Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1971, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1971, Side 16
tH að láta hann hungra á hinni vondu tíð, en feitir sjálfan sig þar með, sá, eð inniheldur sveita þess, er erfiðar, sá, eð svíkur þann í sínu erfiði, sem hann elur, klæðir og launar honum, — munu ekki allir þessir og þeir, eð þeim líkir eru, munu þeir ekki, segi ég, gera steina að brauðum?" Það er ekki fyrr en kemur að setn- ingunni: „En þegar Satan finnur, að hann ekki neitt orkar með efasemdinni eður oftraustinu með hverjum hann plagar almennilega að pretta mennina í heiminum ( og eru hans daglegar veiði brellur), þá tekur hann til þess (sem hann vissi, að sterkast var) sem er óleyfileg girnd til auðæfa og metorða." Það var hér, sem Márusi svelgdist fyrst alvarlega á. Þess má geta, að í texta sögunnar vantar þessar setningar postillunnar: og eru hans daglegar veiðibrellur, og: sem hann vissi, að sterkast var, — og virð- ist engin sérstök ástæða fyrir þvi, nema þá, að Márus hafi hlaupið yfir þær i geðshræringu og tilfinningahita. Fleiri breytingar hefur höfundur gert á orðum postillunnar, án þess þó að þær breyti efninu á nokkurn hátt. Þrjú ris eru i Márusi á Valshamri auk þessara fyrstu átaka við meistara Jón: Þegar Márus og hálsverjar hans standa í lok 21. kafla í fjörunni, eftir lífshættuna í Músasundi, segir svo: „Þegar út dró, öslaði Márus til lands og upp í fjöruna. Honum var stirt um gang, en stefnan örugg. Þarna stóð Guðný Reimarsdóttir — var næst bátn- um af þeim, sem héldu í fangalínuna. Skyndilega sleppti hún festinni. Nú horfðust þau í augu, hjónin — og ekk- ert heyrðist nema þytur stormsins, dyn- ur regnsins og svarrandi endurtekning- ar öldunnar. Siðan steig Guðný Reim- arsdóttir þetta skref, sem var á milli hennar og Márusar Magnússonar, lagði regnvota handleggina um háls honum, hans faðmur sjóblautur. Faðmlagið var langt . . . Svo var þetta ekki meira — ekkert orð sagt, ekkert minnzt á lífshættu, ekkert á ótta, ekkert á veiði. ..“ Annað ris sögunnar verður svo í 25. kafla hennar, þegar Márus bóndi hef- ur gert það upp við sig og samvizku sína, að Guðný Reimarsdóttir og meist- ari Jón Vídalín hafi haft rétt fyrir sér: „Þú skalt ekkert vera að þakka mér þetta, Þórarinn. Ástæðan til þess, að ég hef ákveðið að lækka verðið, er bara sú, að ég hef komizt að þeirri niður- stöðu, að Guðný mín og meistari .lón hafa haft að mestu leyti rétt fyrir sér — og samvizka min í rauninni verið á þeirra bandi, — það hefur sem sé hlánað I mér núna — eins og í blessaðri nátt- úrunni." Deila má um það, hvort sögunni af Márusi á Vaishamri hefði ekki getað lokið, þar sem þau stóðu í fjörunni hann og Guðný Reimarsdóttir. En lög- mál sögunnar og tilgangur krefst fram- halds. Það verður að loka hringnum, uppgjörið við meistara Jón verður að vera algert. Annað risið er liður I þessu uppgjöri, en þriðja risið bind- ur svo endahnút á það. Það kemur und- ir lok sögunnar, þegar Márus á Vals- hamri les aftur í Vídalínspostillu. Fyrst blaðaði hann litið eitt í henni, sá að þar var enginn miði og las freistingar- söguna „hátt og skýrt og strax með alimiklum áherzlum" (Matth. 4. kap.): „1 þann tíma: þá var Jesús leiddur af anda á eyðimörk upp á það, að hann yrði freistaður af djöflinum . . .“ Nú var hlustað af athygli. „Ajá, þar mundu þeir þá sáttir, kempurnar. Þetta vill nú hún ég sjá og heyra . . . Hii eitthvað mundi meistari Jón hafa Orðið að slaka á — svona til að koma til móts við þann mann, Márus Magnússon!" verður Þórdísi tengdamóður hans að orði. Það var eins og allir hlustuðu, eins og þeir heyrðu nú í fyrsta sinn. „Márus las af vaxandi hita og móði, eftir því sem lengra leið á lesturinn og jók áherzlurnar þegar hann kom að því sem hafði sunnudaginn í föstuinngangi ergt hann og að lokum gert hann svo hamstola af reiði, að hann fleygði post- illunni, svo gott, sem sjálfum meistara Jóni, af hendi í loftsgatið — og að segja mátti fyrir hunda þessa heimilis . . . og á þessum orðum — undir lok lestrar- ins —• herti hann mjög og sló hnefa vinstri handar á kné sér: „Vík frá mér Satan, þvi að skrifað er: Drottinn guð þinn skalt þú tilbiðja og honum ein- um þjóna. Nú er það öldungis ómögu- legt undir eins Guði að þjóna og Mammoni. Viljir þú þar fyrir að þitt hjarta sé Guðs musteri, þá rek þú Satan út þaðan með hans bölvaðri aura- elsku . . .