Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1956, Page 16

Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1956, Page 16
«32 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS BRIDGE * D 8 V D 10 8 2 * A G 8 7 * D 10 6 A ÁK10 64 V 7 5 4 ♦ 10 6 2 * 7 5 AG532 V K 9 6 3 ♦ K 9 * A 9 8 • » » V A G ♦ D 5 4 3 + KG432 N V A S Suður gaf. Sagnir voru þessar: s V N A 1 hj. pass 2 t. pass 2 hj. pass 3 hj. pass Vestur sló út S 9 og A fekk þann slug á kóng. Svo tók hann slag á S A cg sló síðan út L 7, S lét láglauf og V fekk slaginn á kóng, en L 10 kom úr borði. V lét út láglauf og S fekk það á L 9. Nú sló hann út S G og hugð- ist fleygja L D í hann, en V trompaði með gosa, og borðið tók slaginn með H D. Ef hjarta kemur nú út, drepur V með ás og slær svo út laufi, sem A getur trompað. Spilarinn sló því út lágtígli og tók með T K, sló út tígli aftur en drap með gosa og hann stóð. Síðan kom T Á og í hann var fleygt L Á. — Nú kom hjarta og þann slag fékk V á ás. Hann sló út laufi, A trompaði, en S drap með hærra trompi. Nú tók S seinasta trompið af A, sló svo út spaða og trompaði í borði, og fekk svo seinasta slaginn á tromp, og hafði þar með unnið spilið. SA7IP34IKILL HRÚTUR — Hann heitir Kolur og er ættaður frá Bcssastöðum. Eigandi lians er Þórarinn Helgason frá Þykkvabæ í Landbroti, nú búsettur hér á Innnesjum. Þegar Kolur var lamb, fótbrotnaði ærin móðir hans og tók Þór- arinn að sér að lækna fótbrotið, en fekk hrútlambið í staðinn. Myndin var tekin í vor, áður en fé var sleppt á fjail og var Kolur þá tvævetur, og mesta metfé, eins og sjá má. — Nú eru göngur að hcfjast og menn bíða þess með eftirvæntingu að sjá fé sitt koma af ijalli og hvcrnig heimtur verða. Vonandi ski'ar Kolur sér og er nú bæði stærri og tígulegri en áður, eftir allt góðviðrið á fjöllum í sumar. (Ljósm. Gunnar Rúnar). SÉRA MAGNtS BERGSSON í Heydölum (faðir meistara Eiríks í Cambridge), var annálaður fyrir fjör og karlmennsku. Þótti hann og mjög góður klerkur, bæði góður ræðumað- ur og söngmaður mikill, og áhuga- samur um öll prestsverk. Lét hann t. d. aldrei dragast að skira börn, er hann frétti til fjölgunar í sókninni. Er til saga um það, að eitt sinn kom hann á bæ, þar sem nýfjölgað var, og vildi skira barnið, en bóndi færð- ist undan og bar því við, að ekkert væri til með kaffi. Lét prestur það gott heita og reið á annan bæ, þar sem eins var ástatt. Bóndi stóð úti, og ávarpaði prestur hann þegar: „Sæl- ir Björn minn! Má ég skíra hjá yður, þó ekki sé búið að steikja kleinurnar?" — (Breiðdæla). FYRSTI VEFSTÓLLINN kom í Rangárvallasýslu 1787 og var sendur af dönsku stjóminni. Vefstóll þessi lenti hjá Stefáni Bjamasyni bónda að Árbæ (sem var afi Guðmund- ar Brynjólfssonar á Keldum). Sá galli var á að vefstólnum fylgdi hvorkj vefjagrind né vefjaskeið eða annað smávegis. Stefán varð því að taka smið, og vefstólinn alfæran setti hann í alþiljað herbergi. Var svo stúlka fengin til að kenna aðferðina og ofið mikið fyrir marga. Vefstóll þessi tók ekki breiðari voð en 7% kvartil (90 sm) En eftir honum vom aðrir smíðaðir, sem tóku 9—10 kvartila breiða voð. Erfiðir hafa þeir orðið og líklega lak- ari voðin. Voru því hafðir mjórri síð- ar. (Saga Eyrarbakka III).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.