Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.1978, Blaðsíða 7
Kristur og
fiskimennirnir
Maður er nefndur Morris
R. Spivac og er teiknari og
listmálari af bandarískum
uppruna, en í seinni tíð
orðinn heimshornaflakkari
og er þó kominn af léttasta
skeiði. Hann hefur haldiö
tryggð við ísland og tryggt
sér framfæri með því að
ganga í hús og bjóðast til að
teikna fólk. Var erindi hans
tekiö betur en víöast annars-
staðar og teiknaði Spivac
fimm þúsund manns á þenn-
an hátt. Annars er hann eins
og nútímaútgáfa af Sölva
Helgasyni og mætti heim-
færa uppá hann vísu
Bólu-Hjálmars um Sölva:
Heimspekingur hér kom einn
í húsgangs klæðum/ með
gleraugu hann gekk á skíð-
um, — og svo framvegis.
Spivac var einlægur
bandamaður íslendinga í
landhelgisdeilunni og síðan
sigur vannst í því máli, er
honum hugstætt, að menn
gæti sín og vinni ekki
óbætanlegt tjón á fiskimið-
unum. í þessu augnamiði
hefur hann unnið nokkur
verk og jafnvel skrifaö sögu
um hefnd síldarinnar.
En merkasta verk hans
þessu til áminningar er stór
olíumynd, sem hér er prent-
uð í lit og hefur hún um tíma
veriö til húsa hjá Fiskifélagi
íslands. Hér er myndefniö
Kristur og fiskimennirnir, —
en það eru ekki hinir gamal-
kunnu fiskimenn á
Genesaretvatni, sem Nýja
Testamentið segir frá, heldur
íslenzkir sjómenn með nú-
tima veiðitækni: asdik og
kraftblökk. Myndin heitir
„Kristur biöur fiskimennina
um að þyrma höfunum." Er
þaö þörf áminning eins og á
stendur og hjartans mál
þessa aldna förumanns, sem
kemur eins og fuglarnir; sezt
andartek og enginn veit hvert
hann flýgur.
G.S.
Sœtin í Saab ‘99 — bæöi aö framan og aftan eru í efsta gæðaflokki
og mættu vera til fyrirmyndar í bílaiönaöinum.
Yfirlætislaus glæsileikí einkennir stýri og mælaborð
— Mælar eru kringlóttir, Ijósar tölur á svörtum fleti,
stýriö með öryggisskjöld.
Saab 96 er enn í sama búningi og búinn vel aö duga. Verðiö er rúmar brjór milljónir.
©