Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1972, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1972, Side 6
Atvinnu- íþróttamenn LEE TREVINO Fátæki Mexikaniim, sem nú er oröinn einn af tveimur eða þremur beztu golfleikurum heimsins og einn litríkasti persónuleiki meðal afreks- nianna í íþróttum Trevino í kepimi: „Nú megið l»ið kalla mig Spánverja.“ Síðan atvinnnniennska i Iþrótttun koni til skjalanna, lief ur einnig mátt sjá nýja teg- und íiiróttanianna; menn sein ganga að íþrótt sinni eins og hverju öðru verki, vandasönm og grafalvarlegu verki, þar sem mistök eru ævinlega mæld í peningum og ekki iiðru. Þess- ir menn kunna tæknileg atriði út i hörgul og vita nákvæm- lega, Iiverníg- eitt leiðir annað af sér; hvenær og livernig rétt- ir vöðvar eiga að taka á til að mynda rétta röð hreyfinga, seni þá leiðir af sér læztan hugsanlegan árangur. Þetta er allt saman mjög vísindalegt og oftast með alvarlegu yfir- bragði; sjálfur leikurinn, sem fæddi af sér íþróttina, er tæpast til lengur, eða verð- ur að minnsta kosti ekki séð- ur á yfirborðinu. Þetta gildir jafnt um atvinnumennsku í fót bolta sem tennis, í golfi eins og kappakstri og hnefaleikum. Atvinnumennska i íþrótt- um útheimtir auðug þjóðfélög, þar sem nokkurn veginn hefur verið séð fyrir uppbyggingu og naiiðþurftum og miklir pen ingar eru í umferð. Það er þess vegna engin tilviljun, að at- vinnumennska í íþróttum hef- ur þróazt mjiig langt í Banda- rikjunum og fáir standast bandarískiim atvinnumönnum snúning. Langflestir ánetjast i at- vinnumennsku stra.v að af- Ioknu skólanámi; einkum og sér í lagi vegna þess að fram- úrskarandi íþróttahæfileikar eru beinlínis sigtaðir úr skól- unum með gylliboðum, sem erf- itt er að standast. Hinir uúgu kappar hljóta allt að því vís- indalegt uppeldi og þjálf- un, sem öll miðar að því að höndla sem mestar dollarafúlg- ur á sem skemmstum tíma og draga sig síðan i hlé nokkuð fyrir miðjan aldur. Ef vel hef- ur gengið, þurfa l»éir að minnsta kosti ekki að hafa áhyggjur af peningum það sem eftir er ævinnar. En þess eru dæmi, að nienn komi eftir öðrum leiðum, vinni sig upp með hnúum og hnef- um, eða „the hard way“ eins og þar er sagt. Það er leiö fá- tæka niannsins, l»ess er aldrei nær þeim áfanga, að komast í háskóialið. Einn slíkur er Lee Trevino, rúmlega þrítugur Mevíkani frá Texas og uppá síðkastið einn snjallasti golf- leikari lieimsins. En hann er ekki aðeins frábærlega fær íþróttamaðiir í sinni grein, heldur þjóðsagnapersóna i lif- anda lífi, frægur af hnittniun tilsvörum og óbeizluðum gáska ásamt gnægð af sjálfstrausti. Mexíkanar i Bandaríkjununi hafa ásamt fólki frá Puerto Kico og öðrum l»eldökkum, ver ið annars flokks borgarar og fjölskylda Trevinos var þar engin undantekning. Enginn veit raunar hver faðir hans er en útlitið leynir ekki upprun- anum: hárið hrafnsvart og stritt og sanibland af andlits- dráttum Indíána og Eskimóa svo sem tít-t er hjá Mexikön- um. Trevinó er ekki bár, en mjög þrekinn og kraftalegur. Juanita móðir hans kom ásamt tveim systrum Trevinós og afa þeirra frá Mexíkó og settust þau að í skúr, sem stóð nálægt kirkjugarði í Texas. Afinn sá að einhyerju leyti fyrir þörf- um fjölskyldunnar með því að taka grafir i kirkjugarðinum, Juanita tók að sér húsverk og Trevinó hinn ungi varð að hætta þegar eftir barnaskóla til þess að vinna. Þarna í ná- grenninu var fínn klúbbur lieldra fólks ásamt tillieyrandi golfvelli. Þar byrjaði Trevinó að vinna sér inn skildinga með því að draga fyrir golfleikara, slá flatir og annað þvíumlíkt. En Iíkt og þiisundir drengja hafa gert i svipaðri aðstöðu, fór Trevinó einnig að æfa sig. Hann fann gamla og ryðgaða golfkylfu og stunduni fann hann kúlur, sem liafnað höfðu úti í skógi og týnzt. Það dugði honum til að byrja með og óvenjuleg hittni kom brátt i ljós. Um leið notaði hann tæki- færið til að næla sér í dollar hér og dollar þar. Hann fékk menn til að leggja dollara und- ir í uppáskota- og púttkeppni. Þeir máttu nota járnin sín, — sjálfur bauðst hann til að nota flösku. Auðvitað vildu menn ekki