Lesbók Morgunblaðsins - 17.02.1974, Blaðsíða 5
vorir
Halldór Pétursson teiknaði
Forfeðrum okkar var margt vel gefið.
Þrátt fyrir ónóga skólagöngu virðast
þeir hafa skilið ýmis grundvallarlögmál
lífsins á borð við okkur. Eitt slíkt lög-
mál er fólgið í kúnstinni að neyta afls-
munar. Ekki kunnum við það betur en
þeir. í staðinn fyrir að við burðumst
með skattarannsóknardeild, lögreglu
og vegatoll (sem nú er að vísu niður
lagður í bili) þá sáu þeir um þetta allt
sjálfir, forfeður okkar. Þegar svo bar
undir tóku þeir vegatollinn sjálfir. Væri
tollurinn ekki greiddur möglunarlaust,
eða lofað að fylgja kempunni í næsta
mannslag, var hægt að byrja eins og
Halldór Pétursson sýnir á teikningunni:
A) Sýna i eggjar sverðsins og renna
gómum um það, svo ekki yrði misskil-
ið. B) Sliga hest ferðalangsins að aft-
an með því óþokkabragði, að stíga ofan
á hestinn aftantil. Fór þá hesturinn að
ókyrrast nema kostagripur væri, en
eigandinn samþykkti hvað sem var, til
dæmis að segja allt sem hann vissi um
mannaferðir í héraði og annað, sem að
gagni gæti komið. Líklega sleppur
ferðalangurinn með höfuðið á sínum
stað i þetta sinn — það sjáum við á
góðseminni í svip kappans. Hér er ein-
ungis unnið friðsamlega að undirbún-
ingi einhvers, sem kannski verður ekki
alveg eins fallegt.
Á þessum árum hafði Sakharov
enn ánægju af starfi sínu. Sovét-
menn voru i óða önn að smiða
fyrstu vetnissprengjuna. Sak-
harov hélt sig vera að stuðla að
friði i heiminum meðþvi að koma
á valdajafnvægi. Seinna fékk
hann svipað samvizkubit og
bandarfski vísindamaðurinn
Oppenheimer. Hann sá, að ekki
einungis kjarnorkutilraunir
heldur öll stefnan um valdajafn-
vægið var glæpsamleg.
Einkum olli hættan á langtíma
geislavirku úrfelli honum áhyggj-
ur. Árið 1958 reit hann yfirmanni
sínum bréf um nauðsyn þess að
stöðva tilraunir, sem þá voru á
döfinni. Yfirmaðurinn var honum
sammála og hélt á fund Krúsjoffs.
En Krúsjoff var ekki til viðræðu
um málið, og tilraunirnar voru
gerðar. Næst mótmælti Sakharov
árið 1961 á fundi helztu vísinda-
manna með ráðamönnum lands-
ins um geysintiklar tilraunir, sem
áttu að hefjast í lok 22. þings
kommúnistaflokksins. Á þessum
fundi sagði Krúsjoff frá fyrir-
hugaðri byggingu Berlínarmúrs-
ins, sem umheimurinn vissi
ekkert um fyrr en þar að kom.
Sakharov sagði Krúsjoff, að til-
raunirnar hefðu litla eða enga
tæknilega þýðingu og væru auk
þess hættulegar í fleiri en einu
tilliti. Þetta gramdist Krúsjoff.
Sagði hann, að Sakharov væri
ágætur vísindamaður, en hefði
ekki vit á stjórnmálum, og þar við
sat. Þriðja sinn andmælti Sak-
harov 1962 og nefndi þá til
svipaðar ástæður. Ráðherrann
yfir kjarnorkuvopnaáætluninni
lofaði, að hætt yrði við tilraunirn-
ar, en Sakharov komst að því, að
ætlunin var að svíkja það loforð.
Hann hringdi því í Krúsjoff.
