Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1971, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1971, Page 9
Skal hér stiklað á fvi helzta, sem lesa má greinilega gegnum þær. Ekki verður sótt um inn- göngu í Opus Dei: reglan leit- ar væntanlega félaga uppi. Þegai' inn er komið ríkir þar ströng stéttaskipting. Fyrstir koma Numerarii. Þeir eru vigð- ir Opus Dei og starfi þess. Til þeirra eru gerðar afar strang- ar vitrænar kröfur. Þeir sverja eiða að ævilangri fátækt, hreinlifi og hlýðni. Þeir nema siðfræði í ein tvö ár og guð- fræði í fjögur. Þeir búa sér í sérlegum „Opus Deihúsum". Aðeins sumir þeirra hljóta vígslu, hinir eru áfram „leik- prestar". Næst neðar þessu úr- vali standa Oblati. Af þeim er a.m.k. krafizt háskólaprófs. Frami úr lægri s-tétt í æðri er næstum óheyrt fyrirbæri. Dýrkun reglunnar á mjög lærð- um mönnum er næstum sjúk- leg. Þó er andleg afburða- mennska ekki trygging fyrir því, að félagi sé útnefndur Numerarius. Sé hann fatiaður á einhvern hátt eða haldinn sjúkdómi, eru honum lokaðar dyrnar að félagsskap Num- erariis. Numerarius verður að vera „gallaJlaus"; að likindum til þess að eiga greiðari að- gang, auðveldara með að telja fólk á sitt mál, heilia fólk. Oblatus ferðast á öðru farrými. Numerarius á fyrsta! Ann- að er eftir því. En þótt að- greiningin sé svona skörp og ströng verða báðir að leggja af mörkum sömu hollustuna. Eið- arnir, námsárin, uppgjöfin, ailt gengur jafnt yfir báða. Þriðji hópurinn, Super- numeraii hefur frjálsari hend- ur. Eiðar þeirra eru ekki eins bindandi. Þeir mega t.d. kvæn- ast. Loks koma svo samverka- mennirnir. Þessir féiagar hafa enga raunverulega stöðu. Þetta eru. leigubilstjórar, kaup menn, þjónar o s.frv. Þeir eru fjölmargir og dreifðir um Spán allan. Hlýðum á Miguel, ungan lög- fræðing frá Madrid, sem regl- an falaði til fyLgis við sig: „Það var nær lokum iögfræði- náms míns, að mér var boðið til „menningarráðstefnu", sem Opus Dei héit í Madrid. Ég fór til fundarins, mest fyrir for- vitni sakir. Ég hitti að máli nokkra deiidaformenn Opus Dei. Þeir voru ákaflega vin- gjarnlegir. Ég skuldbatt mig ekki til neins, en tók boði um að koma til fundar áður en langt iiði og taka þátt í „and- legum æfingum“ nokkrum. En þegar ég fékk' bréflegt fundar- boð, þar sem ég var þegar nefndur „samverkamaður" regl unnar, setti ég hnefann í borð- ið og ritaði þeim svar þess efn- is, að ég hefði ekki lengur áhuga á málinu. Ég léti ekki neyða mig til neins. En hrædd- ur er ég um að þeir séu fæst- ir, sem bregðast svo við. Mörg- um þætti siíkt boð sem þetta mikili heiður, viðurkenning á andlegum hæfileikum þeirra. Ég hjó eftir aðferðinni. Slík samtök eru vön að segja sem svo: „Þetta eru Samtökin, þannig fer starfsemi okkar fram, hefur þú áhuga á mál- inu?“ Opus Dei snýr þessu hins vegar við: „Við höfum áhuga á yður, fylgið okk- ur, yður mun ekki iðra þess“.“ „Andlegar æringar" þessar hafa sumir þeir sem reynt hafa kallað hreinræktaðan heila- þvott. Þrýst er á frá öllum hlið- um, huglegum og tilfinninga- legum, reynt að endurvekja með fólki tilfinninguna um syind og sekt, og telja það á að notfæra sér trú s;na, Margir þoldu ekki álagið, hinar sí- felldu siðaprédikanir og róðu- krosskrossastand. Aðfir lét'u sannfærast og til leiðast og gáfust reglunni. Tilfinningin um algera skuidbindingu getur haft i för með sér aðra tilfinn- ingu - um persónulegt, eigið mikilvægi. Þú ert aldrei i vafa, þú getur ekki breytt nema á einn veg, þú hefur alltaf rétt fyrir þér. „Það er þaðan, sem þeir fá