Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1966, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1966, Síða 6
dag nokkurn fyrir byssukúlu skógar- varðarins. í leikritinu er enginn sið- rænn boðskapur — aðeins ljóðræn feg- urð með nútímatónlist, sem fellur vel að efninu. Leikurinn er að gerð bæði söngleikur, ballet og látbragðsleikur og er hið æskilegasta verkefni fyrir hug- myndaríkan leikstjóra. Búningar, sem Marcel Pokorny teiknaði, juku ævin- týrablæ leiksins, en mest mæddi á Jaro- slava Prochazkova, sem lék hlutverk hinnar ringluðu, en raddfögru tófu. Með beitingu ljósa margfölduðust imynduð tré og ávaxtaklasar gegnt bak- sviði, sem byggt var upp sem gráleitt lauf. Þannig birtist undursamlegt skóg- arlandslag með notkun mismunandi lita- tilbrigða í ljósum. í leikritinu „Skordýrin“ eftir bræð- urna Capek, sem sýnt var í þessu sama leikhúsi, var svipaðri tækni beitt í ljósa- og sviðsútbúnaði. Leikmynd var nær eingöngu tveir gríðarstórir, átt- hyrndir speglar, og var hvorum um sig skipt niður í um það bil fjörutíu fleti, sem að lögun minntu á hreistur. Þessir speglar hallast fram og inn yfir sviðið. Hringsviðið þar fyrir neðan var breikk- að um hálfan annan metra með fjöl, sem snúið er með handafli. Þessir tveir sviðshlutar eru þannig innbyrðis ótengdir og geta snúizt hver fyrir sig, og má með notkun þeirra ná meiri vídd í leikinn. Stóra hringsviðið er málað grænum, rauðum, bláum og gulum deplum, sem endur- speglast þegar sviðið snýst. í daufu ljósi liggja skordýrin ósýnileg á sviðinu. f sterkara ljósi dansa þau í svipuðum ævintýrastíl og sjá má í leikriti Jana- ceks. Leikmyndina gerði Josef Svoboda — fremstur og hugmyndaríkastur tékkn- eskra leikmyndasmiða. „Skordýrin“, sem er fyrsta leikrit Karels Capeks, var sýnt í Stokkhólmi árið 1942 undir heitinu „í garði Drottins". Nýjasta leikhúsið í Prag — aðeins fárra ára gamalt — er rekið af Otomar Krejca og heitir Divadlo Za Branou — Leikhúsið við hliðið. Krejca var áður aðalleikstjóri við Þjóðleikhúsið, og það- an fylgdu honum tveir mjög hæfir leik- arar, Marie Tomasova og Jan Triska. Þetta nýja leikhús fær inni til bráða- birgða í leikhúsi Laterna Magika tvis- var í viku. Þar er nú verið að sýna ein- þáttunginn „Köttur á teinum“ eftir unga tékkneska leikritahöfundinn Josef Topol, og fjallar hann um óhamingju- sama ást tveggja ungra elskenda. Mjög erfitt er að sviðsetja svo vel sé tilfinn- ingaleg hvörf leiksins, en leikararnir tveir túlka á mjög trúverðugan hátt ein- manakennd ungu elskendanna, öryggis- leysi þeirra og kvíða fyrir því, er fram- tíðin kann að bera í skauti. Leikmynd- in er einnig hér unnin af Josef Svoboda (svo og í skemmtilega látbragðsleikn- um eftir Michel de Ghelderode, sem sýndur er á undan í upphafi þessa leik- hússkvölds við hliðið.) Þess má geta, að hann beitir spegilbrögðunum einnig í látbragðsleiknum „Grímurnar í Ostende“ eftir Ghelderode. Eg hef áður fjallað um Vaclav Havel, og fyrsta sjálfstæða verk hans, „Veizlan í garðinum", hefur þegar ver- ið sýnt í Stokkhólmi, en því miður var þýðingin slík, að orðsnilld Havels naut sín ekki til fulls. Næsta