Ilann kvaðst mundu ráðfæra sig
við fulltrúa sinn. Fulltrúinn
hringdi síðan í Sakharov, en þá
hafði tilraununum verið flýtt og
of seint að hindra þær. Þetta fékk
mjög á Sakharov. Hann segist
aldrei hafa fundið til jafnmikils
vanmáttar. Hann komst að raun
um það, að hann hafði ekki einu
sinni atkvæðisrétt um sitt eigið
verk. Atburður þessi skipti
sköpum í lífi hans. Nú skildist
honum, að til einskis var að ræða
við þessa menn.
Árið 1963 sömdu Sovétrikin og
Bandarikin um bann við tilraun-
um i andrúmslofti og létti
Sakharov nokkuð við það. Þó
kæfði bannið síður en svo
óánægju hans, og hann hélt áfram
að mótmæla. Yfirboðarar hans
héldu, að þetta stafaði af
dánægju í starfi. En þeir höfðu
alrangt fyrir sér. Honum gengu
siðferðilegar ástæður til.
Einu sinni enn vakti Sakharov
reiði Krúsjoffs. Árið 1964 mót-
mælti hann kjöri Nuzhdins, náins
aðstoðarmanns Lysenkos, (lif-
fræðingsins, er réð öllum erfða-
fræðirannsóknum undir stjórn
Stalins og Krúsjoffs með hörmu-
legum afleiðingum) til vísinda-
akademíunnar. Krúsjoff skipaði
leyniþjónustunni að reyna að
klekkja á Sakharov og lækka í
honum rostann, en skömmu siðar
félí Krúsjoff og Sakharov slapp.
Þó var hann lækkaður í tign. Það
hafði hins vegar þau áhrif, að
hann var frjálsari að umgangast
fólk og hitti nú ýmsa aðra tals-
menn frjálsræðis og niann-
réttinda, svo sem Solzhenitsyn.
Árið 1967 tók hann að mótmæla
persónulega við flokksforingja
handtökum einstakra manna, svo
sem Ginzburgs, Daniels og
Galanskovs. Flokksbroddunum
var nú hætt að lítast á blikuna,
lækkuðu hann enn i tign og laun
hans um helming. Þá var hann
þegar tekinn að safna til
bæklingsins „Framfara, friðsam-
legrar sambúðar og frelsis
andans“, sem varð til þess að loka
hann loks úti i kuldanum, þótt
þar sé mun vægar til orða tekið en
í mörgum síðari yfirlýsingum
hans. Hann varar þar við óheilla-
vænlegri uppskiptingu mann-
kyns og kveður frelsi andans
hverju samfélagi lífsnauð-
syn. Þá hvetur hann til þess,
að vígbúnaðarkapphlaup-
inu verði hætt, líkir frammi-
stöðu Bandaríkjamanna í
Víetnam við hegðan Sovétmanna
í Miðausturlöndum, hvetur til
samvinnu gegn hungursneyð i
heiminum, stingur upp á ýmsum
umbótaleiðum handa vestri sem
austri og boðar nokkurs konar
samruna kerfanna tveggja. Sjálf-
ur kveðst hann lita á málin frá
sósialísku sjónarhorni.
En hann gagnrýnir sovétskipu-
lagið einnig harðlega. Hann mót-
mælir tilraunum til útflutnings
byltingarinnar, „þeirri þjóðsögu,
að stéttabaráttan fari harðn-
andi“, ritskoðun og myndun yfir-
stéttar í landinu. Talið er, að
þúsundir manna í Sovétríkjunum
hafi lesið ritgerðina, og skoðanir
hennar fengu víða hljómgrunn.
