Lesbók Morgunblaðsins - 24.08.1958, Qupperneq 1
NÝUSTU BÆKURNAR
\
þar sem 32-105 blaðsíður eru á einu litlu blaði
Nýung sem getur valdið byltingu i bókasöfnum og v/ðor
Tíu síður af Morgunblaðinu á einu litlu blaði.
ÉG rakst hérna um daginn inn í
skrifstofu Finns Sigmundssonar
landsbókavarðar til þess að leita
hjá honum fræðslu urn atriði, sem
mér fannst þá allmiklu varða. En
það erindi mitt varð þó lítilf j örlegt
hjá þeirri fræðslu, sem ég fékk
þar alveg óvænt.
— Ég þarf að sýna þér hérna
nýung, sagði Finnur og fékk mér
lítið umslag með filmu innan í.
Þessi filma var dálítið stærri en
venjuleg spil, gagnsæ, en með
mörgum dökkvum reitum.
— Þetta er smámynd af bók.
sagði Finnur. Þessir dökkvu reitir
eru lesmálið á blaðsíðunum og
þeir eru sextíu að tölu. Með öðr-
um orðum, á þessari litlu þynnu
er hartnær fjögurra a ua fc 'k. Og
hér fyrir ofan stendux með skíru
letri nafn bókarinnar og blaðsíðu-
tölur, svo að maður getur þegar
séð hvað á blaðinu stendur. Og
svo er hérna lesvélin, sem stækk-
ar letrið og kastar því annað
hvort á blað, sem liggur fyrir
franian þann sem les, eða upp á
vegg, þar sem margir geta lesið
hið sama í senn. Leturflöturinn á
myndunum er minnkaður 25-falt.
Lesvélin getur stækkað aftur sem
því svarar, svo á biaðinu fyrir
framan mann verður það jafn
stórt og það var í bókinni upphaf-
lega. En svo getur lesvélin líka
stækkað letrið 100-falt, þegar hún
kastar því upp á vegg, og kemur
þá fram tröllaletur.------------
Lesvélin er lítil og handhæg, og
A