Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1978, Síða 15
«r
hugskoti
•Woodg
WUIon
F---------------V-------^
woopy rctNDi. \ allt i lagi. bs si<al
SlEGÉXJ OKKOR /SEGJA yKKOR SQSUNA
EINO SINNI VAR STÚLKA SeM N
HET MJALLHVIT OG HON
VAR MTÖG FÖSUR.
OG VARIF? HENNAR VORO RAUpAR E/NS^
RtUMMO RAKAR OG
f?ETTA ER I 13. SINN X
TVElM 'ARUM SEM HANN 5EGIR
OKKUR þESSA SÖSU OG HANN
ER EKKI ENNþÁ KoAAINN AÐ
pVERGUNUM/
r ...henpuk
HENNAR
' VORU
YNDiSLecMR
EINS OG
TVÆ.R...
!>
Ellefta boðorðið
risið fyrsta gróðurhúsið og fram undan var
mikið starf.
Áriö 1972 er þjóðvegurinn, sem var
lífæðin, allt í einu fluttur í annan farveg.
í samræmi við það hefur Bragi reynt að
gera staðinn þannig úr garði, að gestir og
gangandi hefðu ekki síður gagn og gleði
af því aö skoöa eftir sem áöur.
Bragi vinnur viö skrifborðiö og styðst
við tölvu. Stereofómnn sendir frá sér
spánska lagið Noche de Ronda (Nótt
torgsins) eftir Jose Feliciano. Bragi er að
ganga frá ýmsu, áöur en hann heldur í
bankhúsið i Hveragerði. Hann varð að ná
fyrir lokun.
„Hefurðu, Bragi verið og ertu sáttur við
lífið?"
„Lífiö hefur ekki alltaf verið einn
samfelldur rósagarður. Það hefur á
stundum fært mér fleiri tár en bros og þó
aö mér hafi ekki alltaf tekizt aö lifa kórrétt
eftir öllum boðoröum biblíunnar, þá hefur
mér þó tekizt að lifa eftir mínu eigin ellefta
boöoröi, sem hetur bæði fært mér farsæld
og hamingju og það er: „Leita skaltu gæfu
þinnar í starfinu". sfgr
Stofnun Sjölf-
stœðisflokksins
framtak var grundvöllur flokksins í
innanlandsmálum. En alþjóðarheill skyldi
vera sett yfir stéttabaráttu eöa einstakl-
ingshagsmuni.
í stefnuskrá íhaldsflokksins var megin-
atriði samkvæmt yfirlýsingu flokksins í
uþþhafi viöreisn á fjárhag landssjóðs
einkum með því að draga úr opinberum
álögum á atvinnuvegina og leggja niöur
eöa sameina landsstofnanir og fyrirtæki,
sem flokkurinn taldi, aö þjóöin gæti án
verið eða dregið saman.
Af þessu sést, aö stefnuskrá Frjálslynda
flokksins var kjölfesta hins nýja Sjálf-
stæöisflokks. í yfirlýsingu flokksins, þegar
hann var stofnaður segir, að flokkurinn
vilji
í fyrsta lagi „vinna að því og undirbúa
þaö, að ísland taki aö fullu og öllu sín mál
í sínar eigin hendur og gæði landsins til
afnota fyrir landsmenn eina, jafnskjótt og
25 ára samningstímabil sambandslag-
anna er á enda“,
og í öðru lagi „að vinna í innanlands-
málum aö víðsýnni og þjóðlegri umbóta-
stefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og
atvinnufrelsis meö hagsmuni allra stétta
fyrir augum."
Þá hefur meginstefnu flokksins verið
lýst á landsfundum á þessa leið: Varðveita
og tryggja sjálfstæði og frelsi íslands og
standa vörö um tungu, bókmenntir og
annan menningararf Islendinga. Treysta
lýðræöi og þingræði. Beita nútímaþekk-
ingu og tækni, svo að auðlindir landsins
verði hagnýttar í þágu þjóðarinnar. Skapa
öllum landsmönnum félagslegt öryggi.