leikrit Havels, „Tilkynningin", sem er nú verið að sýna ásamt „Veizlunni í garðinum“, m.a. í eigin leikhúsi Havels, Balustrad- leikhúsinu, þar sem hann hefur „unnið sig upp“ úr starfi leiksviðsmanns í leik- ritahöfund. „Tilkynningin" er ekki síðri „Veizlunni í garðinum" að leikrænni byggingu og leiftrandi málsnilld, en það er ef til vill of bundið austur-evrópsk- um aðstæðum til þess að Vestur- Evrópubúar fái notið þess. Leikritið fjallar um þau vandræði, er hljótast af því að skriffinnar Stjórnarráðsins vilja taka upp nýtt tungumál, Ptydepe, inn- an Stjórnarráðsins, en það er óþekkt mál öllum, sem á þurfa að halda. Þriðja leikrit Havels, sem verður frumsýnt í Prag innan skamms, er blendingur af vísnasöng, revíukennd- um skemmtiatriðum, spakmælum og ýmsum atriðum eftir aðra höfunda. Titill: „Turtildúfa á villuvegum“. Leik- hússtjóri og aðalleikstjóri Balustrad- leikhússins, Jan Grossman, hefur samið tónlistina og ráðið allri sviðssetningu, þar sem hann notfærir sér tei'kningar og skopmyndir — á sama hátt og gert hefur verið árum saman á veitingahús- inu Viola, þar sem ljóðalestur með undirspili er fastur liður á kvölddagskrá og þar kom hugmyndin um „Turtildúf- una á villuvegum“ fyrst fram fyrir um það bil tveimur og hálfu ári. Þess má geta, að Viola er einn aðalvettvangur háðs og ádeilu, og á þessu ári hefur nýtt veitingahús, Kruttornet, fylgt í kjölfar- ið. I Kammar-leikhúsinu, sem að innan- verðu minnir helzt á fínan bíósal frá þriðja tugi aldarinnar, var verið að sýna „Rómulus rnikla" eftir Friedrich Diirrenmatt, og var Vaclav Vosca stór- kostlegur og grimmdarlegur í aðalhlut- verkinu. Sýningin var frábær — ekki eingöngu vegna fágaðs leiks, heldur einnig vegna leikmynda Jindrichs Duseks, sem voru algjörlega í stíi við óraunsæjan anda sjónleiksins. Sviðið var hálfhringur og umhverfis var hróflað upp þriggja hæða kumbalda úr trékössum, þar sem hænsni og þrettán fornar brjóstmyndir úr marmara trón- uðu hér og þar í ýmiss konar stelling- um. \ rlstæðuna fyrir hinum mikla list- ræna árangri tékkneskrar leikstarfsemi má trúlega rekja til hins nána sam- starfs frábærra leikmyndasmiða, svo sem Svobodas og Duseks ('báðir vinna jöfnum höndum við fleiri en eitt leik- hús eins og reyndar leikstjórarnir einn- ig)> og leikstjóra, og má þar nefna Grossman, Krejca og ekki sízt Alfred Radok, sem er ef til vill mestur snill- ingur þeirra allra. Hann stjórnar eigitt leikhúsi, og sviðssetningu hans á „Rómeó og Júlíu“ varð fræg handan Atlantshafsins. Allan tímann, sem æf- ingar stóðu yfir, voru vinnubrögð hans LEIÐRÉTTING Þau leiðu mistök urðu í seinna ljóði Þórunnar Guðmundsdóttur, „Gígagælu“, í Lesbókinni 13. nóv. að síðasta línan í öðru erindi af- lagaðist í prentun. Rétt er erindið þannig: Gjallrauðir innan í seiðmjúkum sveig, utan fagurflosgulir eins og draumsóley. kvikmynduð. Þriðji aðili í þessu sam- starfi er rithöfundahópurinn, og má þar nefna Havel, Klima, Topol, Smocek og Miroslav Hornicek, sem er elztur þeirra og sannkallaður galdramaður. Hann er allt í senn — leikhússtjóri, leikritahöf- undur, leikstjóri og aðalleikari. ÖRNEFNI