Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1971, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1971, Qupperneq 11
 SWMYND EILEEN FORD EILEEN Ford, eigandi stærsta módel-fyrirtækis í heiminum, sækir helming- inn af stúlkum sínum til Evrópu. Hún er ekki eitt andartak í vafa, þegar hún innan um hundruð stúlkna í París, Stokkhólmi eða Kaup mannahöfn sér þá, sem er einmitt þeim kostum búin, er gera hana milljónavirði fyrir Eileen. Á hinn bóginn er hún fyrirsætum sínum eins og móðir — og á við öll vandamál móðurinnar að stríða. Eileen Ford er án afláts á höttunum eftir stúlkum. Hún leitar þær uppi frá Múnehen til Melbourne, frá Kaupmanna- höfn til Rómaborgar. Hún kennir þeim, hvernig þær eiga að klæðast, farða andlit si'tt og handleika hníf og gaffal. Síð- an kemur hún þeim um borð i þotu til Nevv York— og leigir þær út. Hún er einn liður í því iðn- aðarheimsveldi, sem selur þeim stúlkum föt, snyrtivörur og ilm vötn, er dreymir um að vinna kraftaverk á útliti sínu. Því að það er sama, hve ófríð stúlk- an er, hún sóar ekki pening- um í töfralyf fyrr en hún hef- ur fengið sannanir fyrir því að það hafi áhrif. Fyrirsætuskrifstofa Eileen Ford innheimtir árlega rúm- lega hálfan milljarð króna með þvi að birta sönnunina í blaða- og sjónvarpsauglýsingum. Sönnunin er fegurstu, glæsi- legustu og bezt snyrtu konur í heimi. En það er ekki auðvelt að hafa upp á þeim. Rúmlega heimingur af fyrirsætum Ford- hússins er frá Bandarikjunum. Hinar verður að finna erlend- is. Þess vegna fer Eileen til Evrópu fjórum sinnum á ári og kembir álfuna þvera og endi- langa. Af þeim hundruðum stúlkna, sem hún sér og talar við eru örfáar sendar til fram- haldsmenntunar í Milano, Munchen, London, París eða New York. Það eru ekki eingöngu þaul- vanar atvinnufyrirsætur, sem Eileen sækist eftir. Hún er að leita að st.iörnimni, hinni óreyndu sextán ára stúlku, sem án þess að vita af þvi, hef- ur einmitt það til að bera, sem 'tízkuritstjórar, ljósmyndarar og tízkuteiknarar þrá. Skjóti slík stúlka upp koliinum, er hún umsvifalaust send til New York, þar sem hún býr á heim- ili Eileen Ford sjálfrar og hef ur fæði, föt og herbergi með dætrum hennar. Eileen kennir henni, Eileen gætir hennar, hirðir um hana og vakir yfir henni og næstu tíu-tólf ár ævi sinnar vinnur hún fyrir jafn mörgum tugum milljóna króna. Á sama tíma verður kostnaður fyrirtækisins af henni litið brot af þeirri upphæð. Eileen gerir sér ekki ferð til Evrópu af tómri hjartagæzku. Hún fer til að finna stúlkuna, sem gef- ur henni sjálfri milljónir í aðra hönd. Hvernig hún fer að því? „Það er alltaf að finna visst sjáifstraust hjá þeim rétttu," segir hún. „Þær hafa eittlivað við sig, ég veit ekki hvað það er, en ég veit undireins, að þær verða góðar. Það er hvernig þær tala, hvernig þær hreyfa sig. Ég rekst á stúlkufj sem ég veit að verða stjörnur á fáein- um vikum. Og það rætist allt- af.“ Eileen Ford opnaði skrif- stofu sína fyrir 24 árum, þeg- ar hún var sjálf tvítug og barnshafandi. Til þess að vinna sér inn aukaskilding og til að hafa eitthvað fyrir stafni, tók hún að sér að vera einka- ritari nokkurra vinkvenna sinna sem voru fyrirsælur. Nú hefur hún 180 fyrirsætur á sín- um snærum, fyrirtæki hennar er hið stærsta — og virtasta — sinnar tegundar í heiminum. Hún er hörð i horn að taka í viðskiptum, kröfuhörð, óþreyt- andi og einbeitt eins og eigin- maður hennar Jerry, sem einn- ig er fjörutíu og fjögurra ára og sér um reikningshald fyr- irtækisins og karlkyns fyrirsæt urnar. Evrópuhringferðir Eileen hefjast ávallt i París, oft með hanastélsveizlu hjá umboðs- manni á staðnum. Gestirnir eru nær allir stúlkur, sem komnar eru til skoðunar hja Eileen Ford. Eitt orð af henn- ar vörum og þær eru komn- ar upp í þotu á leið til New York, auðs og frægðar og eig- inmanns úr hópi milljóneranna. Slikit er ekki einsdæmi. Falleg stúlka situr á stól og starir tómlega á hinar. Maður spyr eina fyrirsætuna hvað ania kunni að stúlkunni. Fyr- irsætan lítur snöggt á hana og svarar: ,,í dag hefur her ljós- myndara stagazt á því við hana, að annaðhvort séu eyr- un á henni of sitór eða þá að nefið sé of þunnt. Ef það er ekki þetta þá er það eitthvað annað. Fyrirsætur geta aldrei verið öruggar. Þær hafa óör- uggasta starf í veröldinni. Þessa stundina finnst henni hún vera ljótasta kvikindi á jörðunni. Hún er viss um að Eileen virðir hana ekki viðlits. Hún verður farin eftir nokkr- ar mínútur." Daginn eftir er Eileen i Gautaborg. Hún veitir stúlkun- um móttöku klukkan níu á gisti húsi sínu. Stúlkurnar sitja og bíða í svefnberberginu og ganga inn í stofuna ein í einu, rétta fram höndina og setjast og brosa vandræðalega. Þetta er slæmur morgunn. Engin stúlknanna er nothæf. Eileen á erfitt. „Það er mikil raun að þurfa að segja stúlku að hún sé ekki nógu lagleg til að verða fyrirsæta. Særi maður hana, á maður á hættu að valda henni ævilöngu tjóni.“ ,,Þú eri of lítil til að verða fyrirsæta," segir hún við eina fimmtán ára, „en þú hefur fal- legus'.u tennur í allri Svíþjóð." Stúlkan er gráti næst. „Það er ekki eina hamingjan í heim- inum að vera fyrirsæta," seg- ir Eileen, ,,og þegar öllu er á botninn hvolft, er betra að vita sannleikann strax, i stað þess að láta nýta sig og verða að engu, er það ekki?“ Stúlkan ris á fætur, brosir, þakkar fyr- ir sig og fer. Eileen heldur för sinni áfram til Kaupmannahafnar, þar sem hún m.a. snæðir miðdegisverð með finnskum blaðaútgefanda Áatos Erkko, og konu hans. Hann minnist á ákafa Eileen við að umbreyta tilveru ungra stúlkna. „Manstu eftir Mary?“ spyr kona hans. „Eileen hafði komið til Helsingfors til að vera dómari í einni fegurðar- samkeppni Aatos. Mörg hundr uð stúlkur höfðu sent mynd af sér og á blaðinu var svörun- um skipt í fjóra flokka. í bezta 31. október 1971 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.