Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1971, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1971, Qupperneq 14
ílugvéla hjá De Havillaind: I)HC-7, sem verður íjögurra- hreyfla hljóðlát skrúfuþota, og AWC, sem verður tveggja- hreyfla þota. DHC-7 er ætluð til flutninga á stuttum leiðum. Hún hefur fjóra PT6A-50 mótora, sem hver er 1.035 öhö. (öxulhestöfl). Skrúfurnar verða með mjög löngum blöð- um, sem lítið lætur í, m.a. af þvi, að gírhlutfaliið verð- ur mjög hátt. Hjólin verður hægt að draga upp, flugvélin hefur T-stél, vængurinn er há- settur með um 30 metra haf. DHC-7 verður afar sterkbyggð með sem einföldustum, en áreið anlegustum útbúnaði, innbyggð um tröppum og jafnþrýstingi í stjórn- og farþegarýmum. Að stærð og hreyflum frátöldum eru flest ofantalin atriði sam- eiginleg þessum nýja flokki flugvéla. AWC-þotan frá De Hav- illand er búin nýstárlegum, en að sögn mjög góðum útbúnaði í vængjum til að auka lyfti þeirra. Er hann í stuttu máli þannig, að í fiugtaki og lend- ingu er lofti frá hreyflunum blásið út i vængina og út um raufar framan við og á milli tvöfaldra flappa. Hafa tilraun ir sýnt, að þetta blásturskerfi verkar vel, og það er auk þess einfalt eftir því sem gerist um lyftisaukningarútbúnað á flug- vélum. Canadair-verksmiðjurn- ar hafa gert teikningar af bratt fleygri þotu, sem í fljótu bragði sýnist byggð á DHC Buffakr Þessi þota, Canadair Cl-246, á að vera fyrir 70 farþega, og vegur hún þá rúm 30 tonn. Boeing-verksmiðjurnar í samvinnu við ítalska fyrirtæk- ið Aerita'lia hafa sent frá sér drög að nýrri flugvól. Er það fjögurra hreyfla brattfleyg þota, sem á að geta flutt 100— 150 farþega. Er hugsanlegt, að hún gæti orðið tilbúin til sölu árið 1975, og, ef flugfélög sýna nægan áhuga, tilbúin til afhendingar um fjórum árum síðar. Þessi stóra flugvél á að geta komizt af með 600 metra langar brautir. Hún er hljóð- lát, stöðug á flugi og hefur svipaðan lyftisaukabúnað og DHC-7, þ.e. hluta af loftinu, sem fara á í gegnum mótorana, er b'ásið framhjá og út í væng- ina á flappana. í Evrópu hafa Frakkar smíð- að þá stóru brattfleygu flug- vél, sem sennilega mest reyinsla hefur fengizt af. Það er Bréguet 941 (Sjá: Fiugstöðvar í miðborgum á næsta leiti, Lesbók Mbl. 29. sept. 1968), sem hefur komizt á loft og lent á 100 metra langri braut. Bréguet 941 hefur verið reynd í farþegaflugi í Bandaríkjun- um með góðum árangri (und- ir heitinu McDonnel Douglas 188). Aerospatiale í Frakklandi bjóða nú upp á nýja bratt- fleyga fjögra hreyfla þotu, A-904. Á hún að hafa sæti fyr- ir 130 farþega. Mesta þyngd er 51.000 kg og flughraðinn er 850 km/t. Þessi flugvél á að vera mjög hentug á fiugleið- um innan við 500 km. Önnur flugvél vii'ðist vera ný útgáfa af Bréguet 941. Er það AMD-188, fjögurra hreyfla skrúfuþota fyrir 67 farþega, um 26 tonn að þyngd íulihlað- in. Svo er það Bertin Aiadin 2A, 4-hreyfla þota fyrir 100 farþega. Hún hefur fjóra Snecma þrýstiloftsmótora og flýgur með rúmiega 500 km/t hraða. í Hollandi hafa Fokker- verksmiðjurnar unnið að brattfleygri útgáfu af hinni kunnu Friendship. Flugvél þessi nefnist Fokker-VFW P 301. Hún á að hafa fjóra PT6A-50 túrbinumótora (þá sömu og DHC-7) og á að fljúga með um 460 km/t hraða. Stærð flugvélarinnar er því sem næst hin sama og Friendship, og sætafjöldinn er sá sami (48—56). P 301 á að geta full- hlaðin (19.522 kg) hafið sig til flugs af 533 metra