Framhald af bls. 4 Þá þurftu menn í gamla daga að vita, hvað tímanum leið, þótt þeir ættu hvorki úr né klukkur. Sólin gekk þá sína leið, svo sem guð bauð henni, og menn merktu það af gangi hennar og stjarna, hvað orðið væri áliðið. í landi flestra fornra jarða eru ýmis eyktamörk, kenni leiti en af þeim merktu þeir stundir dagsins. Frá Selsundi á Rangárvöllum er Miðmorgiuishnúkur í háaustri, þá Dag-málagil, Hádegishnúkur, Núnklettar og MiðaftanshólL Ornefni eru til margra hluta nyt- samleg við rannsóknir á sögulegum efn- um, og geyma ómetanlegar en vandlesn ar heimildir um byggðarsöguna. AÖal- ból, Hof og Skógar eru ólíkt eldri jarðir og upphaflegri að öllu jafnaði en þær, sem hafa að síðara nafni í heiti sínu: -búð, -fjós, -gerði, -hlaða, -hjáleiga, -hús, -kot, -sel, -skemma, -stekkur, -stöðull, -tröð og -tún, — eða heita einungis slík- um nöfnum eins og Kot, Sel eða Tröð, þótt einstakar jarðir sem bera þau nöfn geti verið frá fyrsta skeiði landsbyggð- arinnar. Hér er um mikið efni að ræða sem Ólafur Lárusson hefur fjallað um manna bezt hér á landi til þessa. Cróður, veðurfar og dýralíf Byggðar- og menningarsaga okkar fs lendinga er að miklu leyti örnefnum skráð, en þau geyma einnig merkilegar heimildir um gróður, veðurfar og dýra- líf hér á landi. Það hefur verið blóm- legra um að litast, er Önundur bjó I Tröllaskógi á Rangárvöllum en síðar varð. Um aldir hefur þar ríkt auðnin ein. Langt mun síðan þytur asparinnar þagnaði á Espihóli og reynistóðið hætti að bærast í blænum á Reynistað. — Al- viðra, Illviðrahnúkur, Fannardalur, Kaldbakur, Vindheimar, Dynskógar, Sól lieimar og Sunnudalur birta að vísu eng- an veðurfræðilegan vísdóm, heldur öllu fremur raunsæi og draumhygð nafngef- enda. Og landið er ekki einungis skráð nöfnum búsmalans, heldur einnig þeirra dýrategunda, sem hér ríktu um aldir, áður en menn stigu á íslenzka strönd. Hér hafa rostungar bylt sér undan Romshvalanesi, geirfugl hreiðrað sig á útskerjum og ernir hlakkað yfir öllum ám og veiðivötnum. Hásæti íslenzka fuglakóngsins tróna nú auð um megin- hluta landsins. Hann átti sér gælunafnið lodda austur í Skaftafellssýslum, og kemur þar fram eins og víðar í þessum þáttum, að í örnefnum felast ýmis orð, sem eitt sinn voru algeng og augljós, þótt nú séu torráðin. Þannig var bjór eitt sinn algengt nafn á nautum og und- orn á eyktamarki. Þá hefur litarskyn okkar breytzt að því er virðist, frá þvl á söguöld. Frægir forfeður okkar skírðu blátærar bergvatnsár Svartár, en Svert- ingja nefndu þeir blámenn. Það er ekki ætlun mín að gera ís- lenzkum örnefnum nein viðhlítandi skiL Með ritsmíð þessari vil ég einungia benda mönnum á fjölbreytni örnefn- anna og heimildagildi þeirra. Ég hef orðið þess greinilega var bæði við kennslu og á ferðum um landið, að ör- nefnafræði er mörgum kærkominn fróð- leikur. Þar er um vísdóm að ræða, sem höfðar til þekkingar fjölda íslendinga. Hér er aðeins fitjað upp, en öðrum ætl- að að bæta við og botna. Sviðsmynd úr Skordýrunum. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 27. nóvember 1966

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.