Þess má að lokum geta, að í kosningun-
um 1927, þegar íhaldsflokkurinn og
Frjálslyndi flokkurinn buðu fram sérstak-
lega í síðasta skipti, voru kjósendur á öllu
landinu 46.047. Þá greiddu 32.913
kjósendur atkvæði, eða 71,5%. Gild
atkvæöi féllu þannig á flokkana: íhalds-
flokkurinn hlaut 13.616V2 atkvæði (42,5%),
Framsóknarflokkurinn 9.532V2 atkvæði
(29,8%), Alþýðuflokkurinn 6.097V2 at-
kvæöi (19,1%), Frjálslyndi flokkurinn 1858
atkvæði (5,8%) og utanflokka 904’/2
atkvæði (2,8%). Þannig fengu íhaldsflokk-
urinn og Frjálslyndi flokkurinn samanlagt
48,3% atkvæða í þessum kosningum og
héldu þeir þessu atkvæðamagni nákvæm-
lega í landskjörinu 1930, en þá var mikið
í húfi, því að nú átti Sjálfstæðisflokkurinn
að fá sína fyrstu eldskírn í kosningum,
eins og dr. Magnús Jónsson kemst að
orði í riti sínu um fyrstu fimmtán ár
flokksins. „Var undirbúningur allmikill
bæði í blöðum og fundahöldum. Voru
ferðir farnar um landið meira en áöur
haföi tíökazt, enda fundarsókn afar mikil.
Ýmis mál höfðu hleypt hita í viðureignina,
og þar á meöal mál, sem voru ópólitísk
í eöli sínu, en erfitt að segja, hver áhrif
hefðu, eins og t.d. mál Helga Tómassonar
og Jónasar Jónssonar á fyrra hluta ársins.
En langmest áherzla var lögö á það af
hálfu Sjálfstæðisflokksins, að sýna fram á
það, hve ógætileg fjármálastjórnin hefði
verið, skuldir safnazt og lánstraust
brugðizt, m.a. vegna meðferðar stjórnar-
innar á íslandsbankamálinu. Kosningarn-
ar fóru fram 15. júní þetta ár, en atkvæði
voru ekki talin fyrr en að Alþingishátíöinni
lokinni. Niðurstöður voru þessar: Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk 11.671 atkvæði
(48,3%) og tvo menn kjörna, Framsóknar-
flokkur 7.585 atkvæði (31,4%) og einn
mann kjörinn og Alþýðuflokkur 4.893
atkvæði (20,3%) og engan mann kjörinn.
Magnús Jónsson segir ennfremur um
kosningar þessar: „Landskjör þetta var
eins hagstætt fyrir hinn nýstofnaða
Sjálfstæöisflokk og hann frekast gat
kosið. Atkvæðamagn hans var nákvæm-
lega sami hundraöshluti og samanlagt
atkvæöamagn íhaldsflokksins og Frjáls-
lyndaflokksins hafði verið í síðustu
Alþingiskosningum, 9. júií 1927. Otlitiö var
því mjög gott, er litið var fram til almennu
Alþingiskosninganna á næsta ári.“ Þegar
þessar kosningar fóru fram, sat að
völdum ríkisstjórn Framsóknarflokksins
undir forsæti Tryggva Þórhallssonar.
Næstu kosningar uröu sjálfstæöis-
mönnum nokkur vonbrigöi. Kosningarnar
fóru fram 12. júní 1931, eða eftir þingrofið
14. apríl það ár. Sjálfstæðisflokkurinn
bætir við sig miklu atkvæðamagni, fær nú
16.891 atkvæði, en nær ekki jafn hárri
hlutfallstölu og í landskjörinu 1930, eða
43,8%. En þingmannatala flokksins var í
engu samræmi viö atkvæöamagn hans þá
frekar en síðar.
HELLAR OG
TORFBÆIR
Framhald af bls. 13
mér varö starsýnt á samskeyti gafls
og hvelfingar og þau vinnubrögð er
þar lýstu sér. Eg haföi áreiðanlega
séö slík vinnubrögö áöur, og svo
mundi ég aö þaö var í litla hellinum
niöur meö ánni hjá Ægisíöu,
nákvæmlega sama vandvirknin um
allan frágang. Hvergi sá eg för eftir
verkfæri, er notuð hafa veriö viö aö
grafa hellirinn. Sýndust allir veggir
sléttir eins og heflaöir heföu verið.
En útlit þeirra nú gat stafaö af því,
aö þarna haföi verið búiö um allt að
700 ára skeið.
Sagt er aö hellagerö háfi þekkst
í Miðjaröarhafslöndum frá alda ööli.
Til eru sagnir um, eftir aö kristni
hófst, þá hafi einsetumenn lát iö
gera handa sér hella. Þessa er og
getiö í Spesar-þætti í Grettis sögu.
Þar segir frá því, er þau Þorsteinn
bróðir Grettis og Spes komu til
Rómaborgar, þá fengu þau menn
„er hagir voru á steinsmíðar“ til
þess aö gera sér tvo hella litla og
dveljast í til æviloka.
Á þessari frásögn má sjá, aö
sérstaka kunnáttu hefir þurft til
þess að höggva hella. Má vera aö
þarna aö sunnan hafi hellamenning
íra veriö komin, og þess vegna hafi
kennimenn þeirra, Paparnir, upp-
haflega búiö í hellum, hafi „sezt í
helgan stein“, eins og þaö var
kallað.