langri braut og lent á 348 m langri braut. Lendingarhraðinn er 110 km/t. Það, sem gerir P 301 fært að fljúga bratt, eru einkum ný og endurbætt flappakerfi. Flug vélin verður afar hávaðalítil, litlu háværari en bíll. 1 Englandi er British Air- craft Corporation nýbúið að senda frá sér upplýsingar um nýja brattfleyga þotu, sem fé- lagið hyggst smíða. Þetta er 15AC QSTOL með sæti handa 108—140 farþegum. Þessi flug vél á að hafa fjóra Rolls Royce eða Snecma þrýstiloftshreyfla, og er mikil áherzla lögð á, hversu hávaðalítil þotan verð- ur. Þetta er vel trúanlegt, því að náðst hefur mikill árangur við að minnka hávaðann í flug véiahreyflum. Væri vel, ef bif- reiðaframleiðendur stæðu sig eins vel. Varðandi reyk frá flugvélahreyflum má geta þess, að nú hefur tekizt, m.a. með því að breyíta lögun brennsluhólf- anna, að framleiða þotu- hreyfla, sem engan reyk legg- ur frá. BAC QSTOL hefur um 35 m vænghaf, og hún verður um 34 m löng. Hún á að geta notað 610 m langar brautir. Aðrar upplýsingar um þessa þotu, sem er afar lík hinni frönsku Aerospatiale A-904 — eða öf- ugt — liggja ekki fyrir enn. BAC segist geta haft þotuna til búna til farþegaflugs 1977—8. Fyrir utan hinar góðkunnu og þrautreyndu brattfleygu flugvélar frá þýzku Dornier- verksmiðjunum (DO-27 til 31), skulu að lokum nefndar nokkrar flugvéiar í þessum flokki: Fiat á Ítalíu er að hefja framleiðslu á brattfleygri flutningaflugvél Fiat G 222, sem á að geta fliutt 9 tonn í ferð með 450 km/t hraða. Hún er tveggja hreyfla skrúfuþota, um 23 m löng. Hún getur iíka flutt 44 hermenn með alvæpni. 1 Tékkóslóvakiu er fram- leiðsia að hefjast á Let Nar- odni Podnik L 410. Þetta er lit- il (lengd 13,61 m) tveggja hreyfla skrúfuþota með sætum fyrir 9—17 farþega. Hún veg- ur fullhlaðin 5.100 kg og flug- hraðinn er 330 km/t. I ísrael er nú að hefjast framleiðsla á flugvél, sem bæði er ætluð til hernaðar- og borg- aralegra þarfa. Þetta er IAI 101 Arava, 13 m löng tveggja- hreyfla (PT6A-27) skrúfuþota með eiginleika brattfleygra flugvéla. Hún getur flutt 20 manns í sæti (eða 1 bil) og og vegur fullhlaðin 5.670 kg. Flughraðinn er 330 km/t. Arava vakti talsverða eftir- tekt á flugsýningunni miklu I Paris nú i sumar. Því má skjóta hér inn í, að risaflug- vélin Galaxy C-5A vakti mikla athygli á þessari sömu sýningu fyrir hversu bratt hún gat flogið. Eins og kunnugt er, er C-5A stærsta flugvél, sem nú flýgur. Brattfleygar flugvélar hafa hæfileikann til að fljúga með litlum hraða, og aðflugshraði þeirra til lendingar er afar lít- ill miðað við venjulegar flug- vélar af sömu stærð. Eins og kunnugt er, verða flest flug- óhöpp við flugtak og lendingu, þ.e.a.s. þegar flughraðinn er til tölulega lítill og þeim fatast frekar flugið. Brattfleygu fílugvélarnar komast líka af með miklu styttri flugbraut- ir en venjulegar flugvélar, og því ætti svo til engin hætta að vera á framafbruni. Það má telja fullvíst, að flest ar, ef ekki allar, þeirra flug- véla, sem hér hafa verið nefndar, muni verða smiðaðar. Þangað til, eða um 1980, mun- um við halda áfram að sjá end- urbættar gerðir þeirra flug- véla, sem nú ber mest á. Enn- fremur mun koma fram í dags- ljósið fjöldinn allur af „furðu- fuglum", sem nú þegar eru á teikniborðunum. Af nýjunga- legum flugvélum, sem nú eru á líkanastigi, má nefna Dornier Do-231, Hawker-Siddeley HS- 141 og VFW-Fokker VC-400. Að sjálfsögðu eiga allar þessar flugvélar