Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1972, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1972, Page 7
Til vinstri: Trevino á forsíðn vikuritsins Newsweek í sumar, er hann liafði unnið |>rjár stórlcepnnir í riið. Að neðan: Trevino ásamt Claudiu konu sinni. 1969 og heldur ekki árið 1970, byrjuðu marg-ir að efast. Var Trevinó líkt og loftsteinn, sem Ijómar skært meðan hann brennur upp? En hann átti eft- ir að sýna þeirn í tvo heimana. I>að gerðist á s.l. sumri. Fram á síðasta sumar hafði Trevinó verið einn nokkuð margra framúrskarandi at- vinnumanna i golfíþróttinni, sem alltaf voru framarlega á stórmótum og gátu unnið, ef heppnin var með. En það er verulegur munur á þvi að vera góður atvinnugolfleikari og að vera stjörnuleikari, eða það sem nefnt er á ensku „super- star“. Því marki náði Trevinó í sumar með þrem sigrum á ótrúlega skömmum tíma. I opnu bandarísku keppn- inni (US Open) varð hann jafn Jack Nicklaus í efsta sæti og urðu þeir að leika til úr- slita. Ekki var honum þó gefið að vera alvarlegur í bragði og tók að sprella á teignum nieð snák, sem raunar reynd- ist vera úr plasti. Og Nicklaus varð að láta í minni pokann. Litlu síðar varð Trevinó jafn öðrum í efsta sæti í opnu kaná- disku keppninni (Canadian Open) og sigraði aftur í auka- keppni. Þriðja stórkeppnin, sem Trevinó sigraði í, er um Ieið sú, seni ef til vill þykir mest- ur fengur og mestur heiður að vinna. Það er opna brezka kcppnin (British Open, leikin í Royal Birkdale). Að aflok- inni þeirri keppni, nam verð- latinaíe Trevinós frá sumrinu 18 milljónum ísl. króna og var þá þegar á miðju siimri orðið meira en nokkur atvinnugolf- leikari hafði áður náð á hcilu ári. Hörðustu keppinautar Trevinós í brezku keppninni voru Tony Jacklin, einn al- fremsti golfleikari Breta (Ilann vann US Open í fyrra) og tiltölulega óþekktur Forni- ósu-Kínverji, Liang Huan-Lu. Eins og í öllum meiri háttar mótum, stendur keppnin yfir í fjóra daga, samtals 72 hoi- ur. Þegar kapparnir liófu leik síðasta daginn, leidili Trevinó en þó aðeins með einu höggi. Það þykir miklu erfiðara að leiða og mega ekkert missa nið ur heldur en að hafa engu að tapa og geta leikið djarflegt sóknargolf. En Trevinó Iét það ekki á sig fá. Strax í upphafi var hann óvenju vel upp lagð- ur og einpúttaði á fyrstu sex flötunum. Hann var þá þegar kominn fjóra undir par. Það var meira en keppinautarnir gátu svarað. En svo var eins og allt ætlaði að hrynja á síð- ustu niu holunum. Trevinó byrjaði að mistakast og það má vitaskuld ekki, þvi hart er fylgt á eftir. Á seytjándu holu var því líkast að titillinn væri glataður. Trevino lenti í sjö, sem er mikið slys fyrir annan eins meistara. Hann hafði ver- ið kominn með fjögurra liögga forustu, en nú átti hann að- eins eitt. En á þeirri síðustu hélt hann jöfnu við Formósu- manninn og hafði þarmeð unnið keppnina með einu höggi og þriðja stórmótið á f jórum vikum. Líklega hefur álagið á taug- ar Trevinós verið orðið fiill mikið, þótt ekki gerði hann sér það ljóst. Ekki var liann fyrr kominn vestur en liann skráði sig til þátttöku i stórmóti þar vestra (Wechester Classic) og datt hreinlega út áður en í að- alkcppnina kom. Venjulega leggja atvinnu- menn í íþróttum mikla áherzlu á hvíld og afslöppun fyrir meiri háttar átök eða einbeit- ingu. En einnig þar er Trevinó undantekning. Að keppni lok- inni er Trevinó óðar kom- inn með bjórkollu í hönd og er þá hrókur alls fagnaðar og alltal' er eitthvað til