Lesbók Morgunblaðsins - 25.03.1962, Blaðsíða 12
Leikhúsm’.nn'.ngar
Frh. af bls. 4
hjá Kristjáni í þessum bæ í kunningja-
liópi hans og vina. Þó er hann maður
all seintekinn, en seinn að slíta vináttu
þar sem hann hefur tekið henni. Hann
er ekki allra, en allur þar sem hann er
á annað borð“.
E nda þótt Kristján væri jafnan
önnum kafinn við margs konar störf
og veraldarvafstur, gaf hann sér tíma
til að þjóna leiklistinni vel og dyggi-
lega fram á síðustu æviár sín. Eins og
áður segir hafði hann um langt skeið,
áður en Leikfélag Reykjavíkur hóf
göngu sína, verið með fremstu jeikur-
um bæjarins og leikið fjölda hlutverka,
sem ég kann ekki að greina. Á vegum
Leikfélagsins fór hann alls með 27
hlutverk, bæði gamanhlutverk og hlut-
verk alvarlegs eðlis og þótti jafnvigur
á hvorttveggja. Veigamestu hlutverk
hans voru kammeráð Kranz í „Ævin-
týri á gönguför", Mörup skóari í
„Drengnum mínum“, Örnúlfur úr
Fjörðum í „Víkingunum á Hálogalandi“
og Jakob skóari í „Jeppa á Fjaili“.
„Ævintýri á gönguför“ var sýnt á
fyrsta leikári félagsins og fékk mjög
misjafna dóma í blöðunum. ísafold
(5. 3. 1898) hefur allt á hornum sér,
telur frammistöðu leikendanna yfirleitt
lélega bæði um leik og söng og má
heita að allir leikendurnir verði meira
og minna fyrir barðinu á leikdómaran-
um. Um leik Kristjáns segir blaðið
meðal annars: „Kristjáni Þorgrímssyni
varð merkilega lítið úr Kranz, jafn-
góður leikari og hann annars er ....
Um sönginn hans er vingjarnlegast að
segja sem fæst“. Þjóðólfur er hinsveg-
ar á öðru máli en ísafold um leik
Kristjáns í þesSu hlutverki, þvi leik-
dómari blaðsins segir (25. 2. 1898):
„Kranz kammeráð var mjög skemmti-
lega heimskur og aulalegur og mjög
vel leikinn af Kr. Ó. Þorgrímssyni“.
Fjallkonan fylltist mikilli vandlætingu
út af þessum sundurleitu dómum fram-
angreindra blaða og segir (7. 3. ’98):
„Það er annars gott dæmi þess, hve
mikið er að marka dóma fagurfræðinga
okkar, að ísaf. og Þjóð. dæma hvort á
móti öðru um frammistöðu leikend-
anna í „Ævintýri á gönguför." Tekur
blaðið síðan upp glefsur úr leikdómum
beggja blaðanna og segir svo að lok-
um: „Hverjum á að trúa? Líkiega hvor-
ugum“. Á þessu sést að það er ekkert
sérstakt nútíma fyrirbæri að leikdóm-
endum beri margt á milli í dómum sín-
um. Þannig hefur það verið bæði hér
og annars staðar, frá því farið var að
skrifa leikdóma og verður vafalaust
lengst af.
Arið 1913 er „Ævintýri á göngu-
för“ enn sýnt hér og kveður þá við
annan tón í ísafold um leik Kristjáns.
Þar segir: „Þá er síðast en ékki sízt að
minnast á sjálfan birkidómarann Kranz
— „toppinn á kranzakökunni“, sem er
orðinn „klassiskur“ í höndum Kr. Ó.
Þorgrímssonar".
Haustið 1898, á öðru leikári Leikfé-
lagsins, var sýnt leikritið „Drengurinn
minn“. Þetta er mikill harmleikur og
lék Kristján Þorgrímsson, svo sem áð-
ur segir, Mörup skóara, átakanlegt og
áhrifamikið hlutverk. Heyrði ég oft
vitnað til leiks Kristjáns í þessu hlut-
verki og bar mönnum saman um að
hann hafi leikið þennan þrautreynda
og hrjáða, gamla mann af svo næmum
skilningi, svo djúpri tilfinningu og inn-
lifun, að margir leikhúsgesta hafi ekki
getað tára bundizt. Og ísafold og Þjóð-
ólfur eru nú_á einu máli um frábæran
leik hans. ísafold segir: „... .leikur
hann þar svo ánægjulega látlaust og
eðlilega, að það má vera tilfinningalaus
maður, sem ekki kennir í brjóst um
hinn umkomulausa gamla mann“. Og
Þjóðólfur kveður enn sterkar að orði:
„Langbezt lék hr. Kristján Ó. Þorgríms-
son skósmíðameistarann Mörup, einkum
í síðari hluta leiksins, sem mæddan
mann og örfátækan, t. d. í síðasta
þættinum, þar sem hann er að lappa
skó á kvistherberginu. Þar leikur
Kristján svo vel, svo eðlilega og til-
gerðarlaust, að þar hefur honum að
vorum dómi einna bezt tekizt af öllu
sem hann hefur leikið hingað til, og
hefur hann þó leikið margt mjög vel.