styrkinn," sagði einn nemendanna. „Afar ruglandi. Allt fádæma alvöruþrungið. Langir fyririestrar í rökkvuð- um herbergjum, endalausar bænastundir i kapellum. Sum- um leið hál'f illa undir þessu, öðrum leiddist bara. Oft hlóg- um við að þessu öllu saman. Smámunasemi mikil rikti. Ekki mátti tala yfir borðum. Bækur með grunsamlegum kápumynd- um gerðar upptækar. Og áhugi þeirra á okkur var fullnáinn. Þeir voru sífellt að draga okk- ur afsiðis og segja okkur sem svo: „Þetta eru þau vandamál, sem þú átt við að stríða; þetta er það, sem þú verður að gera.“ Þessari „menntun“ er haldið áfram iinnulítið í ár, en eftir það endurtekin með regiuiegu milhbili, það sem' eftir ér' ævi nemandans, gerist hann félagi. Hver némi hefur sinn „sam- vizkuvörð“. Hann má ekkert aðhafast nema ráðgast við hirði sinn. Og megi ekkert að- hafast, nema ráðgast við hirði þenna, hvað þá um þá fullyrð- ingu reglunnar, að félagar hennar lifi veraldlegu lifi sínu algerlega sjálfstæðir og óháðir reglunni ? Og ekki er alit búið. 1 viku hverri verður hver félagi að krjúpa á kné með öðrum félaga og rekja fyrir honum hverja sina gjörð þá vikuna, smáa sem stóra. Þessa „hreinsun samvizk unnar“, sem Opus Deimenn nefna svo, kalla leiksálfræðing- ar ,,sannleiksleikinn“, „the truth game“. Atvinnusálfræð- ingur einn, hefur þetta um ,,leikinn“ að segja: „Tii þess að komast frá slíkri raun sem þess ari án skaðlegrar sjálfsauð- mýkingar verður sjáifstraust og álit að vera á svo háu stigi að jaðri við ofstæki.“ Orð Jesúitaprests nokkurs: . . . „kerfi þetta er nokkurs konar súperskriftir fyrir súpermenn; það er lika það, sem þeir halda, að þeir séu; þeir eru fullvissir þess, að þeir séu það.“ Opus Deifélaginn, eða „týp- an“. Hann er maður (Opus Dei hefur bæði karla- og kvenna- deildir) ríkur, gáfaður, mynd- arlegur, hefur góð sambönd, er kraftmikill, raunsær án þess að efast nokkurn tima, og ekki haldinn neinum „skaðsamleg- um“ hugmyndum, eins og viss- ir kaþólskir leikmenn og prest- ar nú á dögum. Hann styðst við hinn einkar merkilega leið- arvísi Escrivas og sækir þang- að ráð um smátt sem stórt. „Mundu að þú ert borinn til forystu.“ „Heilög óbilgirni er ekkl kreddufesta.“ Og: „Gefðu daglegu verki þínu yfimátt- úrulegan tilgang og þú hefur helgað það.“ Kenningum þess- um er misjafnlega tekið. Sumir hlæja að þeim. Öðrum finnst þær heimskulegar. Enn aðrir taka. undir þessi orð: „Kaflinn („Hvernig komast skal áfram í lífinu") er uppskrift að samfé- lagslegri og efnalegri vel- gengni og réttlætingu og helg- un hennar. Mér hzt þannig á, að bókin gæti orðið ákaflega hættuleg væri hún tekin fylli- lega alvarlega. Sá maður, sem færi bókstaflega eftir leiðbein- ingum hennar, yrði drembilát- ur, framgjarn, afmennskur, ger samlega undirgefinn klerk- valdinu, óumburðarlyndur — sannkallaður skítaklepri." Þeim, sem biða yfirlýsingar um Opus Dei frá Róm, er tek- in að leiðast biðin. Vatíkaninu líkar ekki leikprestakerfi Opus Dei og ýmsir aðrir starfshætt- ir. Það er mjög andvigt þögn og leynd reglunnar, eða „orð- varni", eins og Opus Deimenn nefna það. Ennfremur fjár- glæfrastarfsemi reglunnar ým- iss konar. Hins vegar hefur góðgerðástarfsemi reglunnar í útlöndum og velferðarstarf náð að séfa nokkuð reiði páfa og hirðar hans. Það er nú orðinn fastur brandari franskra, þýzki’a og ítalskra tímarita að birta klausu neðanmáls i hvert sinn, sem þau prenta grein um starf- semi reglunnar, sem lítur út eins og opinber yfirlýsing frá reglunni sjálfri; svona rétt eins og til að spara reglunni tima og ómak: „Ekki kemur til mála, að ætla nokkurt sam- band milli þeirrar staðreyiidar, að vissir félagar reglunnar sitja i ábyrgðarstöðum, og hins sanna tilgangs Opus. Dei, sem er algerlega óháðúr ver- aldiegu starfi félaga reglúnn- ar.