að halda uppá og fagna. Kannski var það sigur, eða einstaka góð skot eða bara gleði yfir því að vera til. Eitt sinn var Trevinó jafn öðrum i efsta sæti í stóru móti í Florida og úr- slitakcppni skyldi fara fram þegar að morgni. Andstæðing- urinn fór beint heim að sofa, en Trevinó skemmti sér að vanda og lenti í liópi góðra vina á næturklúbbi og gat rétt fengið sér fuglsblund undir morguninn. Hann mætti rauð- eygður til leiks og sagði, þeg- ar hann sá vel út sofinn and- stæðing sinn: „Andskota korn- ið, — það er nú líka hægt að hvíla sig of mikið“. Hvort sem það liafði áhrif eða ekki, þá vann Trevinó úrslitakcppnina. Hann dregur enga dul á uppruna sinn; er miklu fremur stoltur af þvi að vera Mexí- kani. En eftir að hann liafði unnið fyrstu fjárfúlgu sína í golfi, sneri hann sér að við- stöddum og sagði: „Nú getið þið kallað mig Spánverja. — Hver hefur heyrt um ríkan Mexíkana?“ Claudia kona hans sér um að ávaxta dollaraflóð- ið, sem Trevinó lætur streyma inn. Sjálfur vill hann ekki nærri peningum koma, nema þá að eyða þeim. Og einnig í því er hann enginn meðalmað- ur. Hann myndar fullkomna andstæðu við marga unga at- vinnugolfleikara, sem eru í við- skiptum upp fyrir haus og komn ir með svarta skjalatösku uin leið og þeir eru búnir að sleppa golfkylfimum. Hann er í þessu sporti tU að skemmta sér, segir hann óg það liefur einnig reynzt smitandi, hvað hann nýtur þess innUega. Stærri hópur áhorfenda fyigir honum en nokkurri annarri golfstjörnu og er slík hylli óþekkt siðan Arnold Palmer var uppá sitt bezta á árunum kringum og uppúr 1960. Sumir áhorfendur fylgja Trevinó til þess að sjá framúrskarandi vel útfært golf, en aðrir vegna þess að hann er sifeUt að skemmta áhorfendum með hnyttnum athugasemdum og furðulegum uppátækjum. Þeir sem þekkja Lee Trevinó bezt, segja að aUur þessi bægsla- gangur sé til að létta á innri speimu. Og svo mikið er víst, að Trevinó brotnar ekki, þótt eitthvað bjáti á. Það þurfti stál taugar til að vinna British Op- en eftir að hafa lent í slysi á Framhald á bls. 11. Þau eru orðin því vön að fólk snúi sér við á götu og líti undrandi á eftir j>eim. Danskur málsháttur segir, að lík Inirn leiki sér bezt, eða með öðrum orðum, að þeim komi betur saman, sem likir eru. Is- Ienzkur málsháttur segir nokk- urn veginn það sama: Hvað elskar sér likt. Frá þessu vilja verða þó nokkrar undantekn- ingar. Varla mun þó auðgert að finna dæmi um róttækara frá- vik en þau Héléne Theron frá Marceilies í Frakklandi og Franz Drago, ættaðan af Sik- iley. Hvort þau eru ólík í sér skal ósagt látið, en munurinn felst einkiim í likamsútliti. Franz er nefnilega dvergur og nær eiginkonu sinni aðeins í mitti. En hann ber sig vel og segir: „Mér finnst ég vera risi við hlið hennar.“ Héléne er Ijós- hærð og grannvaxin og virðist leiða barn, þar sem þau fara saman. Hún er 18 ára og ná- kvæmlega helmingi yngri en Franz. Faðir hennar er antik- kaupmaður í Marceilles og þau HÆÐIN SKIPTIR EKKI MÁLI hjónin voru mjög á móti þess- um einkennUega ráðahag. Hél- éne á nú von á barni, en brúð- hjónin hófu búskap ekki alls fyrir löngu á bökkum Garda- vatns á Norður-Italíu. Þau eru orðin vön því að fólk horfi undrandi á eftir þeim og Héléne er hæstánægð með hinn mjög svo lágvaxna eiginmann og segir: „Franz er fuUkominn maður á allan hátt.“ mmmm^mmmmm^^m^^—^^mmmmmmmmmmmmm^i LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7 12. marz 1972

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.