Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1957, Qupperneq 4
712
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Sendiráðherra
Norðmanna
afhendir forseta
íslands kirkju-
stólana í Bessa-
staðakirkju
ið að koma á fót fæðingarheimili (8.)
Hafnargerðinni á Akranesi er nu
lokið (8.)
Flugvöllur Húsavíkur, sem er 10 km
frá bænum, var vígður og takast nú
brátt fastar flugferðir þangað (13.)
Hvítárbrúin hjá Iðu var opnuð fyrir
umferð (15.)
Nýr vegur umhverfis Hafnarfjörð
hefir verið opnaður og á hann að létta
umferð til Suðurnesja af götum bæar-
ins (24)
Nýr bátur kom til Hornafjarðar, Sig-
urfari, smíðaður í Noregi (29)
Á árinu bættust fiskiskipaflotanum
40 ný skip, samtals um 1700 rúmlestii.
Kaupverð þeirra var um 40 millj. ísl.
króna (29.)
Komið hefir verið upp ljósaleiðbein-
ingum hjá vegunum um Mosfellsheiði,
Hellisheiði og til Krýsivíkur. Sýna þær
hvort vegirnir eru færir bílum eða
ófærir (29.)
Nýr vélbátur, Ágúst Guðmundsson,
kom til Voga og verður gerður út það-
an. Hann var smíðaður í Danmörk (31.)
MENN OG MÁLEFNI
Menntamálaráð gekkst fyrir Nonna-
sýningu í Rvík. Voru þar sýnd handrit,
bækur á fjölda tungumála, myndir o.
fl. sem séra Jón Sveinsson og ættingj-
ar hans höfðu átt (1.)
Stúdentar heldu 1. des. hátíðlegan
að vanda (1.)
Evrópuráðið heíir mælzt til þess, að
gata eða torg í Reykjavík verði kennt
við Evrópu (1.)
Stefán G. Björnsson hefir verið ráð-
inn framkvæmdastjóri Sjóvátrygging-
arfélags Islands (3.)
Lyfjafræðingafélag íslands átti 25
ára afmæli (5.)
Guðni Jónsson skólastjóri var skip-
aður prófessor í heimspekideild háskól-
ans (7.)
Stefán Pétursson fv. ritstjóri var
skipaður þjóðskjalavörður (7.)
Út er komin sjálfsævisaga Sveins
heit. Björnssonar forseta, og mun það
vafalítið verða talin merkasta bók
ársins.
Steingrimur Hermannsson verk-
fræðingur var skipaður forstjóri Rann-
sóknarráðs (7.)
Flugfélag íslands helt aðalfund sinn
Tekjur félagsins höfðu aukizt talsvert
á árinu, en þó varð 1 millj. kr. rekstr-
arhalli (8.)
Davíð Ólafsson var endurkjörinn
fiskimálastjóri (10.)
Kaupfélagið KRON átti 20 ára af-
mæli (11.)
Ósló gaf Reykjavík fagurt jólatré
að vanda og fylgdi ávarp frá Rolf
Stranger borgarstjóra. Tréð var reist
á Austurvelli (15.)
Þess var minnst, að 50 ár voru liðin
síðan Fræðslulögin voru sett (15.)
Guðmundur Vignir Jósepsson hefir
lokið flutningi prófmála við hæstarétt
og gerzt hæstaréttarmálaflutnings-
maður (18.)
Guðlaugur Hannesson gerlafræðing-
ur hjá Matvæla- og landbúnaðardeilt
SÞ fór til þess að stunda framhalds
nám í Bandaríkjunum um 18 mánaða
skeið (28.)
Kjartani Ólafssyni lækni hefir verið
veitt Keflavíkurhérað (28.)
Loftleiðir hafa fengið ný húsakynni
fyrir afgreiðslu sína í New York, í
nýu stórhýsi á alþjóðaflugvellinum,
þar sem 35 flugfélög fá bækistöðvar
(31.)
Janus Halldórsson var kosinn for-
maður Félags framreiðslumanna (31.)
LANDHELGISBROT
Flugbáturinn Rán fann tvo belgiska
togara að veiðum og kom varðskipið
Þór með þá til Reykjavíkur, þar sem
þeir voru sektaðir (8.)
Brezkur togari var tekinn í land-
helgi, fluttur til Seyðisfjarðar og sekt-
aður þar (17.)
ÝMISLEGT
Fiskiþingið samþykkti áskorun a
stjórn Fiskifélagsins að vekja áhuga á
fiskrækt og fiskklaki í sjó (7.)
Maður í Reykjavík, sem sviftur hafð)
verið ökuleyfi ævilangt, en tók ölvað-
ur bíl í leyfisleysi í Reykjavík og ók
um göturnar, var dæmdur í 3 mánaða
fangelsi (14.)
(Tölur í svigum merkja dagsetn-
ingar Morgunblaðsins, þar sem nán-
ari fregna er að leita).