Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1971, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1971, Side 1
ÉG heí lengi trúað því, að bver sá, sem áhugasamnr er um hinar leyndardómsfnllu eða rómantísku hliðar Mfs- ins, vex-ði fyrr eða síðar að taka ákveðna afstöðu varð- anxli Spán. Því á sania hátt og þessi foldgnái skagi þrengir sér út í Atlantshaf- ið í áþreifanlegum skilningi ©g stendur þar einangraður, þannig brýzt hugtakið Spánn inn í hugsanaheixn manns í heimspekilegum skilningi, skapar áhrif og vekur spurningar ólíkar því, sem gerist með öðrum þjóð- um. í þá fjóra áratugi, sem ég hef ferðazt um Spán, hef- ur mig alltaf langað til að lýsa þeirn sterku áhrifum, sexn þetta töfrandi land hef- ur haft á mig, og nú hef ég tækifæri til að gera það. I. Skyldi ferðamaður nokkru sinni hafa gengið á land á Spáni á heppilegri hátt en ég? t>egar ég var við nám í Skot- landi hafði ég siglt sem korta- drengur á flutningaskipi frá Clyde, sem flutti kol til ítaliu og appelsínur frá Spáni til baka handa marmelaðiverk- smiðjunum í Dundee. Við sigld um frá Glasgow á kafi i kola- ryki á þeim Ijótasta litla flökkudalli, sem nokkurn tíma hefur siglt fyrir Biscay-flóa. Við komumst ekki nema níutíu og sex milur á dag í mótvindi, höggvandi og veltandi allan timann, svo ég var orðinn lang leiður á ferðinni áður en við nokkurn tima sáum land. Loks sáum við Cabo Finisterre rísa úr hafi á bakborða og höfðum hann í sjónmáli meiri hluta þessa stormglaða dags, eins og lokkandi tálilm af Spáni, þar sem undir hann hillti upp úr gráum öldunum, traustlegan, dökkan og leyndardómsfuUan. Meðan farkostur okkar reis og hneig í öldudalina byrjaði þessi iandsýn að ásækja mig. Framar öllu öðru í þessutn heimi þráði ég að sjá þann Spán, sem Finisterre var hluti af í vestri. Fyrir þremur og hálfri öld hafði Sir Franeis Drake siglt hér hjá til að tor- James A. Michener SIÐPRÚÐAR KONUR SJÁST EKKI Á REIÐHJÓLI 'r -yí ■ 'mmÉÉ ■ ÍVÍV&rí . i ; ‘WÍr.ffílA'l! Minnispunktar 40 ára á Spáni. — Fyrri grein tima spænska flotanum og brenna spánskar hafnir. Hér hafði Armada verið fylkt til ár ásarinnar á Englandi, og eins og höíðinn kom mér fyrir sjón- ir þennan stormasama dag, hæfði hann vel sögulegum til- gangi. Hann var dökkur, þung- lamalegur, ólikur öllu, sem ég hafði áður séð. Hann var með sanni landsins látrabjarg, vest- asti höfði meginlands Evrópu, og skoraði hugarflugið á hólm. En við kvöddum Finisterre og plægðum okkar tilbreyting- arlausu leið suður á bóginn, og löngu síðar, þegar ég hafði vanizt veltingnum á hinu óþægilega skipi okkar, sigld- um við inn í Gíbraltarsund og ég sá, aftur á bakborða, sól- fylltar Algericas hæðirnar, og þær voru svo írábrugðnar þvi, sem ég hafði séð i storminum undan Finisterre-höfða, svo iað andi og óvæntar i litadýrð sinni, að ég fann aftur hjá mér hvötina til að flýja þetta skip og fara í land, gleyma Italíu, sem hafði vei'ið tilgangur ferð- arinnar. Gibraltar hvarf að baki, síð- an Mallorka og Korsíka, og að lokum losuðum við kolin I hinni fornu Civitavecchia, sem er ömurlegust allra ítalskra hafna, þar sem Michelangelo stax’faði eitt sinn sem borgar- arkitekt við að víggirða höfn- ina, og þar sem Henri Beyle dvaldist árum sarnan sem fi’anskur konsúll og gaf út hug leiðingar sinar undir nafninu Stendhal. Hann og Michel- angelo vöktu athygli mína um stund, en þegar ég fékk leyíi af kolaskipinu til að ferðast um Ítalíu, minntist ég oft þess- ara tveggja landsýna frá Spáni og þráði þann dag er við mundum sigla skipi okkar tómu inn í einhverja meirihátt- ar höfn eins og Valencia eða Barcelona til að sækja appel- sinur. Ég sá sjálfan mig i anda » stika i land til að skoða milli- liðalaust allt hið stói’feng- lega, sem ég var sannfærður um að fyrirfyndist í þessu svip stranga landi. Skipstjórinn var ekki viss um til hvaða hafnar við myndum halda, en treysti því að hann yrði látinn vita frá Glasgow í þann mund er við næðum til Mallorca. Þegar við vorum komnir á móts við eyjuna tilkynnti út- varpið loksins: „Castellón de la Plana“, og skipstjórinn var ánægður. „Ljómandi falleg smá borg,“ sagði hann. Ég flýtti mér að skoða sigl- ingakortin og sá, að Castellón lá milli Barcelona og Valencia. Sjálf borgin var um tvær míl- ur eða rúmlega það frá höfn- inni inni í landi. Þetta var meiriháttar útflutningshöfn fyr ir appelsínur, og samkvæmt gamalli hefð sá staður á Spáni, þar sem fyrsti markaður og nautaatssýning ársins voru haldin. „Castellón er meðal beztu staða á Spáni til að byrja heimsókn,“ fullvissaði skip- stjórinn mig um. 2. Á leiðinni frá Mallorca til meginlandsins lagði ég leið- beiningarnar í „Leiðsögubók Framh. á bls. 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.