Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1966, Síða 2
rS\J IP^
MJ NIL
JP ulie Christie heitir hún, stúlk-
an, sem hefur aflað sér heimsfrægð
ar á skemmri tíma en dæmi munu
* til. Nafn hennar, svo notað sé orða-
lag þeirra, sem mest fjalla um kvik
myndaleikara, „ljómar nú skærar á
stjömuhimninum“ en nokkuð annað
Ekki sízt eftir að hún fór með aðal-
hlutverkið í myndinni „Darling“ en
það aflaði henni nýs aðdáenda-
hóps um heim allan.
í einni af mörgum greinmn um
Julie Christie segir: „Falleg er hún
— auðvitað. Þó ekki fallegri en
margar aðrar ungar stúlkur. Yfir
andlitinu er birta, svipurinn er sterk
ur og síbreytilegur. Hún hefur há
kinnbein, fallegan munn og hárið
er skemmtilega ógreitt. Þá hefur
hún til að bera mikinn kynþokka,
þótt þúsundir annarrar stúlkna
standist samanburð við hana á því
sviði.“
Sennilega gefur þessi lýsing þó
ekki fullnægjandi skýringu á því,
hvers vegna Julie Christie er jafn
dáð og raun ber vitni.
ICvikmyndagagnrýnendur í New
York kusu hana beztu kvikmyndaleik-
konu liðins árs. Brezka kvikmynda-
akademían hefur veitt henni verðlaun
fyrir bezta leik í aðalhlutverki, en þá
er ónefnt, að fyrir leik sinn í áður-
nefndri mynd, „Darling", hlaut hún
„Oscar-verðlaunin“ í Hollywood. Það
er því alls ekki ofsögum sagt, að eng-
inn núlifandi kvikmyndaleikari hafi
fengið jafn mikla viðurkenningu fyrir
starf sitt á einu ári.
Stjórnandinn John Schlesinger, sem
talinn er í hópi hæfileikamestu manna
í sinni stétt á Bretlandseyjum, er tal-
» inn hafa hjálpað Julie Christie mjög
á ferli hennar. Hann setti á svið mynd-
ina „Billy Liar“, en í þeirri mynd
fór hún með veigamikið hlutverk. Er
hann tók að sér töku myndarinnar „Dar-
ling“, var hann ekki í neinum vafa um,
hver það væri, sem taka ætti að sér
hlutverk Diana Scott. Mjög margir eru
þeirrar skoðunar, að það hlutverk sé í
hópi þeirra erfiðustu, sem nokkru sinni
hafa verið samin. Schlesinger áleit, að
enginn væri því hlutverki betur vaxinn
en Christie.
I því tilefni lét hann eftirfarandi
skoðun í ljós urn leikkonuna: „Ég þekki
enga unga leikkonu, sem hefur til að
bera alla þá hæfileika, sem nauðsyn-
legir eru, nema Julie Christie. Andlit
hennar er sannkallaður sálarspegill. Við-
brögð hennar við aðstæðum eru ein-
stök. Hún hefur yfir að ráða meiri
túlkunarhæfileikum en nokkur önnur
leikkona, sem ég hef séð. Ferill Julie
á eftir að verða sérstakur þáttur í sögu
kvikmyndanna".
Sá, sem fór með aðalhlutverkið á
móti Julie Christie í „Darling", Dirk
Bogarde, hefur heldur ekki verið spar
á hól: „Þegar leikið er á móti henni,
er engu líkara en raunveruleikinn hafi
náð yfirhöndinni. Þannig á að leika. Hún
er svo góð leikkona, að það gleymist,
að hún er leikkona".
J[ ulie Christie er fædd í Assam á
Indlandi, en faðir hennar var teekru-
eigandi þar. Til Englands var hún send
til náms, en hún hætti skólanámi 16 ára
g'ömul, og lýsti því þá yfir, að hún
ætlaði að „leggja stund á listir“ í París.
Þar lærði hún frönsku, en málanám er
ekki talið hafa orðið neinum að fjör-
tjóni enn. Eftir nokkra dvöl í Frakk-
landi hélt hún aftur til Englands, og
settist þá á skólabekk í „Central School
of Speech Training and Dramatic Art“.
Er hún var eitt sinn að því spurð
hvað ráðið hefði því, að hún gekk í
þennan skóla, sagði hún: „Ég vissi hvað
ég vildi“. Hins vegar vakti hún fyrst
á sér athygli með því að gera sér far
um að líkjast Brigitte Bardot. Það
tókst svo vel, að athygli var á því
vakin, að stúlkan hefði hæfileika til að
bera. Einkum þó og sér í lagi, þegar
haft er í huga, að hún líktist B. B. alls
ekki.
Þegar hér var komið sögu neitaði
Julie Christie að taka við fé eða þiggja
á annan hátt stuðning foreldra sinna.
Því fór svo, að hún varð að lifa því
sem næst á „brauði einu saman“. Eftir
þriggja ára setu í skólanum fékk hún
þó tækifæri til að reyna sig hjá Frinton
Repertory Company. Þar náði hún ekki
miklum árangri. Hún vakti heldur ekki
mikla athygli er hún kom fyrst fram
í brezku sjónvarpi. Síðar fékk hún ýmis
smáhlutverk í kvikmyndum. Þá benti
ekkert til þess, að Julie Christie hefði
til að bera þá hæfileika sem síðar komu
í ljós. Það, sem að síðustu réð úrslit-
um, var, að hún er ákaflega viljasterk.
Hún hafði alltaf þá trú, að henni myndi
takast það, sem hún hafði ætlað sér.
Takmark hennar var að verða leikkona,
viðurkennd leikkona hvað sem það
kostaði.
Tækifærið fékk hún hjá John Schles-
inger. Hann litaðist þá um eftir ungri
óþekktri leikkonu, sem tekið gæti að
sér hlutverkið í „Billy Liar“. 1
raun og veru hafði hann ákveðið að
velja allt aðra stúlku til að taka að sér
hlutverkið, Topsy Jane. Þá gerðist það,
sem oft hefur komið fyrir áður. Topsy
Jane veiktist, og Schlesinger greip til
Christie á síðustu stundu.
A þeirri stundu voru örlög hennar
ráðin. Julie Christie vakti gífurlega
athygli, bæði í hópi áhorfenda og gagn-
rýnenda. Hún var þekkt á skömmum
tíma.
Margir hafa reynt að gera grein fyrir
því, hvað það er, sem er svo sérstætt
í fari Julie Christie. Þeir eru ófáir, sem
hafa haldið því fram, að það hafi mestu
ráðið, hve eðlileg hún er í allri fram-
komu, hve vel hún líti út á hvíta
tjaldinu og hve mikinn kynþokka hún
hafi til að bera. Til eru þeir, sem gengið
hafa svo langt, að þeir segja, að hún sé
líkust „lifandi hitabrúsa“.
Það mun þó reynast sanni næst, að
það, sem mestu hefur ráðið, er, hve vel
leikkonan hefur reynzt leikstjórum sín-
um, hve vel hún féll áhorfendum í geð
Framhald á bls. 14
Framk\:,stJ.: Slgíns Jónsson.
Hltstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vieur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arnl Garðar Kristinsson.
Kitstjórn: Aðalstræti 6. Sími 22480.
UlKclaníil: H.l Arvakur. Reykjavlk.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
27. nóvember 1966