Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1963, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1963, Qupperneq 16
ÍJr Krabbameinsstofnuninni í Silver Springr: Dr. Stuart M. Seesoms, varafor- seti heilbrigðisstofnunar ríkisins, athugar sýnishom af þúsundum efna, sem prófuð era árlega í Bandarikjunum, til að athuga hugsanlegt gagn af þeim gegn krabbameini. mein hafa verið þekktar árum saman, sem sé skurðaðgerðir og geislun. öll tæki til -þessara aðgerða hafa verið stórlega umbætt á síðustu árum- Skurðaðgerð — sem er langelzta aðferðin — er notuð yið krabbameini á þann hátt, að meinið er skorið úr líkamanum. Geislun er í því fólgin að „brenna burt“ krabbameinsvöxt með röntgengeislum eða geislavirkum ísótópum, eða minnsta kosti lama hann þannig, að hann geti ekki vaxið meira. En hvortveggja þessara aðferða nær skammt, þegar um er að ræðajaabba meinsvökt, sem hefur breiðzt út um allan líkamann, eða er þannig stað- settur, að ekki er hægt að ná til hans með þessum aðferðum, án þess að vinna mein á mikilvægum líkams- hlutum. Það er fyrst og frems^jegn slíku krabbameini, sem þörfin a lyfj- um er brýn. Eftir því sem efnin, sem líkieg eru talin að geta læknað krabbamein eru sett saman og framleidd, eru þau send frá stofnuninni til hinna ýmsu rannsóknarstofa til undirbúningspróf- ana. Þessar fyrstu prófanir eru gerð- ar á krabbameinsfrumum, sem hafa verið framleiddar í rannsóknarstof- strangasta skilningi orðsins krabba- • meinslyf, heldur eru þau önnurhvor tegundin af „geislunarvara". Fyrri tegund þeirra er lyf, sem geta varið ósýkta hluta líkamans áföllum af geislum, svo að hægt er að nota meiri geislun en ella mundi á sjálft meinið. Síðari tegundin hefur þá verkun að gera meinið veikara fyrir eyðingu af völdum geislunar. TTilsvarandi rannsóknir á orsök- um krabbameins fara einnig fram í Bretaveldi. Það er ekki lengra siðan en í sl. mánuði, að brezka læknaráðið tilkynnti í ársskýrslu sinni, að ein or- sök krabbameins kynni að vera fund- in. Það er haldið, að tvær veirur, tegundirnar 12 og 18 af flokki, sem kallaður er adenovirus, geti valdið krabbameini. Tilraunir hafa sýnt, að ef þessum tveim tegundum er dælt í hamstra, geti þeir orsakað krabba- myndun. Segir skýrslan, að þarna sé á ferðinni nokkur vottur þess, að mannverur geti raunverulega smitazt af veirum, sem i sumum tilvikum geti valdið krabbameini. Samvinna vísindamanna í baráttunni við krabbamein Svo víðtækar eru tilraunimar til að finna meðal, sem læknað geti krabbamein, að sér- stök stofnun á vegum Bandaríkja stjómar (Cancer Chemotherapy National Service Centre) gerir nú tilraun til að samstilla starf- semi 700 vísindamanna um gjör- völl Bandaríkin. Vísindamönnun- um er skipað í 24 manna hópa, eftir stöðum eða sérgrein innan rannsóknanna, og þeir hafa nú sjálfviljugir gengið í þjónustu stofnunarinnar, en starfsemi hennar kostar um 33 milljónir dala á árL Miðstöðin, í Silver Spring, Mary- land, gerir heildaráætlun um alls- herjar-atlögu að sjúkdómnum, og sér um, að sömu tilraunirnar séu ekki gerðar á fleiri stöðum en einum, rannsakar og ber saman árangur til- rauna, sem eru gerðar af vísinda- mönnunum í allskonar umhverfi. Á hverju ári fær stofnunin skýrslur um 50.000 nýjar samsetningar gervi- efna, sem sérfræðingar eru að rann- saka, með tilliti til væntanlegs gildis þeirra gegn krabbameini. Tilraunirn- ar eru gerðar í háskólum, sjúkrahús- um, einka-rannsóknarstofum og öðr- um stofnunum, sem ekki eru á vegum stjórnarinnar, enda þótt stjórnin styðji stundum þessar rannsóknir, á einhvern hátL