ekki erindi í þjónustu íslenzkra flugfélaga, en það er nauðsynlegt að fylgjast vel með þróuninni, því að fyrr eða síðar kemur að því, að við munum þurfa á einhverri eða einhverjum þeirra að halda. Merkilegur legsteinn á Staðastað Framh. af bls. 3 Sú arfsögn hefir gengið um Staðarsveit fram á þennan dag, að séra Sigurður hafi sjáifur látið gera legstein á leiði sitt, nokkru áður en hann dó. Fékk hann danskan listamann til þess að höggva steininn og var hann síðan sendur hingað til lands með Búðaskipi og fluttur á iand á Búðuim. Þar var hann svo geymdur fram á vetur, en þá var hann dreginn á ísum inn til kirkjustaðarins, Staðastaðar, því að hann var svo þungur og fyrirferðarmikili, að hann varð eigi fluttur þangað á annan hátt. Séra Sigurður andaðist 17. nóvember 1690. Hann hafði kosið sér legstað innan kirkju á Staðastað, í kórnum. Þar var hann grafinn og hellan mikla lögð á gröf hans. Séra Sigurð- ur var ekki nema 44 ára er hann andaðist, hafði þjónað Staðastað um 10 ár og verið prófastur og talinn með heiztu prestum í Skálholtsstifti. Sigriður ekkja hans lifði lengi eftir þetta og giftist ekki. Hún andaðist 25. marz 1733 og getur séra Jón Halldórsson í Hítardal þess svo í annál sLn- um: „SSgríður Hákonardótt- ir, seinast á Syðra Rauðamel, 85 ára gömul, dó sætlega á sjálfa Maríumessu á langa- föstu um dagmál, grafin virðu- lega þann 10. apríl í Staða- staðarkór hjá sinum eksta- manni, prófastinum séra Sig- urði Sigurðssyni, var ekkja 43 ár, ein hin helzta höfðings- kvinna hér á landi á hennar dögum." Árið eftir að Sigríður and- aðist, þá um haustið, fluttist Oddur lögmaður að Leirá í Leirársveit. Bjó hann þar við auðlegð og húsaði allan staðinn vel og vandlega. Hann varð bráðkvaddur að- fararnótt 5. ágúst 1747 og hvílir í Leirárkirkjugarði. Með hon- um varð þessi ættleggur al- dauða. Það er furðulega vítt bygg- ingarsvæði á Staðastað. Þegar komið er þangað liggur heim- reiðin nú fyrst framhjá kirkj- unni og nokkurn spöl fyrir norðan hana stendur prestsetr ið. Þar fyrir norðan koma svo útihús og norðan við þau mjög stór kirkjugarður. En fyrir norðan hann er stór og hár grasi vaxinn hóil. Á þessum hóli hefir fyrsti bærinn á Staðastað verið reistur og þar mun Ari fróði hafa búið, Þor- gils prestur sonur hans og Ari hinn sterki sonur Þorigils. Síð- an bjuggu þar Stunlungar, Þórður Sturluson og Böðvar sonur hans. Þarna hafa bæjarhúsin verið um margar aldir, bærinn byggð ur upp hvað eftir annað, og þess vegna er hóllinn svo hár, að þarna er hver bæjarrústin ofan á annari. Mundu þær rúst ir geta miðlað mikium fróðleik, Einhvern tíma á seinni öld- um hefir bærinn verið færður suður fyrir kirkjugarðinn. Ég hefi ekki fundið neinar upp- lýsingar um hvenær þetta var gert, né af hvaða ástæðu það var gert. En þarna fyrir sunn- an kirkjugarðinn stóð bærinn alllengi, rismikill og stór torf- bær. Árið 1901 kom nýr prestur að Staðastað, séra Vilhjálmur Briem, og settist að í torfbæn- um, því að hann var prests- setrið. Fjórum árum seinna brann bærinn og segir svo frá því í „Þjóðólfi": „Hinn 19. júní (1905) brann bærinn á Stað á Ölduhrygg ná- lega til kaldra kola. Af innan- stokksmunum varð eigi nærri öllu bjargað, því eldsins varð eigi vart fyrr en þekjurnar voru nær alelda. Presturinn, séra Vilhjálmur Briem, var eigi heima, en þó á næsta bæ. Voru því eigi aðrir menn til björg- unar en vinnumaður prests og daglaunamaður einn. Eldsvoð- inn stafaði frá pípu, er lá frá eldavél upp um baðstofuþekj- una en þekjur bæjarhúsanna voru aliar, utan yfir torfi, huldar tjörupappa og því eld- fimar rnjög." Hafizt var þegar handa að reisa nýtt prestssetur. Var það ekki reist á bæjarrústunum heldur nokkru sunnar. Þetta var mjög gott hús úr timbri, ein hæð og ris, en undir hlað- inn kjallari. S!