Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1971, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1971, Blaðsíða 5
Barrtréð >að var ernu sinni barrtré, grænt á vetrum, grænt í öBum blæbrigðum á sumrurn, og eftir rígningar var það eins og sann leikurinn — hreint, sterkt og óhagganiegt. I>að hafði t»pp upp í loftið og hiiðargreinar, sem uxu í röðunt upp eftir þvi. I»að gekk á ýmsu í lífi þessa trés, snjórinn lagðist á það á vetrum, stundum héngu í því krakkar, og jafnvel á hásumr- um voru hér og þar brúnar, ólundarlegar kalnálar, sem urðu ékki öðruvísi. En áfram hélt það samt að potast upp í loftiö c»g fagna vorunum. t»ang- að til um árið. J»að hafði voiað snemma — hélt tréð — og fór að píra út einu og öðru á toppnum, var jafnvel að hugsa um nýja liliðargreinaröð, liver veit. En þá skeði það. I»að gerði skyndi- lega frost, sem herti síðan jafnt og þétt, og hvort barátt- an stóð nú lengur eða skemur, veit sá einn, sem reyndi, — en toppinn dauðakól. Hvað nú? Fyrst ekkert. En svo sveigði það upp eina hlið- argreinina — hærra og hærra — eins hátt og hún komst. — Og byrjaði siðan að vaxa á hana. Og tilvera þess hélt áí'ram. J»að var grænt á vetrum, grænt i ölhim blæbrigðum á sumrum, og eins og sannleikurinn eftir rigningar. og stráin farin að lýsast vegna vorsins. „Hvernig verður með pakk- ana?“ spurði hún þá sem höfðu með það að gera. „Lit-Ii þriðji fær 2 pakka frá pabba sínunt 30ta hvern,“ sögðu þeir, sem höfðu m.þæ.g. „En af hverju ekki lleiri ?“ „Stóru fyrstu eru einmana cftir viðskil. Þurfa nýja piiíinu- kökumömmu fljótlega — og nógan ost.“ „En hvar fæ ég viðbótar- pakka?“ spurði hún og strauk halann vandræðalega, „Xú, auði'itað úr „allra-fjöl- skyldna“-sjóðnum,“ sögðu þc>ir s.h.m.þ.a.g. alveg hvumsa. „Heldurðu, að það sé ekki feðravernd í Músalandi?" Þetta er viljayfirlýsing ungs fólks og manna. Þetta er vilji þess til breytinga, til umbóta. Þetta er ávarp og hvatning mannkyni til handa, andvarp og afhjúpun. . Við viijum frið með öllum mönnum, raunverulegan frið en ekki slíkan sem tryggður er með vopnum, söngur okkar er um frið og vinsemd. Við nær- umst á friði og hann mun breyta okkur. Við viljum frelsi, mótanleg kerfi og siði sem eru í eidlínu breytinga og framíara, breyt- inga til þess sem við innra með okkur og vitsmunalega vitum að eru öllu til heilla. Hver maður hefur rétt tii að vera hann sjálfur, á rétt á skoð un sinni og viðhorfum, á trú sinni. Við viljum jafnrétti, uppræt- ingu óréttar og kúgunar. Ailir menn eru bræður með eðlis- læga ástúð til alls, sem sýnir vinsemd, vinsemd til þess fjand samlega er sáðan lærdómur, hluti af menntun. Allir fæðast jafnir að elsku, allir lifa á sömu örðunni sem kaliast Jörð og allir deyja að lokum til þess óþekkta. Enginn getur drottnað yfir öðrum án þess að skaða sál sína með Mekkingu, þeirri blekkingu að hann sé meira en bara maður. Við viljum frEunþróun, þroska og þekkingu en hóf á öliu, einkanlega tækniíramþró- un. Við viijum rósemi, enginn getur bætt ögn við ævi sina með látum. Við viljum þegar koma í veg fyrir skelfingar af eigin völd- um, við viljum takmarka barn- eignir, barnanna vegna, enda gætu menn þá haft ármilljón- ir fyrir sér. Við viljum neita okkur um lúmsk leikföng og munað sem eykur sannarlega á leiða okkar og óhamingju. Við viljum samkeppni og sam starf, nýtni og hófsemi. Við viljum jafna möguleika allra til menntunar, þeirrar menntunar sem eykur skilning og hamingju, góðan vilja og kærleik, 1 hinu góða munum við vitna til sameigiuleika, and legra verðmæta og elsku sem býr með öllum mönnum. Birgir Björnsson Þúsund orða vilji Við viljum réttláta skiptingu fjármuna og valds. Okkur er ijóst að þessu mun æviniega vera misskipt eins og hæfileik- um okkar, en með þeirri mennt un sem gerir manninn auðmjúk an hlýtur sjálfsumhugsun að minnka og nærgætni að koma í hennar stað. Misbeitingu er þvi ekki að kvíða, öll slík mis- tök eru afleiðing skilningsleys is og öhamingju. Við vlijum handleiðsiu og ráð þeirra sem eldri