Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1971, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1971, Síða 13
Margir hafa án efa tekið eftir l>essu gamla húsi við Lindargötuna. Það er komíð talsvert til ára sinna, enda birtist i því sérstakt afbrigði af báru járnsliiisasiílnum, sem nú er fágætt orðið. Frá sama tíma eru nokkur iuis með líku lagri austur á Eyrarbakka, og ef til vill i fleiri sjávarþorp- uin. I þessu byggingarlagi er augljós þokki, sem sjaldan verður vart í nýrri byggingum, hvernig sem á því stendur. GAMALT OG NYTT ÚR BÆNUM í; - Ílllfll llllIÉ Stundum klæddist bárujárns- stillinn viðhafnarbúningi eins og sjá má á Landshöfðingja- húsinu eða „Næpunni“ við Skálholtsstíg. Ennþá er reynt að byggja hús nieð viðhöfn og íburði. Eu úrangurinn er sá, að erlendir áhugamenn um hygg- ingarlist geta varla orða bund- izt og undrast livað við byggj- um Ijót hús. Vonandi fær „Næpan“ að standa lengi, svo liægt sé að finna eitthvað, sem gleður augað. Ílllill Ef eitthvað er á þessari mynd, sem fullkomlega sver sig í ætt við samtímann, þá eru það stutt- buxurnar á ungfrúnni. Óneitanlega fer þessi tízka vel á ungum og grönnum stúlkum og guði sé lof að þær fundu eitthvað annað en maxikápur og siðpils, sem gerðu það að verknm á tíma- bili, að bærinn varð fullur af lithim kerlingum. Hins vegar er dálítið kyndugt að sjá einn veg- faranda svo léttklæddan til fótanna og alla aðra dúðaða likt og nm hávetur. Er nokkuð merkilegt við það að fólk standi undir sturtu? Eigin- lega ekki; auk þess er fólkið óþekkt og ekki hægt að segja neitt frá þvi. Hins vegar er myndin tekin í gömlu sundlaugunnm og þá fara sjálfsagt margir að kannast við sturtuna. Iteykvíkingar tóku ástfóstri við gömlu sundlaugarnar og aldrei heyrðist það gagnrýnt þótt umgerðin væri orðin lirörleg, fúaspýtur og báru- járn. Einn víðföriill íslendingur taldi, að gömhi laugarnar væru það, sem hann saknaði mest á ferðum sinum erlendis. En það er óþarft að gráta; vonandi taka nýju laugarnar hinum fram að öllu leyti. 23. maí 1971 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.