“ Þetta þykir Opús Dei- mönnum ekkert fyndið. Þeir senda ævinlega mótmæli gegn greininni — næstum nákvæm- lega eins orðuð og hér á und- an! Meira fæst ekki upp úr þeim. Reglunni mun tæpast verða fjár vant í náinni framtíð. Auð- ugir félagar greiða stórfé í sjóði hennar. „Maður gefur reglunni eins mikinn tima og eins mikið fé og maður getur af séð,“ sagði einn félaganna mér, þótt ekki fáist þeir til að nefna neinar upphæðir. Þrátt fyrir þéssar greiðslur halda fé- lagar þessir sig eins og hverj- ir aðrir auðkýfingar; sigla snekkjum milli gleðistaða o.s.frv. o.s.frv. Eykur þetta háttalag ekki elsku spænsks almennings á þeim. Aimenning- ur telur regluna allsráðandi á Spáni. Þeir haldi um stjórn- málataumana, þeir stjórni bönkunum, fjármagninu. Stöðu veitingum, lánveitingum. Hið eina, sem þeir hugsi um sé pen- ingar og meiri peningar. Þeir hafi langtum of mikil vöid þvi miður sé bara ekkert í mál- inu að gera, enginn geti rönd við þeim reist. Smá dæmi: Hjúkrunarmaður nokkur í Madrid var Super- numerarius í Opus Dei. Árum saman greiddi hann reglunni það sem „henni bar“ og hún krafðist þriöjungs allra tekna hans. í fyrra lézt einn sjúkl- inga hans og lét honum eftir allmikla fjárupphæð. Ekki voru liðnir þrir dagar, er hon- um bárust þau boð frá regl- unni, að hún vildi fá sinn skerf og það hið snarasta. Hann svar aði þvi til, að honum virtist þeir enga heimtingu eiga, þar sem um væri að ræða gjöf, en ekki launatekjur. Ekki voru liðnir þrir dagar aðrir, er hon um var sagt upp starfi. Allmarg ar tilraunir og umleitanir hans til þess að verða sér úti um annað starf, mistókust. Hann varð að hverfa úr landi, til þess að hafa í sig og á. „Það má vera að slík neitun beri vott um hugrekki, en hún er hættuleg. Bráðhættuleg. Margir þora ekki að taka þá áhættu.“ I stjórnmálunum fór Opus Dei ekki að láta til sín taka fyrr en upp úr miðjum sjötta tugi aldarinnar. Þeir hófust handa með því að hreiðra um sig á bak við tjöldin og áttu þar fremur auðveldan leik inn- an um allmarga fumandi og áhrifalitla flokka, flokksbrot og hreyfingar. Þegar stjórn- málakreppan skall á 1957 komu svo menntamennirnir og tæknikratarnir fram i dagsljós- ið og tóku sér sæti á valdastól- unum. Af ríkisstjórn þeirri, sem við tók 1957, voru' þeir Cirilo Canovas, landbúnaðar- málaráðherra, Jorgé Vilon, at- vinnumálaráðherra, Mario Navarro Rubio, fjármálaráð- herra og Alberto Uliastres, við skiptamálaráðherra, annað tveggja, viðurkenndir Opus Deimenn, eða stóðu reglunni mjög nær. Sú staðreynd virtist ekki skipta svo miklu máli um þær mundir. Spánverjar voru i slæmri klípu og enda þótt hin- ir nýju ráðherrar væru ný- græðingar í stjórnmálum, þá voru þeir vel heima í efnahags legri uppbyggingu iðnaðar. Navarro og Ullastres stóðu að hinni mikilvægu verðfestingar- áætlun i júlí 1959, sem að lik- indum hefur forðað Spáni við efnahagshruni. Hæfileikinn til þess að fara með miklar fjárupphæðir er einkenni Opus Dei-tæknikrat- ans. Saman með þeim hæfileika fór að sjálfsögðu skipuiögð her taka mikilvægra staðna: stjórna banka, verksmiðja, iðn- og verzlunarfyrirtækja, og Opus Dei ólíktist æ meir þeirri mynd, sem reglan hafði opin- berlega dregið upp af sjálfri sér; góðgerðarstofnun við bág- stadda. ui 23. maí 1971 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.