Lesbók Morgunblaðsins - 25.03.1962, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 25.03.1962, Page 9
SATURN 0 tfg OSFLAUGAR þær, sem Bandaríkjamenn framleiða, eru nú svo margs konar og margbrotnar, að ekki er nema fyrir sérfræðinga að kunna skil á þeím. Hvort tveggja er, að hver flaug er samsett úr mörgum liðum eða hömum og getur hver þeirra tekið ýmsum stakkaskiptum. En auk þess eru drifefn- in af mismunandi gerðum og ýmist föst eða fljótandi. 0, "g það er ekki aðeins eldur og bruni tveggja efna, til dæmis fljót- andi súrefnis og alkohols, sem knýr áfram flaugina, sem þá má nefna eld- flaug, heidur getur verið um slík drif- efni að ræða að ekki er rétt að tala um eld eða eldflaug. Koma þar til greina t. d. flaugar knúnar rafeindum eða svokölluðu plasma, þar sem jafnvel sólarorkan er driffjöðrin. Þá má nefna kjarnorkuflaugar sem í undirbúningi eru og fleira. H Lver gerð flauga þjónar sérstök- um tiigangi, því að verkefnin sem rannsaka skal eru svo margháttuð að haga verður tækjunum eftir því. Merkilegasta eldflaugasamstæða Bandaríkjamanna fram að þessu er hin Evokallaða SATURN-eldflaug. En þar eem hana þrýtur orku tekur við eld- flaugin NOVA, sem hefur nær tvöfalt ofl á við Saturn. Er Nova nú í undir- búningL 1 il þess að gefa hugmynd um etærð Novu, má geta þess að hún verð- ur líklega 360 fet eða nær 110 metrar á hæð og gæti komið geimskipi með 3 manna áhöfn til iendingar á tunglinu og til baka aftur. Neðsti hamur Novu yrði knúinn átta F-1 eldhreyflum eða e. t. v. föstu elds- neyti. Þrýstingurinn sem lyftir Novu yrði um 5.500 tonn. Ei Hi L ún bæri geimskipið APOLLO, er vegur nær 70 tonn. En það væri með fjaðrandi lendingarfótum, þegar lenda skyldi á tunglinu, og eldhreyflum TÆKNI OC VfSÍUDI sem beint væri gegn fallinu niður á tunglið. Ynnu þeir með 45 tonna and- þrýstingi. Loks fiytti þessi tunglferja með sér brottfararhreyfil útbúinn 7 tonna þrýstihreyfli til að lyfta ferj- unni af tunglinu og koma henni á leið til jarðar. mt ar sem Saturn getur komið 19 tonna geimskipi í sporbaug um jörðu, þá getur Nova komið 160 tonna geim- skipi í sporbaug. Og önnur stærri gerð af Nova getur komið 190 tonna geim- skipi í sporbaug en 70 tonna skipi út úr umráðasvæði jarðar — í sporbaug um sólu og til annarra hnatta! Til samanburðar má nefna að stærsta geimskip Rússa í sporbaug um jörð vegur 5—7 tonn og er líklega skotið á loft með 360 tonna þrýstingi. Banda- ríkjamenn eru þannig að smíða flaug- ar, sem eru 15 sinnum öflugri. Má bú- ast við, að ekki líði mörg ár, áður en þeir skáka Rússum með þessum risa- vöxnu flugskipum. F-1 goshreyfillinn _ Ff P 4 TTT 20 hœJ>a hw5 C-1 % þrep 3Cþrep C-3 3 þrep I inn þeirra goshreyfla sem Banda ríkjamenn tengja mestar vonir við og sem væntanlega á eftir að valda bylt- ingu í geimferðum er F-1 goshreyfill- inn. Þrýstiafl hans, þótt aðeins sé brennt súrefni og steinolíu, er 675 tonn, og fyrirhugað er að byggja a.m.k. sex-átta slíka hreyflá inn í gosflaug af Nova-gerðinni, sem gæfi henni a.m.k. 4000—5100 tonna lyftikraft og þó enn meir þegar notað er sterkara eldsneytL Myndin sýnir aðeins einn af þessum hreyflum og gefur hugmynd um stærð hans. En þungi hvers hreyfils er nær 7 tonn. Fjarskipta geimstöðvar v JL msar stórmerkar rannsóknir fara nú fram með aðstoð geimstöðva, þó smáar séu. Þannig hafa TIROS veður- tunglin veitt mikilvægar upplýsingar um veðurmyndanir. Önnur tungl eru notuð til afstöðu- mælinga í þjónustu siglinga. Þá eru framkvæmdar rannsóknir á sólinni og geislum hennar og á eðli jarðarinnar, þyngd og lögun. Loks líður að því að sett verði upp fjarskipta- og endur- varps geimstöðvar. Þannig munu á þessu ári verða hafn- ar tilraunir með fjórar gerðir af geim- stöðvum, sem smnast eiga fjarskipti: Project RELAY, sem Radio Corpora- tion of America sér um fyrir NASA, sem er æðsta geimvísindastofnun Bandaríkjanna. Project TESTAR sem American Telephone and Telegraph Co. sér um ásamt NASA. Project ADVENT, sem eru viðvörun- arstöðvar hátt settar yfir jörðu. Sér General Electric um þær ásamt varn- armálaráðuneytinu. li oks er Project SYNCOM, sem Hughes Aircraft sér um fyrir NASA. Síðustu tvær tegundir geimstöðva myndu staðsettar í 22,300 mílna hæð yfir jörðu og snúast með sama horn- hraða og jörðin. Þrjár slíkar stöðvar gætu náð beint til allrar jarðarinnar með sjónvarpi. Þær mundu allar verða færar um að taka við, magna og endurvarpa út- varps- og sjónvarpsbylgjum. Um þetta mál skrifar Senator Warr- en C. Magnuson í ASTRONAUTICS í janúarheftið 1962. Kveður hann þar stjórnskipaða nefnd telja að þess muni alllangt að bíða að sjónvarpsnotendur geti tekið við útsendingum beint frá þessum hnöttum, en efast sjálfur um þetta og vitnar í ummæli Bandaríkja- forseta um það, að nauðsyn beri til að stefna að því að sem fyrst megi ná beint til afskekktustu afkima jarðar- innar. Af þessu má ráða, að í fyrstu verði notaðar móttökustöðvar á jörðu til að taka við sjónvarpi frá himin- geimnum og dreifa því til notenda. En að síðar muni tæknin eflast svo, að almenningur geti sjálfur valið sér efni frá hinum ýmsu geimsendistöðvum og fylgzt með fréttum og atburðum jafn- ótt og þær gerast um heimsbyggðina. Má því gera ráð fyrir að mörg okkar, sem nú lifum, eigum eftir að sjá meiri byltingu í fjarskiptum en flesta grun- ar. Og lítt mun þá tjóa að kvaka um einangrun eða óska hennar. Gísli Halldórsson. EldhreyfllIInn, sem gefur nær 700 tonna þrýstíng með aðeins súrefni og steinolíu sem brennsluefnum. — (S. 25. March 1961, ASTRONAUTICS) Huseigendur á hitaveitusvæðinu Sparið hitunarkostnaðinn um 10—30% með því að nota sjálfvirk stillitæki Onnumst uppsetningar Talið við okkui og leitið upplýsinga = HÉÐINN = Vélaverzlun — Sími 24260 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.