Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1959, Side 8
I
384
LESBÓK MORGTJNBLAÐSINS
BRIDGE
4 9 7 5 2
V 6 2
♦ K 10 7 2
* D 7 4
4 D 6
V D G 6 5
♦ 9 6 5 4i
4 G 6
N
V A
S
4 G 10 8 4
V 10 7
♦ G 8
4 K 10 9 5 3
4 A K 3
V A K 8 4 3
♦ Á D
4 Á 8 2
S sagði 2 hjörtu, N sagði 2 grönd,
S 3 hjörtu og N 4 hjörtu. Hinir sögðu
aldrei neitt.
Út korn T 4, lágt úr borði, A drap
með gosa og S með ás. Síðan tók hann
slagi á H Á og H K og sló enn út
hjarta, en þá kom í ljós að trompin
lágu illa. V fekk slaginn, en gerði svo
þá skyssu að taka ekki líka hinn tromp-
slaginn. Hann sló út T 3, sjálfsagt
vegna þess að hann hefir haldið að
A ætti drottninguna. S drap með kóng
í borði og var að hugsa um að slá út
T 10, en sá sig um hönd og kom sér
inn á spaða. Næst sló hann út lág-
laufi og drap með L D í borði, en A
drap með kóng. Nú kom spaði út og tók
S þann slag. Síðan tók hann slag á
L Á og kom svo V inn á trompið. Og
nú varð V að spila undir tiglana. Þar
fekk S tvo slagi og. vann þannig spilið.
SYNDASTRAFF
Páll Vídalín getur þess í annál sín-
um, að þegar nefndarmenn gáfu orður
til sýslumanns um fólksregistur og
fjáruppskriftir, „varð við þetta mikið
hljóðskraf um byggðir, og þóttust menn
lítt vita, hvað gilda mundi“. Þar sem
margir voru biblíufróðir í þá daga,
er ekki ólíklegt, að sumum hafi dottið
í hug manntal Davíðs konungs, sem
sagt er, að Drottinn hafi refsað fyrir
með drepsótt, er 70 þúsund manns dóu
FNYKUR — Þetta er mynd af bræðslustöðinni á Kletti í Reykjavík. Hún
var að vísu reist langt utan við bæinn á sínum tíma, en nú hefir byggðin þan-
izt svo út, að stöðin er inni í sjálfum bænum. Þessi stöð vinnur úr alls kon-
ar úrgangsfiski, og hún fekk fljótt leiðindaorð, vegna hins leiða þefs, sem af
henni lagði. Varð þetta eigi aðeins til óþæginda íbúum í næstu hverfum, heldur
lagði dauninn stundum niður í Miðbæ í norðaustlægri átt, og minnti gamla
Reykvíkinga á þá daga, þegar grútarbræðslan var i Örfirisey. Það verður að
segja forstjórum þessa fyrirtækis til maklegs lofs, að þeir hafa nú komið fyr-
ir tækjum í stöðinni til þess að eyða þeim þef, sem gufunni fylgdi. Hefir skipt
svo um síðan að vart mun fnykur frá henni breiðast um allan bæinn. — Slík-
an útbúnað þyrftu síldarverksmiðjurnar að fá, því að oft leggur af þeim slæm-
an daun, og svo er venjulega byggð allt í kring um þær.
I
úr. Til þess bendir það, sem Jón Þor-
kelsson (Thorcillius) skólameistari
segir í landlýsingu sinni, að alþýða
manna á íslandi hafi haldið, að stóra
bóla 1707 hafi verið syndastraff fyrir
manntalið 1703. — (Úr formála að
útgáfu Manntalsins).
HORFT A DANS
Ólína Jónasdóttir skáldkona á Sauð-
árkróki horfði eitt sinn á nýa dansinn
á einhverri skemmtisamkomu, og varð
þá að orði:
A því sé eg engan glans,
þótt yfir blakti landsins flagg,
þetta er ekki þjóðardans,
það er bara nudd og vagg.
BAKKABRÆÐUR
hinir alkunnu fávitringar, voru
kenndir við Bakka í Fljótum, sem ráða
má af Ármanni á Alþingi. Baldvin
Einarsson, sem sjálfur var úr Fljót-
um, segir þar um Sighvat sveitunga
sinn: „Enginn getur sagt það um hann
Sighvat, að hann sé heimskingi, og þó
er sagt að hann sé ættaður úr Fljótum
í Skagafirði, sem ætíð hefir verið í
munnmælum jafnað saman við Flóa
að aulahætti, eins og stefið sannar:
Tvær eru sveitir, Flói og Fljót,
sem flestir saman jafna o. s. frv.
(Þjóðsögur J. Á.)
BREYTINGAR Á ÞINGVALLAVATNI
Hinn 10. dag júnímánaðar 1789 gerði
landskjálfta mikla, svo að hrundu hús
mjög um allt Suðvesturland, og lágu
menn víða í tjöldum, því að oft varð
vart við þá um sumarið. Urðu þá
sprungur í jörð víða og nýir hverir,
og umbreyttist Þingvallahraun og svo
vatnið, svo að sökk grundvöllur vatns-
ins að norðan og dýptist það þeim meg-
in og hljóp á land, en alfaravegur forn
varð undir vatni sums staðar, grynntist
það og allt að sunnan, hrundi mjög*
Almannagjá og klettar fleiri. —
(Árb. J. Esp.)
1
\