“ Síðan var sættargjörðin inn- sigluð með því að Márus hóf sönginn og söng nú allt fólkið fullum rómi 19. versið i Fertugasta og áttunda Passiu- sálminum: „Hjartans innstu æðar mínar elski, lofi, prísi þig, en hjartablóð og benjar þínar blessi, hressi og styrki mig; hjartans þýðar þakkir finar þér sé gæzkan eilíflig." Að vísu stendur í Passíusálmunum „græði mig“, en ekki „og styrki mig", og er ekki annað hægt að segja en þau frávik verði dálitill blettur á sátt- argjörðinni, einkum og sér í lagi þeg- ar höfð eru í huga þessi orð séra Hallgríms í formála hans: „Guðhrædd- um lesara: heilsun!“: „En þess er eg af guðhræddum mönnum óskandi, að eigi úr iagi færi né mínum orðum breyti . . .“ Og eftir átökin í sögunni hefði orðið „græði“ átt betur við en „styrki", eins og á stóð. En hitt vegur samt þyngra á metaskálunum, að svo vel og skemmtilega vill til, að einmitt þetta erindi Passíusálmanna á sér ræt- ur og fyrirmyndir í sjálfri Liiju, 50. erindi. Ræturnar í þessum tveimur höfuðrit- um Guðmundar G. Hagalins eru því djúpar, sterkar og rammíslenzkar. Þær hafa sogið næringu úr ýmsum áttum, jafnvel klassiskri hámenningu kaþólskrar kirkju. En það sem kannski vekur mesta athygli, þrátt fyrir allt, er sú staðreynd, að trú Kristrúnar gömlu í Hamravík, lifsviðhorf hennar og styrkur eru í raun og veru fyrir ofan og utan guðfræðilegar útlistanir lær- dómsmanna, eins og sr. Hallgrims Péturssonar og Jóns Vidalíns, þó að þeir séu tindarnir í lúþerskri kristni á íslandi, hvor með sinum hætti. Að þessu leyti er hún ósköp venjuleg is- lenzk sveitakona, án þess sálarstriðs og þeirrar kvalar sem oft eru fylgifiskar lærdóms og þekkingar. Hún er óbrot- in kona, lifir og hrærist í einfaldri heimsmynd íslenzkrar alþýðutrúar, og hefur orð meistaranna að undirstöðu persónulegu sjálfstæði og inngróinni guðstrú, ef henni sjálfri sýnist svo. Og þó að gamla konan sé ekki alveg laus við hjátrú og hindurvitni, eins og draugatrú hennar sýnir, er raunsæi hennar farsælli forsenda heilbrigðum iifsháttum en sjálfsvirðing og þver- móðska Márusar stórbónda á Valshamri, sem er líkari meistara Jóni og afslátt- arlausri lífsstefnu hans. Ef Kristrún er íslenzk alþýða holdi klædd, má sú sama alþýða vel við una. Kristrún í Hamravík, sú góða gamla kona, hefur litlar áhyggjur af syndinni, sem var sr. Hallgrími í senn innblástur og örlaga- þraut, og a.m.k. minni áhyggjur af freistingunni en guðsmennirnir, enda hefur hún vafalaust ónáðað þá meira. Trú hennar var sízt af öllu byggð á ótta, hvorki vegna sjálfrar sín né ann- arra. Orðið sálarháski var t.a.m. ekki í orðasafni hennar, heldur frí og frívilji. Hún gerir upp við guð sinn, sættist við hann með þessum orðum í sögulok: „Og þar sem þú lézt mig nú, fría og óhindraða, greiða þessa flækjuna eftir beztu getu, og hefur kveikt nýtt lif í þessu baðstofukorni, þá mundi geta svo heitið, að við værum nú loksins fyrir alvöru klár og kvitt. Minnsta kosti mun hún ég ekki setja í mig neinn hofmóð, þegar hlutaskiptin eiga fram að fara. Og þó . . . Yrðir þú með eitthvert rex eða vesen út af mínu áralagi, þá er hætt við, að ég legði kollhúfur . . .“ Hún frelsaðist ekki vegna iðr- unar, þrælsótta, ofstækis né hræsni, heldur vegna eigin gerða og þess hjartalags, sem var aðal hennar og óðal. Á Hornbjargi. 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21. febrúar 1971

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.