Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1963, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1963, Blaðsíða 2
ÆLMVJBIBk SVIP- MVND Við þekkjum Nikita Krúsjeff og höfum séð hann lemja í borðið og lofa að ganga af auðvaldsheiminum dauðum, eða þá breitt brosandi, þegar hann faðmaði að sér Moskvu- sendiherra Bandaríkjanna og sagði: „Það er nú sama, hvort við getum þolað hvor annan eða ekki, þá verðum við að lifa sam- an“. Við höfum séð hann lemja skónum sínum í borðið hjá S.Þ., og leika rösklega umferð af badminton við ameríska utan- ríkisráðherrann, við höfum séð hann og heyrt strá kringum sig spakmælum og sígildum setn- ingum, vitna í Biblíuna — og á næsta andartaki bölva slóða- fengnum samyrkjubústjórum og lingerðum flokksstarfsmönnum niður til neðsta vítis kommún- ismans. Við þekkjum Krúsjeff — einn slyng- asta stjórnmálaref veraldarsögunnar — þegar hann er töfrandi eða umhverfist, brosandi eða ógnandi, kátan eða móðg- andi, en allt þetta getur hann verið, eft- ir geðþótta eða eftir þvi sem bezt hentar hverju sinni. En hvernig er svo maðurinn að baki þessara ruddalegu töfra og glaðklakka- lega ofsa? Hvemig lifir maðurinn Nikita Krúsjeff þær fáu stundir, sem hann er ekki að leika á heimssviðinu með ofsg- legum tilburðum? r»llt fram til síðustu ára var einka- líf Sovéthöfðingjans algert leyndarmál, og persónuleg málefni hans hulin péttu fortjaldi, engu síður en eldflaugastöðvar Rauða hersins. Á síðustu ámm hefur orð ið mikil breyting á þessu, ekki síður en á mörgu öðru í Krúsjeff-Rússlandi, eftir dauða Stalíns — sumpart vísast vegna þess, að þannig hefur Krúsjeff óskað þess sjálfur, en jafnframt vegna þess, að stóraukin samskipti við umheiminn hafa gert það nauðsynlegt. Nú orðið heldur Nína, kona forsætis- ráðherrans, teboð fyrir sendiherrafrúrn- ar í Moskvu, og þessar samkomur enda oft á því, að kellur sveifla hver annarri í fjörugum dansi — og nú fer Krúsjeff á hinum tíðu ferðum sínum til annarra landa með tengdasoninn, Adzhubei aðal- ritstjóra, í fylgd með sér Og jafnvel er dóttir hans með þeim og kannski ein- hver börn þeirra yngri hjónanna. Heill hópur af stjórnmálamönnum Vestur- landa — Nixon, Harriman, Rusk, Steven- son og hvað þeir nú allir heita — hefur verið gestkomandi á hinum ýmsu heim- ilum Krúsjeffs. Og rússnesk blöð, sem tengdasonurinn hefur endurskapað, hafa séð, að það getur verið heppilegt að gera stjórnmálafréttir dagsins ofurlitið „mann legri“, því að æ oftar birtast myndir af Krúsjeff, þar sem hann er að leika við barnabörnin sín eða hvíla sig á því að róa á Svartahafinu eða snöggklæddur í badminton eða billiard. ........— —................... Valdamenn Sovétríkjanna eru allt í einu orðnir mannlegir — og vafalaust er þetta einn liðurinn í baráttuaðferðum Krúsjeffs, en það þarf ekki að vera verra fyrir það. T ið hátíðahöldin og umræðurnar um tilraunabannið í Moskvu hafa marg- ir blaðamenn Vesturlanda fengið tæki- færi til að gægjast bak við tjöldin hjá Krúsjeff og kynnast nánar fjölskyldulíf- inu, sem lifað er að baki þessari fram- hlið, er að heiminum snýr. Þeir hafa meðal annars komizt að því, að þetta alkunna húsnæðisvandamál, sem er svo örðugt viðureignar í Sovét- ríkjunum, háir ekki Krúsjeff, svo að telj andi sé. Forsætisráðherrann ræður yfir hvorki meira né minna en fimm eða sex mismunandi íbúðum — auk skrif- stofunnar í Kreml og kjarnorkuvarinnar aðalstöðvar, sem er rétt utan við Moskvu og getur hýst 200 manns. E, litt margtuggið kjarnyrði Krús- jeffs hljóðar þannig: „Viljirðu fram- kvæma eitthvað, þá taktu daginn snemma". Hann er að því leyti ólíkur Stalín, sem hóf raunverulega vinnu sína um miðnæturskeið og brenndi ljósi í Kreml alla nóttina, að hann er kominn í skrifstofu sína klukkan- níu stundvís- lega, en það er sama skrifstofan, sem Stalín hafði á sínum tíma. Á hálfhringlaga borðinu, sem za.est ber á í stofunni, liggja nokkrir yddir blýant- ar, og þar standa nokkur glös og 2—3 flöskur af uppáhalds-gosdrykk Krúsjeffs, „Borshom". Þrír