Lesbók Morgunblaðsins - 09.08.1959, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
347
■
nútímaleikrit. En Taylerflokkurinn
er víst áreiðanlega einstakur ’
sinni röð í heiminum, því í honum
er eingöngu blint fólk, sem lærir
hlutverk sín við lestur blindra-
leturs og flytur einkum leikrit fyr-
ir annað blint fólk. Er mikil eftir-
spurn eftir flokki þessum.
En kjarninn í starfseminni í
Karamu er þó Gilpinleikflokkur-
inn, sem með starfi sínu beinlínis
hefur orðið þess valdandi að nýj-
ar listgreinar hafa skapazt þar.
Karamu-dansflokkurinn varð t.d.
ekki til einungis með því að Jell-
iffe-hjónin klöppuðu saman lófum
og sögðu „Verði dansflokkur!“
Nei, þessi flokkur hófst af litlu og
fyrst og fremst vegna þess að sýn-
ingar Gilpinflokksins kröfðust
dansara. Og þegar óvenjulegir
hæfileikar komu í ljós, var þeim
leyft að mynda sérstakan fastan
dansflokk. Og eins og Gilpinflokk-
urinn þurfti sín sérstöku leikrit,
komust Karamudansararnir að
þeirri niðurstöðu, að þeim nægðu
ekki hin hefðbundnu dansform
og hófu því að skapa sinn eigin sér-
staka stíl í túlkun.
Hinar óvenjulegu sýningar
þeirra ollu því, að þeim fóru að
berast tilboð utan Clevelandborg-
ar, og auk þess sem þeir, eins og
áður getur, sýndu á heimssýning-
unni í New York og við önnur
hátíðleg tækifæri, hafa þeir hald-
ið sýningar í leikhúsum ýmissa
háskóla. Nú starfa þrjár undir-
deildir, sem aðaldansflokkurinn
sækir efnivið sinn í; og með þeim
starfar deild tónskálda, sem semja
hljómlistina við dansana. Eins og
leikritahöfundarnir læra tónskáld-
in af reynslunni einni, því það er
skoðun Jelliffe-hjónanna, að ekk-
ert sé líklegra til að skapa frum-
leg verk en tilraunir með raun-
verulega starfandi listamönnum.
Þróun og vöxtur deilda listmál-
ara, myndhöggvara og leiktjalda-
teiknara eiga einnig rætur sínar
að rekja til starfsemi Gilpinflokks-
ins. Hér var leikhús, sem skorti
teikningar á leiktjöldum og bún-
ingum. Frá sjónarmiði hinna ungu
listamanna er aðalkosturinn við
námið í Karamu sá, að er þeir
hafa öðlazt nægilega þjálfun er
alltaf nóg að starfa, eitthvað raun-
verulegt og nytsamt. Þeir þurfa
ekki að æfa sig án aðkallandi við-
fangsefna. Sama gildir og um
Karamu-hljómsveitina og kórinn.
Þetta eru nú sjálfstæðar deildir er
byrjuðu sökum þess að Gilpin-
flokkinn skorti söngvara og hljóm-
listarmenn.
í stuttu máli má segja að hér
gildi reglan: Bezta leiðin til þess
að læra að leika er að leika; bezta
leiðin til að læra að mála sé að
mála og sama gildir um leikritun-
ina, dansinn og aðrar greinar. —
Ekki er þó með því öll sagan sögð.
Karamu hefur gætt þess að hafa
ávallt náið samband við Listasafn
Clevelandborgar, Þjóðminjasafnið,
Western Reserve-háskólann, Lista-
deild bókasafns Clevelandborgar
og síðast en ekki sízt Cleveland
Dansari úr Karamu-flokknum