Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1966, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1966, Síða 9
Kúlfaielli Með lestamönnum, sem komu úr kaupstaðarferðinni ut- an a£ Eyrarbakka vorið 1868, fékk prófastur Vestur-Skaftfellinga, sr. Jón Sigurðsson á Mýrum í Álftaveri, svohljóðandi bréf frá biskupinum, dr. Pétri Péturssyni: kirkju og skráð alla breytingar, sem urðu á kirkjuhúsinu sjálíu og munum þess. En engu að síður má ætla, að hann hafi brugðizt vel við þessum til- mælum hr. biskupsins. Svo mikið er víst, að hann gefur sér góðan tíma til að rannsaka þetta mál til hlítar. Það er ekki fyrr en rúmum þremur árum ur álitizt kirkjunni til prýðis, þá vil ég hér með leita leyfis yðar til að frá- skrifa þennan forngrip kirkjunnar og senda hann hinu íslenzka forngripa- safni í Reykjavík, jafnvel þó að ekki líti út fyrir að muni verða fyrir bráð- um skemmdum þar sem hann er nú.“ Biskupsleyfið var auðfengið og í vís- itazíugerð sinni næsta sumar, þ. 23. ágúst, telur prófastur skrúða og áhöld Kálfafellskirkju þann sama og áður, en „Lítið krossmark, fóðrað með gylltu látúni, sem lengi hefur fylgt kirkj- unni, er nú fráskrifað henni sam- Krossinn frá Kálfafelli í „Þér munuð, hr. prófastur, ekki síður en ég, finna til þess hve hörmu lega til hefur gengið með ýmsa forngripi kirkna hér á landi, sem fyrir afskiptaleysi og vanhirðingu annaðhvort hafa skemmzt og með tímanum liðið undir lok eða jafn- vel á stundum verið sendir út úr landinu. Til þess, ef mögulegt væri, að koma í veg fyrir þetta eftirleiðis og vernda hið litla, sem eftir er af þess konar munum, vil ég þén- ustusamlega biðja yður að áminna prestana í yðar prófastsdæmi um að hirða vel alla fomgripi og forn- aldarleifar, er fylgja kirkjum þeirra, og taka þeim alvarlega vara fyrir að senda nokkurn þess konar hlut af landi burt, hvort heldur það eru forn skjöl eða annað. En sé það fyrirsjáanlegt, að einhver slíkur hlutur verði eigi varinn skemmd- um þar sem hann er, eða þér ótt- izt fyrir, að hann þannig muni líða undir lok, en álítið hann að öðm leyti kirkjunni hvorki þarflegan né henni til prýði, má leita leyfis míns til að fráskrifa hann kirkjunni ef hans er getið í gripaskrá hennar og til að senda hann hinu íslenzka forngripasafni, sem stofnað er hér í Re; /javík, en séu það forn skjöl og þeim sé nokkur hætta búin, eiga þau að sendast mér beinlínis fyrir yðar milligöngu svo að þau verði geymd við skjalasafn biskupsdæm- isins eins og ætlazt er til í umburð- arbréfi formanns míns frá 1. des- ember 1856. Að endingu bið ég yð- ur, hr. prófastur, að komast eftir því hjá prestum yðar og gefa sjálf- ur nákvæmlega gætur að því á yfir- reiðum yðar um prófastsdæmið hvort nokkrir þessir munir tilheyra kirkjunum, sem ekki er getið í gripa- skrá þeirra né annarsstaðar, og gefa mér skýrslu um það.“ P rófasturinn á Mýrum fór vit- anlega nærri um það, hvað kirkjurnar í Vestur-Skaftafellssýslu áttu af göml- um gripum. Þessi ár, sem hann var búinn að gegna prófastsstörfum, hafði hann kostgæfilega vísiterað hverja síðar sem hann sendir svar sitt. Það er á þá leið, að hann hafi ekki orðið var við neina forngripi eða fornaldarleif- ar í sinu umdæmi, nema í Kálfafells- kirkju. Þar segir hann, að sé lítið EFTIR SÉRA GÍSLA BRYNJÓLFSSON krossmark af tré, fóðrað með gylltu látúni, sem líti út fyrir að vera all- gamalt, þó ekki sjáist ártal á því, „þar eð gyllingin er nú máð orðin af kross- marki þessu og það því ekki getur leng- Þjóðminjasafn inu. kvæmt biskupbréfi 27. des. f.