Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1971, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1971, Síða 9
Geir Ófeigsson í Næf urliolfi að beizla eftir Oddi og sá þá þrjár kind- ur til viðbótar. Við eltum þær fram að sandvaðinu, en þá seg- ist Oddur ekki þora annað, en fara áftur til baka og fyrir fjallið á móti þeim, ef þær færu ekki á vaðið. Og það var eins og við manninn mælt, um leið ag Oddur var horfinn, þá tóku þær strikið beint upp i íjallið í algjöru virðingarleysi við hróp min og handapat, sem áttu að beina þeim út á vaðið. Siðan plötuðu þær Odd með þvi að vera fyrir ofan hann þegar hann kom á móti þeim og er ekki að orðlengja það, að þær gáfu sig ekki fyrr en við höfð- um klifið fjallið upp á hæsta hól. Þá lölluðu þær sér ósköp meinleysislega yfir vaðið, eins og þetta hefði nú alitaf staðið til hjá þeim, hvort sem var. Um kvöldið upphófst mikill söngur og gleðskapur og var þar fremstur í flokki Haraldur á Hólum. Kynntust nú fljótt þeir, sem voru ókunnugir og tókst svo vel til með mig, að flestir reyndust undir lokin vera frændur míhir í móðurætt. Var mér nú tekið eins og týnda sauðinum og siðan sungum við Ijóð skálds allra Rangæinga, Þorsteins Erlingssonar, fram undir morgun. Daginn eftir átti að smala Jök ulgilið, en það nær frá Land- mannalaugum að Torfajökli og Kaldaklofi. Er tveggja tíma reið þangað, sem ieiðir skiljast og skipt er í leitir, en talið er, að átján sinnum þurfi að fara yfir Jökulkvislina á ieiðinni innúr. Á leiðinni er hella nokkur með gati á og fylgir henni viss kvöð fyrir nýliða, sem mér tókst þó að losna við. Aftur á möti tók ég mjög virðulega ofan fyrir hatti þeim hinum mikla, sem er innst í Jökulgilinu. Er það að ég held blágrýtishamar, sem hvilir á mó- og leirhellu og skagar útaf, svo minnir einna helzt á hatt. Mér var skipað i leit með Ás- geiri kóngi, Oddi og pilti nokkr uim Sigvarði Haraldssyni frá Heiðarbrún, upp á milli Hamra gilja, sem kallað er. Eru þar mörg hengiflug ægileg mjög, þvi árnar hafa grafið niður mjúkan leirsteininn svo skipt- ir mörg hundruð metrum, en i slökkum og á heiðum uppi er ágætt beitiiand fyrir kindur. Fjórar kindur stáum við hand- an við Stóra-Hamragilið og tókst okkur að hóa þeim þann- ig, að þær runnu áfram að Jök- ulgilinu, þar sem menn og hund ar náðu þeim svo seinna. Kóng urinn og Oddur höfðu nógan starfa að passa Sigvarð, en hann fór sem fuglinn fljúgandi um svæðið. Mig þurfti enginn að passa, því ég skreið á mín- um f jórum megnið af leiðinni. Á leiðinni framúr Jökulgil inu ræddu menn mjög hvort Landmenn eða Holtamenn ættu sauði nokkra, sem voru með i hópnum. Ég taldi mig geta nokk uð til málanna lagt, þótt ekkert þekkti ég markið, því Húnvetn ingar stæðu að mér í hinni ætt- inni. Eftir það var ég jafnan kallaður sauðaþjófurinn. — Honi soit qui mad y pense. Daginn eftir var komið hríð- arfjúk, þegar við vöknuðum og menn nokkuð óhressir til fóta- ferða af þeim sökum. Oddur var að víau byrjaður að hita kaffi í mannskapinn kl. 6 eins og hann var vanur og Pálmi Sigfússon á Læk, hafði litlu siðar súpu tilbúna handa hverj um sem hafa vildi, lika eins og hann var vairur. Menn drógust þó í vatnsgallana, náðu í hest- ana og skipað var í leitir. Ég lenti ásamt fleirum með Sigurði kóngi og áttum við að smaia Norðurnáminn, Tjörfafellið og síðan það sem við sæjum fram að Landmannahelli, því nú var kominn tími til að skipta um náttstað. Strax við Laugarnar fundum við tvær kindur og töfðumst töluvert að koma þeim í gerði, sem er þarna, því flug- hált var orðið í fjallshlíðunum vegna snjókomunnar. Þegar við komumst að Norð- umáminum var kominn frost- bylur og ógerningur að greina nokkra kind og því siður að reyna að eltast við þær. Nokkr ir þóttust heyra jarmur uppi hhðinni, en ókleift var að gæta að þvi. Við snérum því við, rið- um að Frostastaðavatni og æ<l- uðum að hitta þar nokkra Ifeit- armenn í bíl, en urðum þeirra ekki varir. Kóngur skipaði okkur nú að halda aftur í Laug arnar i skjól og var veðurhæð- in og hríðin þá orðin slik, að ég hélit helzt að ég fyki af tölt- aranum mínum á Frostastaða- hálisi. Eftir nokkra klukkutíma bið í skálanum var veðrið aðeins að ganga niður og við lögðum af stað aftur. Fundust nú strax 5 kindur þar sem jarmið hafði heyrzt og 9 annars staðar, þar sem við höfðum þó riðið um. Um miðnætti komumst við til Heilisins og urðu margir fegn- ir endurfundunum þar, því sum ir höfðu verið gangandi upp á f jöllum megnið af deginum. Féð bar þó heldur litla virðingu fyrir mannraunum okkar, því það gerði ítrekaðar tilraunir að sleppa í náttmyrkrinu. Ein komst þó að þvi fullkeyptu, því við Helgi Haraldsson á Efri-Rauðalæk eltum hana nið- ur í djúpt gil á Dómadalshálsi, en ekki gaf hún sig fyrr en hún lá öfug í gilsánni. Þá var eftir að ná henni uppúr, sem var þyngri þrautin, því nú neit aði hún alveg að ganga. End- aði þetta með þvi að Helgi tók hana á herðarnar og bar hana uppúr gilinu. Þar urðum við þó að skilja hana eftir því nú var lambið týnt. Þau komu þó bæði í leitirnar daginn eftir. Á þriðjudagsmorguninn var enn hriðarfjúk og talað var um að fresta þyrfti Iieitum. Otvarp ið sagði okkur frá fjársköðum í öðrum landshlutum vegna veð ursins. Um tíuleitið ranglaði ég út úr Höllinni, sem nú hafði komið að góðum notum í kuld- anum og hélt að gamla leitar- húsinu. Þar var mér kippt inn fyrir dyrnar, Kristján Gislason I Vindási bauð mér síðustu mál tíðina og fyrirbæn, því nú hefði verið gerð uppreisn i 31. októþer 1971 LESBÓK MORGUNBLAÐ SINS 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.