trúa þvi, að liann gæti unnið þá með svo furðulegu værkfæri. En það virtist ekki skipta máli; Iianii liafði tilfinn- inguna í fingrunum og vann oftast. Seytján ára gamall gekk Trevinó í landgöngulið flotans og þar gafst gott tækifæri til að æfa og þar komu hæfileik- ar hans í ljós fyrir alvöru, jafn framt því sem liann vann sig upp til lidþjálfa. Eftir fjögurra ára herþjónustu ákvað Trev- inó að reyna við einhv'ers kon- ar atvinnumennsku í golfi. Sá ferill byrjaði með því, að hann varð golfkennari við golfvöll nálægt Dallas i Texas, en hann var eftir sem áður fáta'ki drengurinn með nokkrar kylf- ur í strigapoka og liin fáu klæði, sem hann bar, voru snjáð í meira lagi. Golfskó átti hann enga, en lék golf ber- Boltarnir fljúga beint, en brand- ararnir fljúga í allar áttir. Hann þagnar ekki einu sinni nieðan hann slær. Þótt Trevino sé heljarmenni í höndunum, er hann ekki með högglengstu mönnum i golfi. Hann er enn skæðari, þegar kemur að nákvæmnishöggun- iim. í grafalvarlegri úrslitakeppni við Jack Nicklaus. Trevino bregður sér snöggvast í lihit- verk trúðsins. fættur. Það þótti víst ekki mjög fint og suinir litu það liornaugá, en Trevinó stóð á sama um slikt; ef einhver fékkst til að leggja nokkra dollara undir og einhver von var um að vinna, þá geislaði hann af hamingju. Aftur á möti var honuni illa við moskítóflug urnar, sein bitu hann stundum í fæturna, en hann kunni ráð við þvi: Lækur rann eftir vell- inum og þar var leir. Trevinó kom þar við og ataði leir á fæt- ur sér til að verjast fliigunum. Þótt útbúnaðiirinn væri í lakara lagi, þá varð ekki sama sagt um golfsveifluna. Þar til- einkaði Trevinó sér aðferð, sem bandarísku atvinnumenn- irnir í golfi nota nú allir með örlitlum frávikuin. Sveiflan er frekar flöt því inaðiirinn er ekki hár vexti. Hann notar opna fótastöðu og vinnur frá- bærlega vel með fótuin, skrokk og höndum. Teigskot hans éru að jafnaði 243 metrar og oftar lág en há. Ein af sérgreinum hans er uni 80 metra innáskot með niujárni, sem aldrei fer hærra en hálfan annan metra frá jörðu og snarstoppar. Það hefur oft reynzt hoiiuni hald- gott vopn í slæmu veðri. En uppá siðkastið hefur Trevinó orðið frægastur fyrir að pútta með meiri nákvæmni en liörð- ustu andstæðingar lians, enda eru þeir oft svo jafnir í löngu liöggununi, að úrslitin ráðast af nákvæmni í púttunum. Venju- lega eru menn þöglir og alvar legir eins og við jarðarför, þegar keppni — og mikil pen- ingafúlga — getur uiinizt með því að koina niður löngu pútti. En ekki Trevinó. Hann skemmt ir sér ávallt, lætur brandarana fjúka og sumir segja, að hann geti ekki þagnað meðan hann á annað borð vakir. Hann kjaft ar uin leið og teigskotin ríða af og þagnar heldur ekki yfir hinuin allra þýðingarmestu púttum. Hann var eitt sinn jafn öðrum, l»egar kom á síðustu flöt og undir lágu 40 þús. doll- arar, eða 3,0 milljónir ísl. króna. Þögn sló á áhorfendur, þegar Trevinó gekk að kál- unni, sem var í 40 feta fjar- Iægð frá liolu. Hann var sá eini, sem ekki þagnaði og sagði um leið og hann sló: „Með milljón-dollara-sveiflu eins og ég lief, er ekki ha-gt annað en að hitta.“ Hann gerði það lika og hirti fúlguna. Það var 1007 að Trevinö ákv'að að stíga skrefið til fulls méð þátttöku í keppnum at- vinnumanua viðs vegar um Bandaríkin. Fimmta sæti í stórri, opinni keppni í Dallas færði lioniim 0 þústind dollara (540 þús. ísl. kr.) upp i liend- urnar. Aldrei liafði Mexíkan- inn séð annað eins fé. Hann sendi það allt til Claudíu konu sinnar og iiélt áfram að keppa. Stórsigur og lieimsfrægð var á næsta leiti: Árið eftir vann hann US Open keppnina, en hún er ein þeirra fjögurra golf keppna í heiminuni, sem stór- meistarar einsetja sér að vinna svo sem einu sinni á ferli sín- um. Þessi miki! sigur hafði kom- ið óvenjulega snemma og hlotn azt manni sem í rauninni hafði ekki mikla keppnisreynslu. Þegar Trevinó auðnaðist ekki að fylgja sigrinum eftir með neiiium meiri háttar sigrttiti 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 12. marz 1972

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.