S íðan stofnunin komst á fót, 1955, hefur hún átt drjúgan þátt í all- miklum framförum í að setja saman meðöl, sem geta bætt liðan krabba- meinssjúkíinga og lengt líf þeirra. Meðal eitt, þekkt undir nafninu methotrexat, hefur verið notað með miklum árangri við mjög sjaldgæfu krabbameini, choriocarcinoma, sem kemur aðeins fyrir hjá konum. Margir sárþjáðir sjúklingar hafa verið lif- andi og hressir, fimm árum eftir að lyfið hefur "verið notað við þá. Aðrar aðferðir til að lækna krabba- Krabbamein tekin ur musum, sem hafa fengið hin nýju meðul, eru at- huguð til að sannprófa verkanir með- alanna. um. Ef þessar frumtilraunir heppnast vel, er tekið næsta stigið, sem sé til- raunir á dýrum. Með dýratilraunum geta vísinda- mennirnir komizt að því, hvaða áhrif efnin geta haft á lifandi krabbamein af ýmsu tagi, og auk þess, hvaða aukaverkanir þau geti haft og hvaða skammtar séu áhrifamestir. Það er ekki fyrr en eftir vandlegar tilraunir á þessu öðru stigi, sem at- huganir eru gerðar á áhrifum lyfsins á menn, og þá fyrst um sinn aðeins þeir menn notaðir T?ið tilraunirnar, sem allar aðrar aðferðir hafa reynzt árangurslausar við. Aðeins eitt lyf af hverjum þúsund kemst á þetta til- raunastig og um það bil 160 lyf eru undir athugun í einu, í h.u.b. 150 sjúkrahúsum, sem hafa'' sjálfviljuga samvinnu við stofnunina. E in vænlegasta aðferð til að láta lyfjalækningu koma að gagni er sú að beita henni í sambandi við skurðlækningar eða geislun. Árangur slíkrar aðferðar skilst bezt í sam- bandi við aðgerð á brjóstkrabba. Sjúkdómurinn tók sig upp hjá um það bil öðrurri hverjum sjúklingi, sem skurðaðgerð var framin á, en aðeins hjá fjórða hverjum þeirra, sem hlutu lyflækningu í sambandi við skuiðað- gerð. Efnablöndur, sem notaðar eru við slíkar skurðaðgerðir eyða krabbafrum um, sem kynnu að hafa losnað frá aðalmeininu, eða orðið eftir í líkam- anum, eftir að aðalmeinið var fjar- lægt: Efni, sem notuð eru þannig í sam- bandi við skurðaðgerðir, eru ekki í HAGALAGÐAR ÞRÍB BÆNDUR Á FORSETA- STÓLUM. Alþingi kom saman 15. febr. og starfaði til 6. júní. Var það hið lang- sætnasta Alþingi, sem enn hafði verið háð. Forsetar þingsins voru: í sam- einuðu þingi Einar á Eyrarlandi, í efri deild Guðmundur í Ási og í neðri deild Jörundur í Skálholti. Sátu þannig í fyrsta skipti í sögu Alþingis bændur á öllum þrem for- setastólum þingsins. (Árb. Reykjavikur 1932). HOLD NU FAST. . . Kláus hét vinnumaður Bjama Thorarensen, er hann bjó í Gufunesi. Kláus var skoplegur maður, ákaflega geðgóður, en smáskrýtinn, skrækur í máii, en afar hár og gildur. Hann hafði þann kost, sem er ákaflega mikils virði fyrir vinnumann, að hann varð aldrei drukkinn, aðeins „saddur“, hversu mikið, sem hann drakk. Einu sinni gaf Bjarni honum 30 glös af ósviknu púnsi og þegar hann bauð honum það 31, svaraði Kláus óskup stilltur: „Nú er ég sadd- ur húsbóndi góður“. Einu sinni talaði Kláus dönsku. Hann fór í myrkri með Bjarna yfir mómýri og datt ofan í mógröf fulla af vatni. Bjarni rétti honum hönd til að hjálpa honum upp úr. Þá sagði Kláus: „Hold nu fast assesor Bjarni." Bjarni spurði hann hvar hann hefði lært að tala dönsku. Þá svaraði Kláus: „Það kom einhvernveginn yfir mig í hættunni“ Kláus talaði aldrei dönsku endranær, hvorki fyrr né síðar. Um Kláus orti Bjarni m.a. þessa vísu: Kláus gamli karlinn stirðnar. Kunni móti elli spyrna 1 enn í heimi ekkert fólk. Langstæð belja heitir Hyrna* á hrygginn svört og fótlaus sirna úr henni þarf hann hafa mjólk. *) Brennivínstunna.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.