Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1966, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1966, Side 8
Tvö merkileg hús sem Iðnaðarmannaiélagið reisti 27. nóvember 1966 Árni Öla: Úr sögu Reykjavíkur ar sögur fara af í Reykjavík. Og þaS var í raunirmi mjög eðlilegt að iðna'ðar- menn skylöu fyrstir verða til þess að stofna með sér félagsskap. Þeir voru fiestir „sigldir" og 'höfðu kynnzt „fag“- félögum ytra, hver í sinni grein, og vissu að samtök eru afl þeirra hluta sem gera skal. En hér kom ekki til greina, eins og þá stóð á, að stofna „fag“-félög, og þess vegna var stofnað eitt allsherjar- féiag iðnaðarmanna. Ýmsir erfiðleikar steðjuðu að félag- inu f.rá upphafi, og sá ef til vill einna verstur hve illt var að fá vi'ðunandi húsnæði til fundahalda. Þá voru engin samkomuhús í bænum, nema Klúbbur- inn. Fyrstu árin voru fundir félagsins í gömlu prentsmiðj unni í Aðalstræti, hjá Einari Þórðarsyni, en síðan um nokk ur ár í húsi Sigfúsar Eymundssonar við Lækjargötu. Um eitt skeið voru fund- irnir haldnir í húsi W. Ó. Breiðfjörðs við Aðalstræti. En þegar félagið var tíu ára fékk það inni í Borgarasalnum í Hegningarihúsinu, og var þar um nær 20 ára skeið. A þessum tíma höfðu ýmis félög verið stofnuð í bænum, og þau áttu öll vfð sömu erfiðleika að stríða. Uim það segir Knud Zimsen svo í minningum sínum: „Reynslan hafði sýnt, að þau félög, sem þurftu að eiga það undir náð annara að fá inni kvöld og kvöld, áttu erfitt uppdráttar og urðu sjaldnast langlíf". Vegna þessa var farið að tala um það í alvöru, að Iðnaðarmannafélagið kæmi sér upp eigin samkomuhúsi og fundarstað. Góðtemplarareglan, sem stofnuð var hér 1885, hafði séð nauð- syn þess að koma sér upp eigin húsi, og vann það til að gera uppfyllingu í tjörnina sunnan við Aiþingishússgarð- inn og fram þangað er Vonarstræti var fyrirhugaður staður, til þess að fá lóð undir húsið; þetta samkomuhús var reist árið 1887. Svo var það á fundi í Iðnaðarmanna- félaginu 1. febrúar 1891, að Matthías Iðnaðarmannahúsið, öðru nafni Iðnó. hver þóttist eiga nóg með sjálfan sig. Lítið hafði brytt á samtökum eða félags- skap fram að þeim tíma, nema þá helzt til hins verra, svo sem eins og stofnun drykkjuklúbbanna, og samtökum kaup- manna um að hafa lágt verð á íslenzk- um vörrnn, en hátt verð á hinum út- lendu. En svo var Iðnaðarmannafélagið stofn að, fyrst allra þeirra félaga, sem nokkr- Matthíasson, sem þá var formaður fé- lagsins, bar fram tillögu um, að félag- ið reisti samkomuhús fyrir sig. Féllust menn á þetta og var samiþykkt að hefja þegar fjársöfnun til húsbyggingar og skyldi ráðizt í byggingu þegar 4000 kr. væri fengnar. A þessu varð þó alllangur, dráttur og var það ekki fyrr en í des- ember 1893, að Magnús Benjamínsson bar fram tillögu um að félagið óskaði eftir að fá útmælt svæði í tjörninni til uppfyllingar undir hús sitt. Var það s aga lærðra iðnaðarmanna hér í Reykjavík hefst með Bjarna Lundborg aldamótaárið 1800. Bjarrd var sonur Guðmundar Runólfs- sonar sýslumanns í Gullbringu- sýslu. Fór hann ungur til Kaup- mannahafnar og nam þar járnsmíð- ar. Kom svo hingað árið 1799 og fékk leyfi að setjast að í Reykjavík, stunda þar jámsmíðar og kenna öðrum, Árið eftir reisti hann sér torfbæ austur af dómkirkjunni og var bærinn nefndur „Klejnsmedens Hus“ eða aðeins „Smedens Hus“. Þarna hóf Bjarni svo atvinnu sína og hafði nokkra lærlinga. En hann undi ekki hér og hvarf af landi brott 1807. Seinna (um 1820) lét Sigríð- ur Hansen, ekkja frá Básendum, reisa Htið timburhús í stað torf- bæjar Bjarna, og er það nú komið að Árbæ og gengur undir nafninu „Smiðshúsið“. Margir íslendingar höfðu siglt áður ti'l útlanda til þess að læra þar „hand- verk“. Má þar meðal annars minnast á, að Hallgrímur skáld Pétursson var við járnsmíðanám í