Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1956, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1956, Side 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 529 til hugar, að slík villimennska gæti átt sér stað á 20. öldinni. Margar langar nætur lá hann and- vaka. Og þegar hann blundaði hafði hann heyrt örvæntingaróp og grát inna herleiddu, og samvizkan nagaði hann. Svo rak hvað annað. Hann hafði verið skipaður í spellvirkja-her- aveit og sendur til Rússlands með henni. Þar höfðu ímyndanir hans um „paradís verkamanna" koll- varpast algjörlega. Hann sá að allt sem honum hafði verið kennt og hann trúað á, var lygi. — Sovjetþjóðirnar eru frjálsar og hamingjusamar! sagði hann og hló kuldalega. Hversu oft hafði eg ekki heyrt aðra segja þetta, og etið það upp eftir þeim sjálfur! Hvergi hafði hann orðið var við hamingju í þessu landi, hvergi 'relsi. Alls staðar voru úttaugaðir )g örvílnaðir vinnuþræiar. Það var ekki svo jnikið um frelsi að menn mætti velja sér atvinnu sjálfir. Og enginn mátti yfirgefa sinn vinnustað. Málfrelsi og prent- frelsi bannað. Jafnrétti! Hann var nú viss um að hvergi í heimi væri jafn mikill stéttamunur og í Rússlandi, og þar hefir lítil klíka líf allra annara í hendi sér. Þetta kalla áróðursmenn- irnir paradís verkamanna! En það er sannkallað helvíti verka- manna! — Þér eruð fræðari, og sem slík- ur lofsyngið þér stöðugt þetta istand, sagði ég. Hann kvaðst ekki eiga annars úrkosta. Það voru njósnarar á hæl- um hans eins og annara. Ef honum yrði það á að halla hálfu orði í ,ví, sem honum var boðið að segja, bá yrði honum stútað. Hann er í ílokknum og hefir svarið honum trúnaðareið. Hann yrði kallaður svikari og fengi miklu harðari út- reið heldur en venjulegur „þjóðar- óvinur". En hann vildi ekki deya. Hann vildi komast aftur til ins frjálsa heims, til þess að geta sagt öllum ungum ofstækismönnum frá því, að allt sem þeim hefði verið sagt og kennt um Rússland, væri lvgi. Á þann hátt ætlaði hann að reyna að bæta fyrir þau afglöp, sem hann hafði gert í fáfræði sinni. — En hvað segir þér þá um fræð- arann í gamla herfylkinu mínu, sagði eg. Hann var kennari við alþýðuskóla áður og því menntað- ur maður. Hann hefir líka séð hvernig allt er hér, en hann er alltaf jafn ákafur í áróðri sínum fyrir kommúnismann. Hann sagði að kommúnistum, sem komnir væri frá Eistlandi, eða cðrum ríkjum utan Rússlands, mætti skifta í tvo hópa. í öðrum hópnum eru þeir, sem trúa því statt og stöðugt að slíkt stjórnar- far verði heiminum til farsældar. En í hinum hópnum eru þeir, sem langar til að komast áfram, fá völd og geta sölsað undir sig eignir ann- ara og lifað á vinnu þeirra. Báðir þessir flokkar eru verstu óvinir mannkynsins, sagði hann. Sanntrúaðir kommúnistar eitra þjóðfélagið öfgafullum kenningum sínum, valda uppþotum, verkíöll- um og byltingum. Þeir eiga hvergi heima neima í geðveikraspítala. Hinir, sem ætla sér að lifa á öðr- um, eru glæpamenn, og þeir eiga hvergi heima nema í íangelsi. Þeir, sem kommúnisminn er hug- sjón, eru útskúfaðir úr sovjet, vegna þess að þeim er það alvara að vilja bæta kjör verkamanna, og þess vegna verða þeir að gagnrýna gerðir stjórnarinnar. I „hreinsun- unum“ innan flokksins hafa þeir líka flestir horfið, verið drepnir eða reknir í útlegð. En þeir, sem eru tryggir flokknum og hlýða stjórninni, í þeirri von að komast áfram, hafa betri kjör og eru rétt- haerri en almenningur. Þeim fyr- irgefst jafnvel þegar þeir ræna og myrða. Hann sagði að fræðarinn í fyrra herfylki mínu, væri af þessu sauða húsi. Með hjálp kommúnismans ætlaði hann sér að komast hærrí en hann hefði nokkuru sinni getað komizt sem skólakennari. Þess vegna er hann yfirvöldunum hlýð- inn í öllu. Hann mundi ekki svífast neins til þess að sýna að hann værj stjórninni trúr, mundi jafnvel láta skjóta landa sína sem þjóðféndur. Það eru ekki margir hermenn í þessum herbúðum fylgjandi stjórn- inni. Langflestir eru á móti henni. Það er heldur engin furða, því að enginn sem kynnzt hefir þræla- búðunum og sloppið þaðan með líísmarki, getur fylgt því þjóð- skipulagi, sem stendur að slíku og gerir allt landið að einum þræla- búðum. Það er óhugsanlegt að hægt sé að gera menn að umskift- ingum, dáleiða þá með slúðri svo að þeir gleymi öllu því sem þeir hafa séð og kynnzt. Hann sagði að vel gæti verið að fræðarinn í fyrra herfylki mínu hefði samvizkubit og óttaðist mála- gjöld fyrir þau morð, sem hann hefir á samvizkunni. Hann reym því með öllum ráðum að komast eftir hverjir geti orðið sér hættu- legir. Og hann hafi haft sérstaklega illan bifur á mér. Hann hefði hvað eftir annað talað um grunsemdir sínar gagnvart mér, er þeir urðu samferða frá flokksfundum, en hvorki honum né sporhundum hans virðist hafa tekizt að fá nein- ar sannanir gegn mér. Þess vegna hefði hann neytt herfylkisstjórann til þess að losa sig við mig og flytj- mig í annað herfylki. • Fræðarinn sagði að sér væri það mikii ánægja að eg hefði lent í sinu herfylki, og kvaðst vona að enginn misskilningur yrði meðal okkar. Við spjölluðum dálítið meira, og síðan kvaddi eg hann og fór.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.