Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1967, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1967, Qupperneq 5
Bezci lágfiðluieikari í heimi, Lionel Tertis, níræður Eftir Atla Heimi Sveinsson Sú kynslóð tónlistarmanna, sem setti mestan svip á tónlistarlíf á fyrra belmingi þessar- ar aldar, er nú óðum að hverfa. Af ihópi hinna klassísku tónskálda 20. aldar lifir Strawinsky einn ennlþá, og af þeim hljóðfærasnillingum sem mest voru dáðir, eru nú enn á lífi sellóleikarinn frægi Casals og enski ilágfiðl'uieikarinn Lionel Tertis. Flestir vinir og samstarfsmenn þessara manna eru nú komnir undir græna torfu, og aSrir komnir í þeirra stað. Fyrir skömmu áttu báðir þessir snill- ingar, sem í dag virðast allt að því þjóð- sagnapersónur, níræðisafmæli. Þessi fáu orð sem hér fara á eftir, fjalla að- allega um annan þessara stónfrægu sniilinga: hinn brezka lágfiðluleikara Lionel Tertis. F erill hans er að því leyti frá- brugðinn annarra, að hljóðfæri hans, lág- fiðlan, eða bratsinn, var fyrir hans daga hálfgerð „öskubuska" meðal strokhljóð- færanna, og það var ekki hvað sízt hon- um að þakka, að þetta fallega hljóðfæri, sem sameinar á ýmsan hátt ágætustu kosti fiðlunnar og sellósins, skuli nú skipa þann sess sem því ber í fjölskyldu strokhljóðfæranna. Bæði lék Tertis betur á þetta hljóðfæri en áður hafði þekkzt, agaði og ól upp kynslóðir frá- bærra lágtfiðluleikara, og var ötull og ýtinn áróðua-smaður fyrir þetta hljóð- færi, sem hann helgaði líf sitt. Lionel Tertis var sonur rúmenskra og pólskra innflytjenda af gyðingaættum og fæddist hinn 29. desemlber 1676. Tónlist- arhæfileikar hans komu snemma í Ijós, og þrettán ára gamall fór hann að heim- an og vann fyrir sér sem píanóleikari, með það fyrir augum að leggja stund á fiðluleik. Honum tókst að brjótast á- fram, vinna fyrir sér jafnfiramt fiðlu- náminu, en brátt sneri hann sér að lág- íiðluleik. Á þeim tíma var lágfiðluleikur afar bágborinn, hljóðfærin misjöfn að gerð og gæðum, og fáir nema misheppn- aðir fiðluleikarar lék-u á þetta hljóðfæri. Hljómsveitarstjórarnir álitu þá lágfiðl- una dragbít á hljómsveitinni — nauðsyn- legan þó —. -A ð loknu námi, sem vax að vísu harla sundurlaust — enginn þekktur snillingur kenndi Tertis nokkru sinni, og mest segist hann hafa lært aif því að hlusta á góða listamenn, og nefnir þar Kreisler fremstan í flokki — gerðist har.n fyrsti lágfiðluleikari í hljómsveit „Dísarhallar“ sem Henry Wood stjórn- aði, og síðar í nýstofnaðri hljómsveit undir stjórn Sir Thomasar Beechams, og æfði sig af happi í frístundum sínum. Og það kom að því að Tertis fór að koma fram sem einleikari á lágfiðlu. Tvö meiriháttar verk með veigamiklu lágfiðluhlutverki voru þá til: Harold á ÍLalíu eftir Berlioz og Sinfonia Consert- ante eftir Mozart. Bæði þessi verk lék Tertis ótal sinnum, og á þann hátt sem enginn hafði gert fyrr. En auk þess f“kk hann ýmis tónskáld til að semja verk fyrir sig, og ávallt var hann reiðu- búinn til að flytja veirk samtímahöfunda sinns, einkum enskra, þ.á.m. verk eftir Elgar, William. Delius og Gustav Holst. Einnig setti Tertis út ýmis verk, annað- hvort fiðlu- eða sellóverk fyrir lágfiðlu. Hann starfaði mikið í kammermúsík- hópum. Lék í mixrgum kvartettum og hélt tónleika einn og með hljómsveitum um allan heim. Árið 1926 fór hann með hinn: miklu söngkonu Melba til Ástralíu, sem var mikil sigurför fyrir þau bæðh En mest þótti honum til koma að leika með Fritz Kreisler, en hann mat Tertis öðrum fremur. Hann lék og mikið með Rubinstein, Solomon, Rachmaninofif, Ysayé, Casals óg fleirum, sem eru nú. Sir Thomas Beecham, Tertis og Kreisl er á æfingu í Royal Albert Hall í Lund- únum. r ra í nýriku þjóðfélagi er það kannski afsakanlegt, þó aldrei verði það talið eðlilegt, að mat og meðferð á verðmœtum, og þá ekki hvað sízt fjár- munum, sé meira og minna brengl- að. Óvœnt og óeðlileg fjár- málaþróun raskar réttum hlutföllum og menn týna áttunum í bili. Slíkt ástand er yf- irleitt tímabundið og lœknast þegar frá líður, enda leitast uppalendur og aðrir ábyrgir aðiljar gjarna við að vekja almenning til vitundar um voðann sem yfir vofi, ef ekki sé stungið við fœti. Á íslandi er löngu orðin brýn þörf á slikum varnaði, því margt bendir til að ábyrgðarleysið, flysjungs- og flott- rœfilshátturinn séu að verða hér landlœgar plágur. Það er út af fyrir sig ekki undar- legt, að kreppu- og stríðsgróða- kynslóðirnar skuli hafa glapizt af hrœvareldum Mammons, en þessar kynslóðir œttu nú að vera farnar að átta sig og hugsa fram í tímann, huga að því hvaða áhrif bruðlið og braskið muni hafa á uppvaxandi kynslóðir. Sannleikurinn er sá, að hugsunarháttur stundargróða og óhófseyðslu hefur altekið íslend- inga, svo að vandséð er hvernig uppvaxandi kynslóðir komast hjá að bíða tjón á sálu sinni. Hér þarf því að vekja öflugan andróður gegn þessum ófögnuði, og þar œttu dag- blöð, útvarp, sjónvarp, og skólar að taka höndum saman við for- eldra. Því rnið'ur vantar mikið á að blöðin hvetji til hófstillingar og skynsamlegs lífernis —• algengasta lesefni þeirra eru einmitt trölla- sögur af lifnaði (og ólifnaði) þeirra erlendu „stjarna“ sem raka saman fé á billegum og mannskemmandi skemmtanaiðnaði. Þessu fólki er stillt upp sem fyrirmyndum œsku- lýðsins, og afleiðingin verður sí- aukið pjatt, tildur og sýndar- mennska. Ég skal einungis nefna örfá dœmi máli mínu til áréttingar, en þau mœtti margfalda. Ég hef áður vikið að ótrúlegum peningaráðum og sœlgœtiskaupum barna, hóflaus- um afmœlisboðum og fáránlegum fjáraustri í fermingarveizlur og fermingargjafir. Nú virðast skól- arnir œtla að taka undir með for- eldrunum. í fyrsta bekk gagnfrœða- skóla í liöfuðstaðnum, þar sem sitja 13—14 ára nemendur, sting- ur kennarinn upp á því að bekk- urinn fari í dags skemmtiferð, en ekki eins og venjulega með bíl út í nœrsveitir Reykjavíkur, heldur með flugvél til Vestmannaeyja og fínum hádegisverði á hótelinu þar. Ferðin á ekki að kosta nema einar litlar þúsund krónur á hvert barn, og hvað er það nú á dögum? spyr kennarinn. Þessu þorir ekkert for- eldri að andmœla og ekkert barn- anna vill skerast úr leik, því eng- inn má vera eftirbátur annarra eða öðruvísi en náunginn. Foreldram- ir verða að gera svo vel að leggja fram sinn þúsundkall. Varla þarf miklar reikningsgáfur til að sjá, hvernig útkoman verður hjá fólki með meðáltékjur og þrjú til fjögur börn á skólaaldri. Hér er það sjálf- ur skólinn eða ábyrgur kennari hans sem leggur lóð sitt á vogar- skál óhófsins. Þegar kemur upp í hærri bekki framhaldsskóla, er ekki óalgengt að farið sé í dýrar utanlandsferðir á vorin, og í flest- um tilvikum verða foreldrar að standa straum af kostnaðinum. Nú sé það fjarri mér að amast við ferðálögum, utan lands eða innan, en hafa unglingar gott af þessum gegndarlausa fjáraustri? Týna þeir ekki allri tilfinningu fyrir raun- verulegu gildi peninga? Það er álkunna að nú eru varla haldnar svo árshátíðir í framhalds- skólum Reykjavíkur, að ekki séu leigðir fínustu samkomusalir borg- arinnar með dýrum hljómsveit- um og ungmeyjar á aldrin- um 15-17 ára mœta flestar eða allar í síðum kjólum — fínt verður það að vera og allir láta gott heita. Á árshátíð í einum skóla gerðu forráðamenn gangskör að því að láta leita að áfengi á pilt- unum, áður en þeim var hleypt inn, og höfðu um 150 flöskur upp úr krafsinu, sem síðan var skilað að hátíðinni afstaðinni (þó piltarnir væru allir undir lögaldri). En þeg- ar allt var um garð gengið, fund- ust samt um hundrað „lík“ í salar- kynnum skólans — stúlkurnar höfðu ekki reynzt eftirbátar pilt- anna! Svona er tíðarandinn, og við því er ekkert að gera, segja menn Framháld á bls. 6. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5 12. marz 1967

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.