftir var farið að leita Finns og fannst hann þá dauður í Grafará. Hefir hann annað hvort villst í myrkrinu, eða snúið aftur í ölvímunni og ætlað til Hofsóss. Segir Espólín að svo hafi verið sagt, að líkið hefði verið „létt og óþrút- ið“, og er það bending um að Finn- ur hafi lengi lifað við þröngvan kost. Líkið átti fyrst að flytjast til Ártúna, en hreppstjóri neitaði harðlega að það væri borið í bæ sinn, og var þá farið með það til Hóla. Og þar var Finnur grafinn 3. október. Þannig lauk þá ævi hans. Er hér engu við að bæta nema því, sem Espólín segir um hann: „Litla hafði hann mannhylli af alþýðu, seldist sumt miður út en hann vann til, en það var skaplöstur hans, að hann sýndi stundum kænsku til að koma ágengni fram þar sem hann treysti sér, og varð þá berari í henni en sumir aðrir, gerðist og drykkju- gjarn og þá kvenhollur og ráðlítill, og varð svo ber. En margt var honum vel gefið“. Á. Ó. S—^3®®®cr^J! ♦-----------—« Mamma var að greiða sér og Siggi litli horfði á. — Ertu með hrokkið hár a höfðinu, mamma? spurði hann svo. — Nei, þetta eru bylgjur, elsk- an mín, svaraði mamma. Þá leit Siggi á pabba sinn, nauðsköllóttan, og sagði: —Hvað er þá á höfðinu á pabba — baðströnd? Mannsi litli fekk að fara í berjamó með mömmu og pabba. Um kvöldið þegar heim var komið, fekk hann berjaskyr með rjóma. Honum hafði verið kenn-t að þakka guði fyrir matinn í hvert sinn, og að lokinni máltíð spennti hann greipar og sagði: — Þakka þér guð fyrir rjóm- ann og skyrið. Berin tíndi ég sjálfur, — o — Stína hafði fengið að fara í kirkju og sá þar í fyrsta sinn prestinn í fullum skrúða. Þegar heim kom fór hún að segja frá: — Og hugsaðu þér, það er jólasveinn í kirkjunni. — o — Jónsi var ekki nema fjögurra ára gamall þegar mamma fór með hann 1 klrkju i fyrsta sinn. Hún hafði vaðið fyrir neðan sig og sagði honum éður, að það væri harðbannað að tala í kirkj- unni. Svo komu þau þangað og allt gekk vel þangað til prest- urinn steig í stólinn og byrjaði ræðu sína. Þá rauk Jónsi upp og kallaði: — Uss, manni, það ar harð- bannað að tala hér. — o — Bömin voru að leika jarðar- för, en allt í einu rís sá dauði upp og vill ráða nokkru um at- höfnina. Þá byrstir systir hans sig og segir: — Ef þú ert dauður, þá ertu dauður. Sá sem er dauður má bara hósta. *-----------------------------------«

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.