á. og verður sent forngripasafni í Reykja- vík.“ Þar með var lokið hlutverkr helgi- tákns í trúarlífi Fljótshverfinga. eim, sem þetta ritar, var nokk- ur forvitni á að Sjá þennan gamla kirkjugrip, sem um svo langan aldur hafði prýtt helgidóminn á annexíunni Kálfafelli. En þegar farið var að leita að krossinum á Þjóðminjasafni, ætlaði það ekki að ganga greitt. Og í byrjun leit svo út, sem þessi ákvörðun pró- fastsins á Mýrum, að senda krossinn suður á Þjóðminjasafn, hefði farizt fyr- ir, eins og svo margar fyrirætlanir, sem ekki eru framkvæmdar strax held- ur látnar dragast úr hömlu. En við nánari eftirgrennslan kom f ljós hvernig í málinu lá. Þegar Matthías Þórðarson tók við Þjóð minjasafninu, mun hann hafa fundið þær einar upplýsingar um krossinn, að hann væri frá Jóni Sigurðssyni á Mýrum, en ekki tilgreint nánar hvar sá staður væri. Nú er einn bær á landinu með þessu nafni, kirkjustaður — Mýrar í Dýrafirði. Þaðan heldur Matthías grip- inn til safnsins kominn og telur hann „skrúðgöngukross frá Mýrum í Dýra- firði“ (nr. 911). Var hann settur á skaft og honum komið fyrir hægra megin við altari í „kirkjunni“ á Safna- hússloftinu. Lýsir Matthías honum ít- arlega í bók sinni um Þjóðmenjasafnið, sem kom út í Reykjavík 1914. Krossinn er „lagður gylltum eirþynnum með pressuðu verki og með silfurkringlum með merkj- um Krists og guðspjallamannanna, Kristsmerki er lamb (Guðs lamb, sbr. Opb. og orð Jóh. skírara: Sjá lamb Guðs er ber syndir heimsins). Það held- ur á fána á stöng og er kross á stang- arendanum. Merki Jóhannesar er örn, merki Mattheusar vængjaður maður, merki Markúsar vængjað ljón, merki Lúkasar vængjaður uxi. Þessar mynd- ir eru jafnan notaðar sem einkenni guðspjallamannanna og merkir manns- myndin þá jafnframt guðlega speki, ljónið guðlegt almætti, uxinn guðleg- an kraft og örninn guðlega hátign. Þessar verur eru meðal Gyðinga í fyrstu kerúbarnir eins og þeim er lýst í spádómsbók Esekíels og Opinberunar- bókinni. Að líkindum eiga kerúbarnir 'kyn sitt að rekja til hinna fornas- sýrísku dýramynda, sem eru með mannshöfði, ljónsbúk, uxafótum og arnarvængjum, og kynjadýrin sem hin forna þjóðsaga í Heimskringlu segir að sendimaður Haraldar Danakonungs Gormssonar hafi séð fara á móti sér, er hann vildi leita á land (landvætt- ir íslands), dreki, fugl, griðungur og bergrisi, virðast bein afkvæmi ker- úbanna.“ Þegar Þjóðminjasafnið fluttist í sín nýju húsakynni var krossinum komið fyrir á skápnum með höklum, kórkápum og öðrum kirkjubúnaði við einn vegg- inn í ,,Maríukirkjunni“. Þar stendur hann við hliðina á kórkápu Jóns Ara- sonar. Fleiri orðum skal ekki farið um þenn- an helgigöngukross. Þessar línur eru ritaðar til þess að vekja athygli safn- gesta á þessum fagra kirkjugripi, sem í hartnær 'heila öld hefur beðið eftir sínu rétta upprunaskírteini á Þjóð- minjasafni. G. Br. STOKUR Eftir Kristján Helgason ÞORRI Oft er lýsing á þér sú: ískur frosts og hríða. Þess skal getið, þú varst nú þíðleg dýrðarblíða. GÓA Tíminn yrkir ljóðaljóð, líf er hagfelt stundum. Nú er frúin Góa góð með gull í báðum mundum. 3. apríl 1966 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.