eru og reyndari en við. Við viijum einnig geta farið eigin leiðir sem þeir hafa ekki Píynt. Við viðurkennum fyrirfram að leið okkar geti verið tálvon og við munum reyna að hafa hugrekki til að viðurkenna það. Við munum sýna gætni mann legs máttar. Við viljum reyna möguleika mannlegrar reynslu og snilli, innan marka sjón- hrings heilbrigðrar menntunar og góðs vilja. Við viljum nokkuð á okkur leggja, við viljum skyidur en ekki vera kröfumikil á réttindi, þvi okkur er ljóst að ef skyld- unum er vel fullnægt munu réttíndin vera nægileg. Við viljum framtíð, framtið i öryggi en ekki værð. Þetta viljum við ásamt mörgu öðru. Við viljum hið nýja og við munum afsala okkur öllu í betri og yngri hendur. Við viljum færa náttúru Jarð ar nær okkur, við viljum tengj ast dýpri böndum. Við viljum ekki glata fornum verðmætum, verðmætum sem við getum gild isprófað. Við viljum bera sam- an og samræma skoðanir allar og viðhorf, trú og hugsjónir. Allt þetta viljum við. En umfram allt viljum við taka sjálf okkur til meðferðar, gátu tilveru okkar, leiða okk- ar og fávisi, ófullkomleika okk ar og elgingirni. Við verðum að vera hluti meðferðarinnar, breytingarinnar. Við erum ekki eitthvaS ann- að en heimurinn. Við erum hluti mannkyns og ekkert er okkur raunverulegra. Við ætl- um ekki að breyta hlutum eða aðstasðum, heldur mönnum fyrst og fremst. Mannleg tengsl eru eining sem verður ekki hreyft við án þess að heildin verði fyrir breytingum. Mann- lífið er ekki partar. Við munum setja sjáifsmark okkar hátt, svo hátt, að því verði í raun ekki náð, annað er blekking. Allt þetta viljum við. Og við viljum ekki aðeins, við erum reiðubúin og munum fóma lífsskeiði okkar og mögu leikum til þessa starfs, til þess- ara breytingar. Þótt æviskeið okkar sé þar með heigað öðrum fyrst og fremst er þetta í raun ekki mikil fórn. Það er ekki um annað að ræða. Heimur mannsins, framtið mannsins verður einfaldlega ekki til án þessa starfs. Við kjósum þennan úrkost sökum þess að við unnum framtíðinni. Fórn okkar er nauðsyn. Vilji okkar er ekki sterkur en hann nærist á von og mun ef til vill vaxa með áreynsh unni. Okkur er ljóst að ákveðni og ofturkapp eru oft undanfari mistaka, það er þvi kostur að vera ekki of viss, of sannfærð- ur um ágæti eigin aðferða og viðhorfa. Við munum beita ró- legri íhygli og þrautseigju. Kætina munum við taka í þjónustu okkar, kætina yfir eigin mistökum og fálrni, kæt- ina yifir árangri og áföngum þótt litlir séu, kætina yfir skiln ingi og umburðarlyndi, söng og vinsemd. Þannig mun stefna, tilgangur okkar eflast án alis flýtis. Mikil umbreytmg gerist ekki í einni hending, okkur er það ljóst. Við raunum meta hugar- ró og þögn, okkur mun lærast það aí dýpri tengslum við allt liíandi. Okkur er ekki ljóst hvernig vilja okkar mun komið i frarn- kvæmd, ævinlega munum við velja um leiðir þegar að vega- mótunum kemur, þvi ekki benda helgir menn á liljur vall arins án ástæðu. Við víljum hræðralag. Við viljum vera hið góða án rétt- línuhugsana. Við viijum miðla eins og hið góða. Við viljum tigna með uppréttum huga hinn mikla mátt sem birtist í tilveru alheims. Við viljum gaumgæla varurð okkar og náungans. Við viljum láta hvern annast sinn þroska með samhjálp allra. Við vilj- um blessa eins og náttúran hef ur blessað lífið sem hún gaf okkur. Við viljum læra að þakka og endurgefa í orfti og athöfn. ViÖ viljum reyna að skilja að aðeins með þvi að gefa getum við eignazt raun- veruleg verðmætL Við viljum starfa með gleðl þess sem læt- ur frá sér. Við viljum Mta spurninga fremur en svara og við viljum endurmeta viðhorf okkar og aðferðir. Þanníg gæti vilji ungs fólks verið, þannig hefur hann ef tii vill alltaf verið. Við aískjum þess ekki að þessum vilja okkar verði tekið með ákefð, við sættum okkur við fylgisleysi. Framvindan verður aö hafa sinn gang, ef menn eru ekki tilbúnir til að skapa sér framtíð, þá duga eng- in töfrabrögð. Við öskum öllu lífi heilla. 23. maí 1971 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.