óð þetla hús til ársins 1939, en þá var reist úr steinsteypu prestssetrið sem nú er á staðnum og stendur talsvert sunnar en hit.t húsið var. Síðan var hafin smíð nýrr ar kirkju árið 1942, góðan spðl fyrir sunnan prestssetrið, alveg suður á sjálfum Öldu- hryggnum. Kirkja þessi var fullsmíðuð og vígð vorið 1944 og er reisulegt hús með háum turni og blasir við um alla sveit. Er drjúgur spölur milli hennar og kirkjugarðsins, sem er í hvarfi við aðrar bygging- ar. Þá er að minnast á kirkju- garðinn. Hann mun vera með stærstu kirkjugörðum 1 sveit, enda hef- ir hann verið færður út hvað eftir annað. Eftir að bærinn brann, var kirkjugarðurinn stækkaður suður á við og hurfu þá bæjarrústirnar inn í hann. Auk þess hefir ver- ið bætt við hann drjúgri spildu að austan. 1 þess- um garöi eru enn undirstöður tveggja kirkna, sem þar hafa staðið og hefir sóknarnefnd lát ið sér umhugað um að þær týndust ekki. Svo sem fyrr er getið mun ekki vitað hvenær fyrsta kirkjan var reist á Staðastað, en torfkirkja hefir það verið. Fyrsti kirkjugarðurinn hefir líklega verið ferhyrndur og kirkjan staðið í miðjum garðinum og má enn gera sér nokkra grein fyrir hvemig garðurinn hefir verið. Norður- veggur hans hefir verið skammt frá bænum, sem þá stóð á sínum upphaflega stað, og sennilega hefir þessi vegj- ur verið jafnlangur framhlið bæjarins, sem líklega hefir ver ið skáli ásamt fleiri húsum. Og vegna þess, að kirkjustæðið er enn þekkt, má sjá hve stór hinn fyrsti kirkjugarður hefir verið, sé gert ráð íyrir að kirkjan hafi staðið í honum miðjum. Þarna stóð svo torf- kirkja öld fram af öid, að visu endurbyggð nokkrum sinnum. Þetta var Maríukirkja og er þess getið að 1279 hafi verið þar 2 prestar og djákni, en þetta hefir breytzt með siða- skiptunum og ef til vill fyrr. Þessi torfkirkja stóð enn á Staðastað þegar séra Sigurður Sigurðsson var þar prestur, og í kór þeirrar kirkju var hann grafinn og hellan lögð á Ieiði hans. Og enn stóð þessi kirkja, er Sigríður Hákonardóltir var grafin þar undir heliunni 1733. Gísli Magnússon tók við Staðastaðarpres:akalii 1746 og hélt það til 1755, er hann gerðist biskup á Hólum. Hann var hinn mesti framkvæmda- maður og skörungur og mun honum hafa litizt gamla torf- kirkjan á Staðastað ósamboð- in staðnum. Hann hóf því fljót lega að reisa þar nýja kirkju og var hún fullsmíðuð 1749. Þetta var timburkirkja 9 staf- góif að stærð og hið virðuleg- asta guðshús. En hún stóð ekki þar sem gamla kirkjan var, heidur nokkru sunnar í garð- inum, og jafnframt var garður- inn þá stækkaður til suðurs og gerðir að honum voldugir veggir allt um kring. Á vest- urvegg miðjum var klukkna- port úr timbri, vandað og vel frá gengið og í því 3 klukkur. Er auðséð á öliu, að prestur hefur viljað vanda allan frá- gang þarna sem bezt. Maðal annars iét hann gera grunn undir nýju kirkjuna úr s*ór- grýti, sem flutt mun hafa ver- ið ofan úr fjalli. Þessi grur.n- 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 31. október 1971

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.