Kaupmannahöfn. Sumir 'lærðu trésmíðar og málmsmíðar, húsa- smíðar og steinsmíðar. En Bjarni var sá fyrsti sem settist að í Reykjavík og fékk leyfi til þess að kenna öðrum sína iðn- grein. Síðan fjölgaði lærðum handverks- mönnum smátt og smátt. Allir voru þeir „sigldir" og hiöí'ðu stundað nám í mis- munandi iðngreinum. Þeir höfðu einnig kvnnzt því, að erlendis stofnuðu iðnað- armenn til félagsskapar með sér. En hér átti slik félagsstofnun þó langt í land. Það var ekki fyrr en 67 árum eftir að Bjarni Lundiborg settist hér að sem fyrsti lærður iðnaðarmaður, að hér var stofnað „Handiðnaðarmannafélagið í Reykjarwík", og er tali'ð að Sigfús Ey- nmndsson hafi verið aðalhvatamaður þess. Stofnendiur voru 31 og segir svp um stofnun félagsins að tilgangur þess sé „að koma upp duglegum handíða- mönnum, efla og styrkja samheldni með al handiðnamanna á íslandi, og innlent iðnaðarlíf taki framförum, og ennfrem- ur að styðja að gagnlegum og þjóðleg- um fyrirtækjium. Meðal stofnenda má nefna þessa: Sigfús Eymundsson Ijós- myndara, Einar Þórðarson prentara, Einar Jónsson snikkara, Jónas Helgason járnsmið, Árna Gíslason leturgrafara, Friðrik Guðmundsson bókbindara, Egil Jónsson bókbindara, Ólaf Ólafsson söðlasmið, Teit Finnbogason járnsmið og Jakob Sveinsson húsasmið. En heiðurs- félagar urðu fljótlega þeir Hilmar Fin- sen landshöfðingi, Árni Thorsteinsson landfógeti, Pétur Guðjohnsen organ- leikari og Heigi E. Helgason skólastjóri. Hefir það átt að vekja álit og traust á félaginu að hafa svo glæsilegan hióp heiðursfélaga. Félagið var stofnað 3. febrúar 1867 og á því hundrað ára afmæli í vetur. Er það elzta starfandi félag í höfuðborg- inni. En nafni þess var breytt 6. mr.rz 1882 og heitir iþað síðan „Iðnaðarmanna- félagið í Reykjavík." Hér ver'ður ekki reynt að rekja sögu félagsins, heldur aðeins minnzt á, hvernig það hefir efnt heit sitt „að styðja að gagnlegum og þjóðlegum fyr- irtækjum". Má þá fyrst minnast á, að félagið lét gera Mkneskju Igólfs Arnarsonar, þá er stendur á Arnarhóli. Líkneskjan var af- hjúpuð með mikilU viðhöfn 24. febrúar 1924 og við þá athöfn mælti Jón Hall- dórsson trésmíðameistari á þessa leið: „Háttvirta ríkisstjórn! Ég afhendi yður nú þessa mynd frá Iðnaðarmanna- félagi Reykjavíkur, þessu landi og þess- ari þjóð til eignar og umráða. Geri'ð svo vel að taka á móti henni, verndið hana frá árásum eyðileggingarinnar, að svo miklu leyti, sem í yðar valdi stend- sinn svip á elzta hluta borgarinnar og sé orðinn óaðskiljanlegur hluti hennar. En svo eru einnig hér í elzta hluta borgarinnar tvö hús, sem rðnaðarmanna félagið hefir reist. Þetta voru stórhýsi á sínum tíma, og báru vott um stórhug og framsýni þeirra manna, er reistu þau. Þessi tvö hús hafa hvort á sinn hátt haft ómetanlega þýðingu fyrir Reykjavíkur- borg. En nú er hlutverkum þeirra senn lokið. Þau munu hverfa áður en langt um líður. Nú hefir framvindan skapað xneiri stórhug en áður var. Enginn efi er á því, að þessi tvö hús hafa sitt á hvorn hátt stuðlað að því að efla þann stórhug, og hafa ef til vill með því orðið sjálfum sér að fótakefli. En ekki má gkyma því að minnast þeirra áður en þau hverfa oss sjónum. Leikhúsið „Iðnó" F élagshyggja mátti heita óþekkt hugtak í Reykjavík fyrir einni öld. — Menn urðu að vera sjálfum sér nógir og ur. Hins sama bið ég alla, fjær og nær, borna og óborna um öll ókomin ár“. Mynd Ingólís er því eign alþjóðar, en líklegt er, að í hjarta sinu finnist sumum Reykvíkingum að þeir eigi meira en bróðurpartimi í henni, þar sem hún táknar fyrsta óðalsbóndann í Reykja- vík, þvd að þeim finnst sem „andi hans tignarhár" svífi hér stöðugt yfir borg- inni og heill borgarbúa. Og engum bland ast hugur um, að mynd Ingólfs setji 8 LESBÓK MORGUNBLÁÐSINS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.