Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1972, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1972, Page 1
Allt frá því blöðin fyrst urðu til, hafa þau gert þjóð- höfðingjum. og stjórnmála- mönnum gramt í geði. Blöðin voru þyrnir í augum valdhaf- anna og skipti þá engu máli, hverjir þeir voru eða hvar þeir riktu. Aðeins einum þjóðhöfð- ingja hugkvæmdist að unnt væri að nota blöðin valdhöf- unum til framdráttar — það var Friðrik mikli Prússakon- ungur, en hann smyglaði áróð- ursgreinum inn í hollenzku dagblöðin Enginn þjóðhöfðingi eða stjórnmálamaður hafði þó gert sér möguleika dagblaðanna ljósa fyrr en Napoleon fékk áhuga á þeim Hann kallaði blöðin eitt sinn stórveldi og kom fram við þau eins og önn- ur veldi í Evrópu; hann var reiðubúinn að gera banda- lag við þau, ef þau vildu vera hans auðmjúku þjónar, að öðr- um kosti beizlaði hann þau eða braut á bak aftur. Napoleon var mikill bók- menntaunnandi. Ungur að árum las hann Rousseau og grét höfugum tárum yfir Ossian. Hann sendi inn svör við heim- spekispurningum blaðanna, skrifaði sögu Korsíku og mærð arfulla skáldsögu um ást sina til Désirée, sem hafnaði honum og valdi Bernadotte. En Napoleon þjáðist ekki af neinni bókmenntalegri minni- máttarkennd. Kardínálinn mikli krafðist þess, að Corn- eille lagfærði litilssiglda sorg- arleiki hans og Friðrik annar heimtaði, að Voltaire færði skáldskap hans í betri stíl. Napoleon var of vel gefinn til að gera sér háar hugmyndir um skáldskap sinn. Þegar Tall- eyrand einhverju sinni fann í skjalasafni eitt af svörum Napoleons til blaðanna og af- henti keisaranum það með nokkrum ismeygilegum orðum, kastaði Napoleon handritinu á eldinn. Napoleon vildi ekki láta líta á sig sem skáld. Aftur á móti krafðist hann ákveðinn réttar síns til að nefnast blaðamaður. Og hann hefði þess vegna get- að kallað sig alhliða blaða- mann, þvi ekki voru það marg- ar hliðar blaðamennskunnar, sem hann ekki hafði einlægan áhuga á og starfaði að. Á St. Helena ræddi hann dag einn við hinn hrausta en ekki að sama skapi vel gefna Monthol- on um, hvað halda myndi nafni sínu lengst á lofti og fullyrti þá, að það myndu blaðaskrif- in gera. Montholon spurði ei- iítið undrandi: Herra. Hvar má finna skrif yðar? Leyfist mér að spyrja, hvað þér hafið skrifað svo vér fáum dæmt þar um? Hakon Stangerup APÓLEON OG BLÖÐIN Keisarinn svaraði: Lesið yfirlýsingar mínar og grein- arnar i Le Moniteur. Um yfirlýsingar sínar sagði hann öðru sinni, að þær væru samdar af skriffinni, „sem vill ræna valdið hljómi þess og samræmi." Yfirlýsingarnar, eða Les Bulletins de la grande Armée, eins og þær síðar voru kallaðar, eru framúrskar- andi blaðamennska og góð bók menntaverk. Eftir hvern sigur, hverja orrustu gaf keisarinn sér góðan tima til að semja þær og þá tók hann nákvæmlega með í reikninginn áróðursgildi þeirra og lagði ríka áherzlu á, að þær birtust um allt ríki hans. Þær eru skrifaðar í upp- skrúfuðum stíl, sem er bland- inn mælsku klassisku aldanna og hinum rómverska anda; persónukennd blanda Galla- stríða Cesars og predikaná Rousseau. Áhrifa þeirra gætir enn í frönskum þjóðernisstíl, m.a. i endurminningum de Gaulles. Frægasta yfirlýsingin er ef til vill sú hin 29., sem birt var í Le Moniteur 17. desember 1812. Hún lýsir ósigrinum í Rússlandi og er i senn áhrifa- mikil og nöturleg. Að lokinni lýsingu á hruni hersins lýkur yfirlýsingunni með þessum fleygu orðum: — Heilsufar hans hátignar hefur aldrei ver- ið betra. Hér sameinast snilld- arlegur áróður og hnitmiðaður framsagnarmáti. Napoleon notaði sér blöðin allt frá þvi hann komst til valda og þar til völdin gengu honum úr greipum. Hann varð fyrstur til að flytja pi’ent- smiðju með sér á vígvöllinn. Þegar hann sem ungur hers- höfðingi tók við yfirstjórn italska hersins, vár eitt hans fyrsta verk, að koma á fót tveimur blöðum; annað flutti herforingjum og óbreyttum þá vitneskju, sem hershöfðingjan- um fannst þeir þurfa, hitt flutti Frökkum fréttir um sig- ursæld hershöfðingjans. Með- an egypzka ævintýrið varði, stofnaði Bonaparte og til tveggja blaða; annað var á frönsku, hitt á arabísku. Þegar hann svo kom heim til Parísar og pólitíska baktjaldamakkið hófst fyrir alvöru, stofnaði hann blaðið Le Bulletin de Paris og reit sjálfur leiðara þess, jafnfi’amt þvi sem bræð- ur hans mútuðu öðrum blöðum til að hylla hann. Þegar Napoleon hafði tryggt sig i valdasessi, voru blöðin það fyrsta, sem hugur hans beindist að. I stjórnarskránni frá 1800 er ekki stafki’ókur um blaðaútgáfu. Blaðaútgáfa heyrði undir embætti lögreglu stjói’ans og blöðum var nú fækkað úr 72 í 13 svö auðveld- ara væri að fylgjast með þeim. Þá kom aðalræðismaðurinn á fót nefnd, sem skyldi kanna frelsi blaðánna. Þetta var i sannleik göfugmannlega gert —- en nefnd þessi kom bara aldrei saman. Napoleon byggði upp eitt- hvert harðsnúnasta ritskoðun- arkerfi, sem heimurinn hefur nokki'u sinni þekkt. Rætur þess stóðu í París en þegar yf- ir lauk náði það um hálfa Evrópu. Aðalræðismaðurinn dró enga dul á tilgang sinn: — Ef ég slakaði á við blöðin, myndi ég >ekki halda völdum í þrjá mánuði til viðbótar, sagði hann. Og öðru sinni: —• Bók upp á tvö hundruð síður, sem kostar einn franka, hefur enga hættu í för með sér, en boðskapui' blaðsins bergmálar í fólkinu. Hann hélt fast við nauðsyn ritskoðunar allt til sins skapadægui’s. Svo seint sem 1813, kvöldið fyrir orrust- una við Lutzen og Bautzen, sagði hann við greifann af Beugot, sem var einn hirðemb- ættismanna hans og hafði leyft

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.