Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1971, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1971, Qupperneq 1
ff\ 1*. tbl. 23. maí 1971, 46. árg. VIÐ sjáum þau í flóttamannabúðunum, þessum neyðar- stöðvum á leiðinni til rótfastrar tilveru í öðru landi. Slík- ur brottflutningur getur verið grimmilegur á rökkurstund lífsins — mér er í fersku minni gömul kona, sem ég sá í þess konar búðum. Háöldruð, skjögrandi í gangi kom hún út úr matgjafahúsinu í sjóðheitan sandinn, með mjöl- skammtinn sinn í pokaskjatta yfir öxlina og rytjulega plastskó bundna á fæturna. — Við sjáum þau á nýjum bústaðasvæðum, flóttamanna- nýlendum, þar sem vonin er tekin að gróa, viðkvæm en þó lifandi. Sá fyrsti sem varð fyrir mér sem afmarkaður einstaklingur í svörtu mannhafi í einni slíkri nýlendu, var lítill feiminn drengur, sem sat og lék sér að klunnaleg- um leikfangabíl, gerðum úr bambusstykkjum eða ein- hverju með hjól úr lokum af gosdrykkjaflöskum — lítill drengur með hlut, sem hann hafði gert sjálfur og þótti vænt um — þá fer að komast skipulag á lífið. — f Afríku eru uni það bil ein miil.jón flóttamanna, sem reknir eru yfir landaniæri af liarð- stjórn eða ótta við komandi harðstjórn innan ranuna flók- inna pólitískra atburða <>k liern aðarlegra liermdarverka. Þeir liafa verið að koma um árarað- ir, þeir koma enn, oft eins og fætur toga. I»að er á einlivern undarlegan liátt eins og þetta sé eðlileg umferð, stundum í báðar áttir á milli liinna afr- ísku ríkja, Súdans, Eþiópíu, Uganda, Kongó, Ituanda, Lýð- veldis Mið-Afríku, Tanzaníu, Angola, Mozambiqiie. Straiiniur nýrra flótta- manna hefur aukizt npp á síð- kastið frá Súdan og Eþíópíu. Að Súdan og súdönskum flótta- mönnum verður vikið síðar. Sem stendur er Eþíópía i brennidepli svartletraðra blaða- dálka um ofbeldisaðgerðir stjórnarhersins gegn frelsis- sveitunum norður í Eritreu. . . Fólk flýr — gamla konan í ])Iastskónum — sem verður að sætta sig við að bera beinin Barbro Alvin EIN MILLJÓN HRJÁÐRA EINSTAKLINGA á flótta undan herjum, pólitísku ofstæki og harðstjórn, úr einu Afríkuríkinu í annað. langt frá heimkynnum sínum — er gamall Eritreubúi. Sem þversögn ætla ég sanit í uppbafi að tilfæra nokkur orð úr viðtali um flóttamannavanda máiið við keisarann Haile Se- lassie. Hann veitir okkur móttöku — fámennum, norrænum hópi — í höllinni í Addis Abeba. Rétt við innganginn (smávegis umhverfislýsing; maður fer hér ekki um daglega) inni á hallar svæðinu, á tröppupalli utan við opið búr, liggur hið fræga varð- ljón, heldur svipþungt og drembilegt karldýr, sem virðir fyrir sér gestina og hallarþjón inn með hvítan sólhjálm án áhuga. 1 biðsal keisarans er áberandi mikið af bókum af mjög fjölbreyttu tagi, samtíma pólitískt rit, bækur um afríska náttúru og aðsteðjandi hættur, uppsláttarbækur, bækur um trúarleg efni; fyrir ofan skáp einn er stækkuð ljósmynd af keisaranum og Churehill. Nokkrir þjónar í hvítum jökk- um með svartar húfur flögra um; tveir hirðmenn i dökkum búningum spyrja kurteislega um álit okkar á Eþíópíu. Við höldum okkur af gildum ástæð um við veðurfarið og fegurð landslagsins. Þá er lagt af stað til viðtöku salarins. Hann er mjög stór og þar eru rauð gluggatjöld lögð í hátíðlegar fellingar og gólfið alþakið dásamlegum austur- lenzkum og afriskum ábreiðum. Allt er fullt af gersemum, sennilega ríkisgjafir, í einu horninu er vegleg gólfklukka, i öðru spjót frá Kína, andspæn is mér á borði stendur fork- unnarfagurt gullskrín; annars eru húsgögnin heldur þung- lamaleg, skápar ofhlaðnir skrauti, stífir brúnir stólar með kórónu á bakinu. Þarna er einnig upphleypt landakort úr gulli, raunar fjöldi af landa- kortum, sömuleiðis málverk af keisaranum ungum með litinn prins í fanginu. Hann tekur á móti okkur standandi, einkennisklæddur, við borð sem hlaðið er bókum. Síðan tekur hann sér sæti í við hafnarstól krýndum ljónskór- 4 9 *

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.