Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1958, Síða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
391
Merkisdagar í ágúst
Bandadagur 1. ágúst
Svo segja gamlar veðráttuspár,
að sé regn á Bandadaginn, þá rigni
oftast samfleytt í 3 vikur.
2. ágúst
Þá var þjóðhátíðin haldin 1874
í tilefni af því að Kristján konung-
ur IX. kom til landsins og færði ís-
lendingum stjórnarskrá. Helzt það
síðan lengi við um land allt, að
þessi dagur væri talinn þjóðhátíð-
ardagur, og var þess minnzt með
ýmsum hætti. Verslunarmannafé-
lagið í Reykjavík tók daginn upp
á sína arma og hafði venjulega ein-
hver hátíðahöld, annað hvort í
Reykjavik eða í nágrenni bæarins.
Síðan 17. júní var gerður að þjóð-
hátíðardegi hefir þetta breytzt.
Hefir 2. ágúst fengið nafnið „Frí-
dagur verslunarmanna“. en þó
þarf „frídaginn11 ekki að bera upp
á þann dag, heldur er hann ákveð-
inn fyrsti mánudagur í ágúst, svo
að verslunarfólk fái 2% dag til um-
ráða. Er þetta nú kölluð „Verslun
armannahelgi", og er þá búðum
lokað frá hádegi á laugardag til
þriðjudagsmorguns. — Að þessu
sinni er Verslunarmannahelgin frá
2. ágúst til 4. ágúst.
Þess má geta hér, að fyrir tæp-
um 300 árum voru þessir dagar
lögskipaðir „frídagar“ Hinn 28.
apríl 1676 skipaði Kristján konung
-ur fimmti svo fyrir, að dagarnir
2., 3. og 4. ágúst þá um sumarið
skyldi vera almennir bænadagar á
íslandi „Guds retfærdige Vrede og
vore Synders velfortjente Straf at
afbede“ Á þessum bænadögum
var bannað að halda þing eða ver-
aldlegar samkomur, allar verald-
legar sýslanir bannaðar, og bann-
að að hafa áfengi um hönd eða
annað slíkt ósiðlæti, svo að bæna
dagarnir yrði haldnir í guðs ótta
og alvöru. — Árið eftir skipaði
konungur einnig svo fyrir, að dag-
arnir 1„ 2. og 3. ágúst skyldi vera
almennir bænadagar á íslandi.
16. sumarhelgin 10. ágúst
Almenn trú var það fyrrum á
Suðurlandsundirlendi, að þegar
óþurkasamt hefir verið um slátt-
inn, þá mundi birta upp um 16.
sumarhelgina, og verði þá þerri-
flæsa eða góður þurkur um viku-
tíma.
Nú er Laurentíusmessa þennan
sama dag og henni fylgir sá veðr-
áttuspádómur, að ef þá sé bjart
veður boði það oft hvassviðri og
viti á kaldan vetur. En ef þá er
þykkviðri, veit það á vætusaman
vetur.
Maríumessa fyrri 15. ágúst
Hún var haldin í tilefni af himna
för Maríu meyar. Ef sólskin er
þanrx dag, boðar það góðviðri eftir-
leiðis. En gangi þá með smáskúr-
um, boðar það votviðrí í 14 daga.
— Vera má að það hafi einhver
áhrif á þennan spádóm nú, að
tungl kviknar þá um nóttina.
Hundadagar enda
23 ágúst. Þá var eins og létti vf-
ir mönnum áður, allir crúðu því að
eitir hundadagana mundi koma
góð heyskapartíð.
Sól gengur í Jómfrúmerki
23. ágúst. „Hver sem undir því
merki er fæddur, er af Merkúríus-
ar náttúru, kaldur og þur, hefir
góða náttúru, skarpa siði og góða
skikkan, skarpa sýn, langt nef
litlar hendur; elskar andlega siðu
og er ráðhollur, forsjáll og réttlát-
ur. Honum má snúa til góðs og
ills; er forvitinn og lærdómsstinn-
ur, hugvitssamur í öllum uppáfinn
-ingum. Hans stærsta lukka kem-
ur eftir hans miðaldurstíð. Hann
mun deya undir Jómfrúmerki, og
lifi hann 3 ár, verður hann 80 ára“.
— Ef um konu er að ræða, þá verð-
ur hún „góð hjá góðum, verður
góður ráðgjafi, vill gjarnan syngja
og spila og nærir sig á sinni mennt-
un. Hún er lystugri á sumrin en
á vetrum. Menn elska hana mikið.
og með tveimur mönnum kemst
hún til lukku“.
Bartholomeusmessa
24. ágúst, og fylgir henni sú spá,
að eins og þá viðrar, muni viðra
um haustið.
Tvímánuður byrjar
27. ágúst. Það er seinasti sumar-
mánuðuxinn, því að næst kemur
Haustmánuður.
Höfuðdagur
29 ágúst var helgur haldinn í
minningu lífláts Jóhannesar skir-
ara. „En er afmælisdagur Herodes-
ar kom, dansaði dóttir Herodíasar
frammi fyrir þeim og geðjaðist
hún vel Herodesi. Þess vegna hét
hann með eiði að gefa henni hvað
sem hún bæði um. Og eftir áeggjan
móður sinnar segir hún: Gef mér
hingað höfuð Jóhannesar skírara
á fati. Og konungurinn varð hrygg-
ur, en vegna eiða sinna og boðs-
mannanna, bauð hann að henni
skyldi það gefið verða. Og hann
sendi og lét höggva Jóhannes í
varðhaldinu, og var komið með
höfuð hans á fati“. — Mikil trú var
á það hér á landi, og al henni eim-
ir enn, að veðrátta mundi batna
með Höfuðdegi. Segir svo á einum
stað: „Bregður þá vanalega veðr-
áttu og helzt þá hið sama í 20 daga,
og minnir á það í 40 daga eftir Ege-
diusmessu (1. sept.)”.
f