Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1962, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1962, Blaðsíða 10
Hverer uppáhaldsmatur eiginmannsins Farseðill kostar Henni lízí ekkert á nautaatið Puerto de Alcudia — Mallorca, 11. sept. HéR er hafið svo himin- blátt og sandurinn drifhvítur. Sólin skín í öllu veldi sínu dag eftir dag. Ég vörkenni gróðr- inum að undanskyldum kakt- usunum, sem virðast geta lifað og dafnað án vatns. Hér verða menn að veita vatni á jörðu til þess að hún beri ávöxt. Skógargróðurinn er þó furð- anlega gróskumikill þar sem hann er, en gras sést tæplega, eins og heima. Sums staðar er jörðin beinlínis sviðin á milli aldin- og ávaxtareitanna, þar sem vatn hefúr ekki komið nálægt allt sumarið. Jörðin hlýtur að verða fegin þegar sumri tekur að halla og vetur gengur í garð og von er á regni.... Það er hressandi að vakna snemma á morgnana áður en sólin kemur upp. Ef litið er út um gluggann kl. 6—7 að morgni, má sjá sjómennina Frarnh. á bls. 11 umhverfis hnöttinn 58,700 krónur — 17600. — Saga, góðan dag. — Njáll Símonarson? — Já það er hann. — Hvernig gengur það? — Takk, bærilega — ágæt- lega. — Fóli.ið er alltaf að ferð- ast? — Já, það ferðast mikið. Við seljum daglega fjöldan allan af farseðlum, fyrst og fremst með fl ugvélum til útlanda — og áfram með erlendum flug- vélum til fjöldamargra landa. í öðru lagi seljum við mikið af hinum svonefndu „inclusivu“ ferðum þar sem allt er innifal ið og ferðafólk þarf ekiki að hafa áhyggjur af neinu, hvorki hótelherbergjum né ferðalög- um milli staða erlendis — og loks seljum við mikið af far- seðlum erlendra ferðaskrifstofa Fólk fer fljúgandi út og ferð- ast síðan með hóp frá Kaup- mannaihöfn, London eða ein- hverri annarri borg. — Og þið hjálpið fólki að skipulegigja ferðir sínar, ef þess gerist þörf, er ekki svo? — Jú, margir koma hingað, hafa aldrei farið út fyrir land- steinana — og vilja fá góð ráð. Við skipuleggjum slíkar ferðir í smáatriðum og hafa margir komið hingað eftir heim komuna og þakkað fyrir góða og ánægjulega ferð. — En hvert hafið þið selt farseðla lengst? — Umihverfis hnöttinn. Þeir geta víst ekiki orðið miklu lengri. — Og ferðast margir fslend- ingar umlhverfis hnöttinn? —■ /ið höfum selt allmarga slí'ka farseðla í sumar og í haust. Flestir þeir, sem kaupa farseðil umhverfis hnött.inn, eru kaupsýsluimenn ó i , til Japai.. Það er sjálfsagt fyrir þá að fara allan hringinn úr þvi að þeir eru komnir til Tokyo. — Og hve mikið kostar far miði umhverfis hnöttinn? — Eg var að selja einn rétt óðan, hann kostaði 58,700 krón ur. Sá maður mun fljúga með sex flugvélum og koma við í Kaupmannahöfn, Frankfurt, Róm, Kairo, Nýju Dheli, Ban- kok, Hong Kong, Tokyo, Hono lulu, San Francisco, New York, Shannon, Duiblin og Glasgow, en þaðan flýgur hann heim með j’lugfélaginu. — Ekkert smáræðis ferða- lag? — Nei, og skemmtilegt. — Þið hafið ekki farið út í að skipuleggja hópferðir Is- lendinga til útlanda, eins og keppinautar ykkar? — Nei, ekki enn, Er. óráðið er hvað við gerum næsta sum ar. — Hvert vill fólkið annars helzt fara? — í sumar fannst mér á- huginn áberandi mestur á Bret landi og Þýzkalandi. í haust hefur það hins vegar mest ver- ið Spánn og Portúgal, enda er þar sumar langt fram á vetur, ef svo mætti segja. — Og ykkur langar ekkert til að taka erlenda ferðamanna hópa hingað heim? ■—• Auðvitað langar okkur til þess, enda hafa ok'kur borizt fjölda fyrirspurnir frá erlend um ferðaskrifstofum þar að lút andi. Ferðaskxifstofumenn hafa jafnvel komið hingað upp til þess að athuga möguleikana. En þið vitið, að Ferðaskrif- stofa rikisins hefur einkaleyfi á móttöku útlendinga. — Já, við höfum heyrt það fyrr. En ert þú ek'ki að hugsa um að leggja land undir fót í haust? — Jú, fer bráðlega til að treysta okkar bönd við ýmsar ferðaskrifstofur á Spáni, í Bret landi og Þýzkalandi svo og á Norðurlöndum. Auk bess hefur spánska flugfélagið IBERIA boðið mér í ferðalag um Spán. Eg hef að vísu ferðazt töluvert um Spán áður, en ég vona að eftir þessa ferð verði ég enn færari urn að gefa ferðafólki góð ráð og leiðbeiningar um skipulagningu Spánarferða, er nú virðast æ eftirsóttari hér hjá ok'kur. > HUNDALÍF — Já, hún manuna hans bað mig að gæta hans á meðan hún færi eftir mjólkinni. SPURNIN GUNNI svarar í dag Edda Lövdal Guð- mundsson, kona Konráðs Guðmundssonar, forstöðu- manns Lido: Það er ekki svo gott að svara því, þar sem honum finnst allur algengur vel til- búinn matur góður og næst- um því að honum finnist bezt það, sem hann borðar í það og það skiptið. Hon- um þykir jafngott að fá hrogn og lifur fyrst á ver- tíðinni og rjúpuna á jólun- um. Allir spaghetti og hrís- grjónaréttir eru ofarlega á vinsældalistanum og því alltaf vel þegið þegar boðið er upp á svínakótelettur með karrýsósu og hrísgrjón um, sem eru þannig til- reidd: Smátt saxaður lauk- ur og hrísgrjón eru látin krauma (ekki brúnast) í bræddu smjöri dálitla stund, síðan látið í eldfast mót og helmingi meira magni af vatni, sem er blandað dá- litlu magni af ananassafa hellt yfir (1 bolli grjón, 2 bollar vatn). í þetta er einnig látinn súputeningur eða kraftur og ananasbitar. Þá er mótinu lokað vel og látið í vel heit- an ofn í ca 15—20 mín. Á meðan eru kóteletturnar, sem mér finnst endilega þurfa að vera magrar, barð ar, kryddaðar með salti, papriku og karrý og brún- aðar vel og soðnar eins og með þarf. Búin til sterk karrýsósa og í hana látnir smjörristaðir bananar og einnig dálítill ananas. Sem eftirrétt þætti honum bezt þessa dagana að fá pönnu- kökur með bláberjamauki og rjóma. En ekki væri mál tíðin fullkomin fyrr en hann fengi gott kaffi og kannski vindil með. SIMAVIÐTALIÐ . 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23. tölublað 1962

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.