skjalabunkar bíða hans — í einum eru skjöl varðandi miðstjórn- ina, í öðrum ríkisstjórnina, en í hinum þriðja skjöl frá sambandsríkjaskrifstof- unni. Þó opnar Krúsjeff fyrst möppu, sem hefur inni að halda daglegar skýrsl ur og greinargerðir og langar þýddar greinar úr erlendum blöðum og fréttir úr kílómetralöngum fréttaræmum frá fiéttariturum TASS, hvar af minnsti hlutinn kemst nokkurntíma í sovétrússn esk blöð. Krúsjeff segir sjálfur: „Ég les fyrst og fremst erlend blöð (þ. e. í þýðingum aðstoðarmanna hans), því að ég vil kynna mér álit og skrif þeirra um okk- ur. í okkar eigin blöðum — það verð ég því miður að játa —er svo mikið af leiðinlegu efni, að ég á bágt með að finna nokkuð, sem vekur áhuga minn. Maður er að blaða í þessu og á næsta augnabliki veit maður ekkert, hvað maður hefur verið að lesa....“ Og þetta segir hann, þrátt fyrir allar tilraunir tengdasonarins til að hressa upp á blöð- in — ízvestia, að minnsta kostL l\ rdegis fæst Krúsjeff mestmegnis við skrifstofuvinnu og viðtöl við nánustu samverkamenn sína, — en eftir hádegis- verð tekur hann móti erlendum embætt- ismönnum, sendiherrum, flokksforingj- um o. s. frv. Ef hann á að taka þátt í einhverri opinberri samkomu, fara í leik hús eða þess háttar, er hann um kyrrt í Moskvu, þar sem hann hefur íbúð til umráða í nágrenni Arbat-götunnar, Að- setur nr. 1. En þó vill hann heldur haf- ast við í öðru hvoru stórhýsinu, sem hann ræður yfir í útjaðri Moskvu. Hann ekur þangað í stórum „Tschaiko“-skrautbíl, og stundum — en ekki nærri alltaf — fylgir honum líf- vörður. Meira að segja er Krúsjeff oft einn í vagninum, og hafi hann eina tvo llfverði með sér, er það ósjaldan að þeir sitji í fína aftursætinu, en hann sjálfur hjá bílstjóranum. í tíð Stalíns voiu veg- irnir, sem hann átti að fara um, alltaf lckaðir, og oft fóru þrjár eins útlítandi bílalestir frá Kreml, sín út um hvert hlið, til þess að villa fyrir væntanlegum árásarmönnum — en síkar varúðarráð- stafanir notar Krúsjeff ekkL Framh. á bls. 13. Framaferill Krúsjeffs 1894. Fæddur Krúsjeff. Sonur járn- smiðs í úkraínska þorpinu Kalinovka, var smaladrengur á bernskuárum, lærði járnsmíði og gerðist lásaismiður. Fékk litla skólagöngu. 1911. Fór að heiman, vann í kola- námum í Donets og keppti einu sinni í knattspyrnu við enskt lið. 1918. Gekk í kommúnistaflokkinn, barðist í borgarastyrjöldinni, gerðist áróðursmaður fyrir flokkinn. 1922. Gerðist nemandi í „flokks- skóla“ í Ukraínu, lærði landbúnað og kvæntist skólasystur sinni, sem seinna dó. 1929. Kom til Moskvu sem nemandi í iðnaðarháskólanum. 1931. Geirðist starfsmaður flokksins í Moskvu- 1934. ^Osinn í æðstaráðið og var einn af. forgangsmönnum í hreinsun- unum. 1938. Sendur til Úkraínu til að stjórna hreinsunum meðal starfs- manna flokksins. Kvæntist Nínu Nikolajevnu, kennslukonu. 1941. Fékk herforingjatign og tók þátt í skipulagningu varnar Stalín- grad. 1944. Varð flokksleiðtogi í Úkraínu. 1949. Hvarf aftur til Moskvu og varð framkvæmdastjóri æðstaráðsins. 1953. Varð flokksforingi, skömmu eftir lát Stalíns, og stjórnaði ásamt Malenkov uppgjörinu við Bería og leynilögreglu hans. 1955. Ruddi með aðstoð hersins og flokksins Malenkov úr vegi og gerði Búlganín að forsætisráðherra. 1956. Sendi Rauða herinn til Ung- verjalands og bældi niður uppreisn þjóðarinnar. 1957. Fjarlægði með aðstoð hersins og Sjukovs marskálks andstæðinga sína, sem síðar voru nefndir „ flokks- fjendurnir“ (Molotov, Kaganovitsj o. fl.) og losaði sig síðan við Sjukov. 1958. Varð forsætisráðherra eftir að hafa rutt Búlganín úr vegi. Er nú æðsti maður ríkisstjórnar Sovétríkj- anna og kommúnistaflokks þeirra. Utgefandl: Framkv.stj.: Kitstjórar: Auglýslngar: Ritstjórn: Hi Arvakur, ReykjavDc. Siglús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Viaur. Matthfas Johannessen. Eyjólfur KonráS Jónsson. Árnl Garðar Kristinsson. ASalstræti S. Símí 22480. 2 LESBOK MORGUNBLAÐSINS 26. tölublað 1963

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.