Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1971, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1971, Side 1
15. tbl. 18. apríl 1971, 46. árg. UNDIR HARÐ- STJÓRN Samantekt á ýmsum atriðum úr endurminningabókum Alberts Speer og Krúséffs, sem sýnir samband einræðisherranna Jósefs Stalin og Adolfs Hitler við nánustu samstarfsmenn sína. Gísli Sigurðsson tók saman TVEIR illræmdustu einræð- isherrar aldarinnar, Adolf Hitler og Jósep Stalín, eiga margt sameiginlegt, sem fróðlegt er að bera saman. Báðir höfðu lilotið í vöggu- gjöf áhrifamikinn persónu- leika, báðir voru komnir af alls óþekktu alþýðufólki en gegndarlaus metnaður rak þá áfram, unz takmarkinu var náð. Báðir urðu oddvitar ómannúðlegustu stjórnmála- hreyfinga, sem sagan greinir frá: Nasistaflokksins í Þýzka landi og kommúnistaflokks- ins í Rússlandi. Báðir höfðu um sig hirð dyggra fylgis- maniia, sem framkvæmdu fáránlegustu skipanir út í æsar og báðir réðu örlögum og dauða milljóna manna. fcoiif sýna það báðir og sanna, hvað þessar stríð- andi "stjórnmálahreyfingar, kommúnisminn og nasism- inn voru í rauninni skyldar. Hjá báðum helgar tilgang- urinn meðalið. Hjá báðum tíðkaðist sama mannfyrir- litningin og lágt mat á mannslífum. Og síðast en ekki sízt: Bæði hjá Hitler og Stalín fór að verða vart geð- veilu, þegar líða tók á ævi þeirra og á köflum birtist þetta hjá þeim báðum í hreinni brjálsemi. En hvað var það í fari manna eins og Hitlers og Stalins, sem fleytti þeim alla leið á topp- inn í grimmúðugri samkeppni, þar sem f jöldi valdaþyrstra ein- staklinga stóö tilbúinn með rýt inginn, hver við annars bak. Tvær nýlega útkomnar bækur skýra það að nokkru leyti. Annars vegar eru endurminn- ingar Nikita Krúséffs, sem að visu er umdeiid bók og menn engan veginn á eitt sáttir um, hvort Krúséff sé sjálfur höf- undurinn. Allt um það hefur bókin vakið mikla athygli á Vesturlöndum. Þó hún leiði ef til vill ekki beinlínis neitt nýtt i ijós, bregður hún birtu á vissa hluti, sem fróðlegt er að kynnast, til dæmis samband inu á milli þeirra Stalíns og Krúséffs. Hinsvegar er sú bók, sem um nokkurt skeið hef ur verið ofarlega á metsölu- iistum, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Hún heitir „Innan þriðja ríkisins“ og er endur- minningar Alberts Speer, sem framan af var arkitekt Hitlers en síðar ráðherra hervæðing- armála og hefur nú afplánað 20 ára fangelsisdóm í Spandaufangelsinu samkvæmt Niirnbergdómi frá 1945. Þar gafst honum góður timi til að íhuga fortiðina; hann segir frá fyrstu kynnum þeirra Hitlers og hvernig hann smám saman lenti i þeim þrönga hópi, sem svo til daglegt samneyti hafði við foringjann. Að njóta náðar Hitlers og vera í þessum þrönga hópi var virðingar- staða, sem næstum yfirskyggði allt annað í Þýzkalandi fjórða áratugarins. Hins vegar var ekkert sældarlíf að umgangast foringjann og veröur vikið að þvi síðar. Mörgum sem vel þekktu tii, þótti tveggja áratuga fangels- isdómur yfir Speer ósann- gjam, en um leið var sannað likt og löngum áður, að sekur er sá einn sem tapar. Speer dregur enga dul á hrifningu sína á Hitler og fullkomna hlýðni við boð hans og bönn. En hann leit ekki á sig sem stjórnmálamann, heldur fyrst og fremst listamann, enda þótt nútiminn hafi komizt að þeirri niðurstöðu, að byggingarverk hans hafi verið meðalmennsk- an uppmáluð. En Hitler hreifst af þeim og það réð úrslitum fyrir Albert Speer. Hitt er aug Ijóst, að Albert Speer hefur haft frábæra skipulagsgáfu, sem oft kom að góðum notum, þegar Hitler heimtaði stórbygg ingar, fuilbúnar eftir tiltölu- lega skamman tíma. Og Speer notaðist að sjálfsögðu vel að þeim hæfileika, þegar hann var orðinn hervæðingarráð- herra Hitlers. Honum var í rauninni mjög á móti skapi að taka það embætti að sér; hug- ur hans var allur bundinn byggingarlistinni. En foring- inn hét því, að Speer fengi að nýju margföld tækifæri á vett- vangi byggingarlistarinnar, þegar hann væri búinn að vinna stríðið. Og þess gat ekki orðið langt að bíða. Að öðru leyti er bókin skrif- uð sem vamarræða; Speer get- ur um, að hann hafi vitað um fangabúðir, þar sem Gyðing- um, frímúrurum og kommúnist- um hafi verið smalað saman. En honum fannst hann ekki bera ábyrgð á því, vegna þess að hann kom ekki nærri því sjálfur. Dómararnir í Núm- berg litu öðruvisi á það. Hvað sem því liður, er athyglisverð- ast við bókina, það sem Albert Speer segir af daglegu lifi með foringjanum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.