Lesbók Morgunblaðsins - 25.03.1962, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 25.03.1962, Blaðsíða 16
Hann var átján ára, há- vaxinn og renglulegur, með svartan, hrokkinn lubba, sem óx niður yfir jakkakragann. „Hvumig hefurðu það?“ spurði hann um leið og ég settist við borð- ið, sem hann sat við í hálflýstu kaffihúsi. „Það er skrýtið hvað maður saknar bölvaðra túristanna". Hann bauð -mér sopa af kaffinu sínu, og ég tók upp pakka af sígar- ettum og bauð honum eina. Hann sogaði reykinn djúpt að sér þegar hann kveikti í. Unglingur við næsta borð hallaði sér að okkur, spurði hvort hann gæti fengið eina keypta og rétti fram krónu. Ég gaf honum sígarettu, og strákurinn við mitt borð muldraði, þegar hinn var bú- inn að snúa sér undan: „Það má sjá að þú ert græningi, að taka svona upp pakkann. Hafðu hann í vasan- um. Hann hefði orðið trylitur ef þú hefðir tekið við krónunni“. H ann blés nokkrum reyk- hringjum og talaði eins og viktorí- anskur faðir, sem er að reyna að segja syni sínum frá staðreyndum lífsins. „Mér kemur auðvitað ekkert við, hvers vegna þú ert hérna, vinur, hvort þú ert bara að skreppa út, í felum eða einn af okkur og ert að venjast á West End, en þú verður að læra að lifa, annars þolirðu ekki lengi við. Þú ert meira en tíu árum eldri en ég og veizt ekki helming á við mig. Verðurðu ekki skömmustu- legur? Það má auðvitað segja, að ég hafi verið fljótur að læra. Ég varð. Mamma átti tíu stykki og engan mann fyrr en sá þriðji varð kyrr hjá henni, svo að það má segja að ég hafi séð um mig sjálfur síðan ég var níu árá. Ég mimdi gizka á að þú hafir haft það gott. Er þér sama þó ég taíi svona við þig, þér leiðist vonandi ekki? Ég tók þrjár töflur í dag og er alltaf kjaftagleið- ur á eftir. Eg er með fulia vasa núna og ætla að reyna að selja þær. Viltu fá nokkrar? Þú getur fengið sex fyrir þrjátíukall. Stundum gef ég strákunum, eina eða tvær, ef þeir eru blankir og langar í. Þú átt eftir að komast að því, að við hjáipum hver öðrum svoleiðis. Mér finnst maður ekki þurfa að éta mikið, ef maður tekur þær. Ég var eins og í draumi í gær. Allt virtist vera eins og í gamla daga, konurnar voru í síðum kjólum og annað eftir því. Það var ekki bara ímyndun, þó að ímyndunaraflið í mér sé sízt minna en í öðrum, en ég komst ekki aftur til raunveruleikans fyrr en ég kom í Charing Cross Road. Ég gat ekki munað, hvar ég hafði verið. Eg er víst kominn í kjaftastuð af töflunum. Ég skrapp til mömmu í gær og fékk að sofa á stól hjá henni þangað til kallinn kæmi heim. Ég gaf henni töflu og henni fannst það bara gott. Svo fékk ég að sofa þar um nóttina“. Hópur af fólki kom inn, þar á meðai karlmenn í jakkafötum og konur í kápum (en hvað maður fer fljótt að hugsa eins og þeir heimilis- tausu). „Þau eru komin til að sjá hvernig „hinir“ lifa“, sagði unglingurinn. Hann horfði frekjulega á þau, og kipptist allt í einu við. „Sástu þá?“ „Hverja?“ „Löggurnar. O, þú verður að vera fljótari en þetta. Tveir af þessum í jakkafötunum komu að okkur og skoðuðu okkur“. Nokkrir unglinganna fóru. „ eir ætla að labba einn rúnt um West End fyrir lokunartíma. Þeir gætu fundið eitthvað eða stolið úr einum vasa, og einn eða tveir þeirra stunda vændi, en það finnst mér fullmikið af því góða. Ég segi að þeir geti lifað án þess“. Hann saug ■sígarettustubbinn og tók sopa af hinum sameiginlega kaffibolla. „Sumir okkar fá sér stundum vinnu í kaffibar, eða selja pylsur á götunni. Um daginn fór ég meira að segja á vinnumiðlunarskrifstofu, en það var svo svekkjandi að bíða þarna í röðinni að ég fór. Svo hef ég líka týrit öllum mínum pappírum og ég er dauðhræddur um að þeir komist að því, að ég er ekki full- veðja og sendi mig eitthvað burtu vegna skorts á H & A“. Ég spurði hann, hvað H & A þýddi, og hann leit á mig með með- aumkun. „Heimili og aðhlynning. Þú veizt svo sannarlega ekki margt“. „Einn náungi lét mig hafa vinnu við að afgreiða í matbamum hjá sér, en það fór fljótt að verða eins svekkjandi og fangelsi, og ég fór snemma í sumar, áður en túristam- ir komu, og lifði svo á smávegis vasaþjófnaði og betlaði á milli. Þeg- ar maður er krakkalegur á svipinn vorkenna sumir manni, og stundum líkar ríku fólki vel við betlara, því það finnur betur til auðæfanna, ef það sér einhverja betlara. Þá bjó ég á skrifstofu. Þegar læst var á kvöld- in fór ég inn um gat, sem ég vissi um á kjallaranum, og við vorura tíu, sem bjuggum þarna. Við höfð- um verði til að vara við nætur- verðinum. En maður er ekki alltaf svona heppinn. Við komum hingað, þegar ekki er í önnur hús að venda. Mað- ur er þó innan um fólk sem skilur mann. Stundum reyna einhverjir okkar að flýja frá West End — í fyrra fór ég til Cornwall, og hana þama er nýkominn frá Brighton — en maður kemur alltaf aftur. West End er eins og eiturlyf, þegar mað- ur venst honurn". Við kveiktum í nýjum sígarettum og hann blés nokkrum reykhring- um. „Stundum kemst einhver okkar yfir svo mikla peninga, að hann getur leigt herbergi, þá búum við margir saman í því og förum á morgnana, áður en húsráðandi fer á fætur. Ég hef aidrei leigt mér herbergi, ég eyði peningunum alltaf áður en ég get sparað svo mikið saman. Ef ég gæti sparað saman fimmhundruð kall, án þess að nota það til annars, gæti ég fengið mér herbergi. Ég held, að með því gæti ég sannað eitthvað. Þegar ég hitti mömmu, mundi mér finnast ég hafa afrekað eitthvað. E g reyni að selja mig ekki og vera integretus maður — það er út- lenzka og þýðir víst heill maður, en það gengi betur, ef ég hefði her- bergi. Nú stel ég, ef ég er allslaus. Stundum geng ég í búðirnar á morgnana, en ef maður er ekki upp strokinn og sleiktur eins og fínn maður, hefur búðarspæjarinn mann * alltaf undir stækkunarglerinu. Ég varð að hlaupa síðast í Harrods". Hann þagnaði og blés nokkrum reykhringum. „Þér leiðist ég von- andi ekki?“ Áður en ég gæti neitað því, skellti hann upp úr og sagði: „En mér leiðist ég“. PRENTMYNDÁGCRDIN MYNDAMÓT H.F. MOHCUNBLAÐSHlJSINU - SÍMI 17152

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.