Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1971, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1971, Síða 3
Myndskreyting: Alfreð Flóki. Erik Lindegren EINE KLEINE NACHTMUSIK Og þeir hengdu hörpur sínar í pílviðartrén og þyt vindsins . . . og um hátíðina, þegar sjálfu vorinu var blótað, voru þeir hengdir eða þeir hengdu sig sjálfir í pílviðartrjánum og þyti vindsins . . . (og sumir voru þar að auki slitnir sundur fyrir að neita að syngja) og vindurinn fyllti að lokum maga þeirra og stillti þarma þeirra con amore, og vindurinn blés í lungu þeirra eins og trompet og söng í strjúpum þeirra, flautaði í nösum þeirra og dillaði í hryggjarliðum þeirra, og um stormanætur slógust hjörtu við nýru eins og skálabumbur, og þegar við bættist léttur trumbuleikur hrafnsins og hörpusláttur gammsins þóttust miargir hlýða á hljómmikla og unaðslega hljómsveit. Jóhann Hjálmarsson þýddi. í úttekt kirkjunnar 1797 segir frá stórum koparhring, „sem hafi verið í kirkjuhurðinni, úr hvörjum sprungið er töluvert stykki og að auk vottar til sprungu, hvort tveggja auðsjá anlega skeð af því, að járn sem hefir verið innan í öllum hringnum, hefir með rúst orsakað þessa galla.“ Árið 1838 þegar staðurinn er tekinn út eftir Guðmund prófast Jónsson i hendur séra Péturs Péturssonar síðar bisk- ups, er hringurinn ekki nefnd- ur á nafn, enda var hann þá glataður. Þegar Mackenzie var að ferðast hér um land 1810, kom hann við á Staða- stað og sá hringinn og fékk ágirnd á honum. Hringurinn var þá ekki lengur í kirkju- hurðinni. Hann hafði verið tek inn úr henni um 1790 og „geymdur" og enginn hefir treyst sér til að gera við hann. Ef til viil mun Guðmundur prófastur hafa talið, að ekki væri mikil eign í þessum grip, og gaf hann því Mackenzie hringinn. Þar fór sá góði grip- ur til útlanda, eins og svo margir aðrir gripir, sem út- lendum ferðamönnum voru „gefnir". Einn af þeim merku klenk- um, sem Staðastað hafa setið, var Sigurður Sigurðsson próf- asts í Stafholti, Oddssonar bisk- ups Einarssonar í Skálholti. Séra Sigurður var fæddur um 1646. „Fór utan 1668, skráður í stúdentatölu í háskólanum i Kaupmannahöfn 21. sept s.á„ varð attestatus, kom til lands- ins 1670, fór síðan aftur utan og í 3. sinn 1679, fékk 24. nóv. 1679 hirðstjóraveiting fyrir Staðastað (konungsstaðfesting 20. marz 1680), vígðist 12. sept. 1680 og hélt til æviloka. Var talinn vel lærður og fékk gott orð, var stórauðugur“. (Isl. æviskrár.) Þetta sama sumar (1680) kvongaðist séra Sigurður og gekk að eiga Sigriði Hákon- ardóttur í Bræðratungu, Gisla- sonar lögmanns Hákonarsonar. Var hún talin einhver hdnn bezti kvenkostur hér á landi, talin stórlynd, en kvenskör- ungur hinn mesti. Hún var og auðug mjög eins og maður hennar. Þessi hjón urðu for- eldrar atkvæðamesta manns 18. aldar hér á landi, Odds lög- manns. Hann missti föður sinn ungur, séra Sigurður andaðist 1690. Ólst Oddur síðan upp hjá móður sinni við mikið ást- ríki og eftirlæti. Enginn getur nú sagt hver hefði orðið ævi Odds, ef hann hefði notið handleiðslu föður sins, en sannast þótti á honum, að sitt er hvað gæfa og gjörvuleiki. Jón Aðiis sagnfræðingur ritaði bók um Odd og skýrði svo þverbrestina i skapgerð hans: „Á þeim tímum var alþýða manna hér á landi miklu þræi- lyndari og ósjálfstæðari en nú á dögum. Allir lutu auðnum, metorðunum og ættgöfgínni,. smjaðrið kvað stöðugt við í eyr um þeirra, sem áttu eitthvað undir sér, og alþýðan þorði ekki annað en sitja og standa eins og þeir vildu. Þá var lika miklu meiri munur á efnahag manna en síðar varð. Fáeinir menn á landinu voru stórauð- ugir, áttu jarðir svo tugum skipti og lausafé að því skapi, en allur þorri manna bjó við fátækt og vesöld. Oddur mátti því snemma veita því eftir- tekt, að allflestir út í frá lutu móður hans, en móðir hans og allt heimilisfóikið laut honum. Það var þvi engin furða, þótt sjálfsálitið og drottnunargirn- in kviknuðu snemma hjá hon- um. Þessir eiginleikar voru arf gengir í báðar ættir hans. Móð- ir hans gerði sér heldur ekki mikið far um að kæfa þá nið- ur, þó hún yrði vör við þá. Hún kannaðist við þá úr ætt- inni, og taldi henni þá heldur til gildis en hitt. Hún áleit syni sínum alia vegi færa, bæði sökum auðs og ætternis." Af þessu stafaði hin lánlitla stórmennska Odds, en stór- menni hefir hann verið að uppiagi og gáfum og þrátt fyr- ir allt átti hann engan sinn iika. Ot í það skal svo ekki iengra farið. Hans er að- eins minnzt hér vegna foreldra sinna og af vissu tilefni. Framh. á bls. 14 Myndirnar sýna skreytingar í hornum legsteinsins 31. október 1971 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.