En ekki með valdhöfum. Sakhar-
ov var rekinn úr starfi og fékk
ekki annað fyrr en ári siðar, mikl-
um mun „övirðulegra" starf, að
talið var. Þar hefur hann verið
sfðan. Einu sinni i viku fær hann
einkabíl og bílstjóra — hann er
þó altént í akademíunni. A
þremur næstu árum gaf hann út
hverja ritgerðina á fætur annarri
og var sú síðasta ævinlega harð-
orðust. Hann undirritaði and-
mæli, bænarskjöl og yfirlýsingar
til stuðnings við aðra villutrúar-
inenn, krafðist opinna réttarhalda
og stóð vörð fyrir utan dómshús.
Það var við slíkt tækifæri, að
hann hitti fyrst siðari konu sína
Elenu. Hún er Armeniumaður i
aðra ætt en Gyðingur i hina.
Móðir hennar var dæmd til 16 ára
þrælkunar og útlegðar árið 1937.
Frá.því Elena man eftir sér hefur
hún verið að senda einhverjum
ættingjum sínum matarpakka í
fangelsið.
í september 1972 var Sakharov
tekinn til yfirheyrslu i fyrsta
sinn; hann hafði þá verið að mót-
mæla morðunum á ísraelsku
íþróttamönnunum i Múnchen.
Honum var þó fljótlega sleppt.
Hann segist ekki hafa tekið hand-
tökuna nærri sér: hins vegar hafi
sér sárnað, að nokkrir áhorfendur
létu í ljós greinilega Gyðinga-
andúð.
Ekki er gott að vita, hve
skoðanabræður Sakharovs i Sovét
eru margir. Almenningur vissi
ekki einu sinni um hann fyrr en
nýverið og mun þvi taka trúanleg-
ar fullyrðingar stjórnvalda um, að
hann sé föðurlandssvikari og lið-
hlaupi. Og gagnsleysi fyrri mót-
mæla og strangari ritskoðun hafa
dregið kjark úr mörgum „frjáls-
lyndum" menntamönnum og þótt
ýrnsir styðji að sjálfsögðu
Sakharov enn í baráttu hans fyrir
mannréttindum og lækkuðum
framlögum til hermála, þá draga
úr þeim stuðningi árásir hans á
forréttindastéttina, því að þeirri
stétt tilheyra einmitt margir
mennta- og vísindamenn. Auk
þess hefur sú skoðun komið fram,
að Sakharov vinni nú fyrst og
fremst að þvi að komast úr landi.
Sjálfur segist hann aðeins hafa
hert róðurinn vegna vaxandi óá-
nægju sinnar og áhyggna af af-
skiptaleysi Vesturlandamanna af
kúguninni í Sovétríkjunum.
Ilann segir ástandið jafnvel hafa
versnað frá Moskvuheimsókn
Nixons forseta í maf 1972. Nokk-
uð er það, að öryggislögreglan
hefur verið athafnasöm mjög
undanfarið eitt og hálft ár og
iiar.dtekið fjölda manns. Sakhar-
ov viðurkennir, að fylking mót-
mælenda hafi þynnzt.
Enn hefur hann ekki verið
leiddur fyrir rétt og hann hefur
ennþá allsæntileg laun. En hann
er úr tengslum við fyrra slarf sitt,
sumir.sem veittu honum lið, hafa
verið reknir úr starfi og ofsóttir á
ýmsan hátt, börn hans eru á önd-
verðum stjórnmálaskoðunum við
hann og hann sér þau sjaldan,
stjúpbörn hans eru ofsótt i skól-
um og nú nýlega var gerð tilran
til að hrekja hann úr sæti sínu í
visindaakademíunni. Það tókst þó
ekki. Er talið, að ekki yrði erfið-
leikum bundið að safna undir-
skriftum gegn honum, en hins
vegar ekki tryggt, að samstaða
næðist í leynilegri atkvæða-
greiðslu, sem verður að vera, lög-
um samkvæmt. í staðinn hafa
yfirvöld safnað undirskriftum
þekktra og velmetinna manna og
birt í blöðum ásamt árásar- og
óhróðursgreinum unt Sakharov
og margvislega fúlmennsku hans.
Framhald á bls. 15.
©