Og það er enda vafasamt, hvort nokk-
ur persóna í leik hér, hefur verið öllu
betur leikin yfirleitt en Kristjón lék
Mörup hér. Að minnsta kosti mundi
Kristjáns-Mörup þar á kvistherberginu
og víðar í leiknum þykja fullboðlegur
í hverju góðu leikhúsi erlendis, jafn7
vel hinum beztu og er þá mikið sagt“.
Og blaðið bætir við: „En hvenær
skyldu sumir áhorfendur geta vanizt af
því að hlæja einmitt þá er alvara lífs-
ins og sorgleg atvik eru sýnd á leik-
sviði? Það er mjög hneykslanlegt, að
vera sjónarvottur að slíkum skræl-
ingjaskap". (Tímabær orð enn í dag!
S. Gr.) — Kristján fékk einnig mjög
góða dóma fyrir leik sinn í hlutverki
Örnúlfs úr Fjörðum og Jakobs skóara.
5C. ristján naut mikilla og vaxandi
vinsælda sem leikari fram til þess síð-
asta, en hann mun hafa leikið seinast
leikárið 1914—1915 og þá bæði í
„Drengnum mínum“ og „Ævintýri á
gönguför“ þau hlutverk, sem hann
hafði leikið af mestri sniild, svo gjör-
ólík sem þau eru.
Ég hef hér að framan stuðzt við
gamla blaðadóma um leik Kristjáns
Þorgrímssonar af þeirri ástæðu að mér
gafst ekki kostur á að sjá hann nema
í einu hlutverki, — Kranz birkidóm-
ara í „Ævintýrinu", en í því hlutverki
sá ég hann oft. Og hvílíkur leikur! Hið
takmarkaða gáfnafar Kranz Ijómaði af
allri persónunni og hver hreyfing hans,
röddin og svipbrigðin voru í svo full-
komnu samræmi við hlutverkið að á
betra varð ekki kosið. „Ævintýrið"
var líka meðan Kristján naut við vin-
sælasti gamanleikurinn, sem hér var
sýndur, enda jafnan til hans gripið
þegar Leikfélagið þurfti að hressa upp
á fjárhaginn.
I safold sagði 1898 um Kristján í
birkidómaranum: „Um sönginn hans er
vingjarnlegast að segja sem fæst“. Satt
er það, að Kristján var elcki mikill
söngmaður — allt að því laglaus — og
átti erfitt með að læra lög. í „Ævin-
týrinu" þurfti hann að syngja allmikið,
en sá vandi var leystur með því að
birkidómarafrúin (Marta Indriðadóttir)
hafði lag á því að gefa bónda sínum
tóninn, þegar allt ætlaði að stranda hjá
honum. Var oft gaman að fylgjast með
því hversu þessu reiddi af hverju
sinni, því að Kristjáni fórst ekki alltaf
jafn höndulega að „taka við“. Ekki fór
samt illa á þessu, því að birkidómara-
frúin er I einu og öllu forsjá mannsins
síns, sem kunnugt er, og leikhúsgest-
um fannst að svo mætti einnig vera í
þessu efni. — Kristján var gæddur
þeirri kímnigáfu að hann gat hent
gaman að sönghæfileikum sínum. Var
mér kunnugt um að hann neitaði
vindlum þá daga sem sýna ótti „Æv-
intýrið“ og sagði þá eitthvað á þessa
leið: „Ég má það ekki vegna raddar-
innar“.
Kristján Þorgrímsson var ef til vill
sérstæðastur allra íslenzkra leikara og
mér verður hann ávallt minnisstæður
í Kranz birkidómara.
Sigurður Grímsson.
.OM.: SCAN Ði PAVljft .
Slankbelti eða hrjóstahaldan er undir-
fatnaður, sem þér kaupið ekki nema að
vel athuguðu máli. Lífstykikjavörur eru
það þýðingarmikill þáttur í klæðaburði
yðar, að nauðsynlegt er að velja þær með
fyllstu námkvæmni. Spyrjið um hinar vel
þekktu KANTER'S lífstykkjavörur, sem
eingöngu eru framleidaar úr beztu efnum,
i nýjustu sniðum. Þér getið ávallt verið
öruggar um að fá einmitt það sem yður
hentar bezt frá.
Kcmíer’s
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS