Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1967, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1967, Blaðsíða 6
B.ikil nöfn á gullnum spjöldum tónlistar- sögunnar. Einnig kenndi Tertis við Royal Academy of Music, stjórnaði kammermúsikdeild skólans, og ól um leið upp kynslóð af lágfiðluleikurum þeim, sem nú skara fram úr. í\ rið 1937 ákvað Tertis að draga sig í hlé og hélt kveðjutónlei'ka í London. En til allrar hamingju breytti hann ákvörðun sinni og 1940 kom hann ppinberlega fram á ný, lék við ýmis há- tíðleg tækifæri og í góðgjörðaskyni fram á elliár. Og þá tók hann til við að endur- bæta lágfiðluna, teiknaði nýja gerð af hljóðfærinu, eftir því sem löng reynsla hafði kennt honum. Hafa lágfiðlur þær sem hann lét smíða reynzt vel og eru víða notaðar. Upphefðin — því hann hlaut á löngum æviferli glæsilega viðurkenningu — sté Tertis aldirei til höfuðs. Látlausari, kátari og elskulegri mann er varla hægt að hugsa sér. Ég átti því láni að fagna að kynnast honum í London í fyrravetur, og verður sú viðkynning mér ógleyman- ieg. Hafði hann frá mörgu að segja og er vel ern. En umfram allt var hann gáfaður og góðgjarn maður og hámennt- aður þótt hann hefði aldrei gengið í skóla. Lionel Tertis er kvæntur hinni ágætustu konu, Lillian f. Warmington, og er hún þekktur sellóleikarL Það er erfitt að lýsa leik þessa listamanns, slíkt verður maður að upplifa. En hann var ekki einn hinna fingrafimu vél- menna, sem hertaka tónleikasali vorra „The Chamber Music Players“, Kennedy, Tertis, Murdoch og Sammons. RABB Framhald af bls. 5. og yppa öxlum. Slík uppgjafaraf- staða er aö sjálfsögðu vísasti veg- urinn til glötunar. Hér verður að spyrna við fótum, ekki endilega vegna þess að siðgæðisvitundinni sé misboðið (hún hefur yfirleitt sjaldan verið upp á marga fiska hérlendis), heldur vegna kvíða fyr- ir framtíðinni og umhyggju fyrir uppvaxandi kynslóðum. Lausungin hlýtur að magnast með hverju ári, ef allt er látið reka á reiðanum, og margt af því œskufólki sem nú fer á mis við nauðsynlegt aðhald og örugga handleiðslu eldri kyn- slóða á eftir að búa að því œvilangt að það var svikið um það sem hverju ungmenni er brýnust nauð- syn: heilnœmar hömlur á frelsi og nautnaþarfir. Óskorað frelsi er ekki annað en stjórnleysi, óskapnaður sem er öllum til tjóns, bœði þjóð- félagi og einstaklingum. Sú sjálfs- morðsalda sem riðið hefur yfir Is- land að undanf örnu (mér er kunn- ugt um ein tíu sjálfsmorð á síðustu þremur mánuöum) er ein afleið- ing þess handahófs og þeirrar lin- kindar sem einkennt hefur upp- eldis- og skólamál þjóðarinnar. Það er löngu orðið tímabært að taka allt frœðslukerfið til róttœkrar endurskoðunar, en það er ekki síð- ur knýjandi þörf að gerbreyta hug- arfari uppalenda gagnvart þeim verðmœtum sem eru undirstaða heilbrigðs þjóðlífs. Sigurður A. Magnússon. tíma. Hann hafði fállegri tón en flestir aðrir, vibrató, fraseringar og bogatækni. Allt var þetta frábært og túlkunin gegn- ummúsíkölsk. Tertis vissi snemrna, eins og aðrir miklir listamenn, að erfiðast af öllu er að flytja lítið einfalt lag vel, miklu erfiðara en að hamast og setja ný hávaða-, hraða- og glæsibragsmet. Lífið sjálft vair honum mikill og góður skóli, sem hann kunni snemma að notfæra sér. Lionel Tertis Af gömlum blöðum Valt er veraldargengið 0g svo fór ég sumarið 1908 að vinna við verzlun pabba, sem var nú miklu stærri og umfangsmeiri. Pabbi hafði byggt mjög stórt og vandað timb- urhús á steyptum kjallara fyrir sunnan ána, vörugeymslu í kjallara, búðarhæð með stórum rúðum, og íbúðarihæð. Þakið var með skúrlagi, nokkuð bratt, fyrsta húsið með því lagi, sem ég sá. Húsið var þá það gerðarlegasta á Hvamms- tanga enda kostaði það um sjö þúsund krónur. Þetta var of mikil fjárfesting, og ólíkt hagkvæmara hefði verið hjá pabba að taka tilboði Riis kaupmanns, sem bauð pabba allar eignir sínar á Hvammstanga, vörur og hús, með góðu verði og góðum kjörum. En pabbi var of stórhuga, vildi sigra í spilinu. Þó voru þeir góðir vinir og Riis mikill kaup- maður, sem pabbi virti alltaf fyrir mannkosti. Um vorið var afarmikið að gera, búð- in var full af vörum, álnavöru, tilbún- um fatnaði, búsáhöldum og öðrum ný- tízkuvörum, sem fólkið sóttist eftir. Pabbi lánaði hverjum sem hafa vildi, og ef „lokað“ var skuldareikningi hjá Riis tók pabbi þeim opnum öranum. Um eina helgina man ég að var uppboð á Hvammstanga, mannfjöldi og mikill drykkjuskapur. Þetta var á laugardegi og fjöldi manna vildi komast í búð, svo ég opnaði og afgreiddi fyrir um tvö þúsund á skömmum tíma. Það var mikil verzlun, ég skrifaði en fólkið afgreiddi sig sjálft. Þar var enginn ófrómur. Einn stórbóndi, sem líka var hrepp- stjóri, var mikið drukkinn. Hann tapaði peningabuddunni sinni með mikið á annað hundrað krónum, saknaði hennar morguninn eftir. Smiður að sunnan hafði einnig verið drukkinn og látið illa, það var álitið að hann hefði stolið buddunni og var kært til sýslumanns, er var uppboðshaldarinn. Morguninn eítir fór ég snemma niður i búðina og ranglaði inn í kompu á bak við hana. Það var eins og mér væri vísað á budd- una, sem lá þar á syllu. Ég fór strax til pabba og afhenti honum budduna, en hann var þá að tala við sýslumanninn um málið. Bóndinn hafði skilið budduna eftir á syllunni. Mér þótti vænt um að þetta upplýstist, því þótt Sunnlending- urinn væri óreglusamur var hann bezti drengur. Stefán Sveinsson var skrifari pabba og ráðgjafi um verzlunina. Hann skrif- aði settlega og fagra ritlhönd, sem ég reyndi að líkja eftir. Síðan hefi ég skrifað sæmilega, enda fékk ég hrós í skólanum veturinn eftir. Brúin á Hvammsánni hafði verið tveir plánkar lagðir samhliða. Nú var fram- farahugur um nýja brú og studdi pabbi það af alihug. Þess minntist Björn Blöndal læknir síðar, er öðrum voru þakkaðar framkvæmdir. H . úsum hafði fjölgað mjög á Hvammstanga. Anna „vert“ og Svein- björn Jónsson bróðir hennar byggðu stórt gistihús, þar sem þau seldu mat og kaffi, og auðvitað gáfu þau snafs með kaffinu. Veitingahúsið var mjög fjölsótt í kauptíðum vor og haust, stund- um biðröð til að kaupa kaffi. Eysteinn í Hrísum kom þar einu sinni, er biðröð var út á tröppur. Hann var bráðlátur áhugamaður, ýtti sér áfram þar til hann kom í opnar dyrnar og hrópaði: „Hundrað bolla kaffi og brennivín“. Framhald á bls. 10 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 12. marz 19<67

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.