Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1978, Blaðsíða 14
Að leita kjarnans
í hverju framtali
Á meöan við bíðum eftir því að skattskráin
kunngeri opinber gjöld okkar, höfum við bó
að svo stöddu annaö ótæmandi umhugsunar-
efni par sem stjórnarmyndunin er. Þar sýnist
sitt hverjum og í umtali um Það eins og fleiri
meiri og minni háttar mál, einkennist
umræðan býsna mikið af sjálfsögöum yfirlýs-
ingum, frösum og gjálfri. Ekkert verður að
vísu sagt sem ekki hefur áöur verið sagt og
út af fyrir sig býður hvorki skattskrá né
stjórnarmyndun upp á aö hið endanlega
vísdómsorð sé mælt af munni.
Og meðan við bíöum eftir skattskránni og
Því misjafna réttlæti sem hún mun útdeila, er
fróðlegt að velta fyrir sér hver skyldu nú vera
verkefni Þeírrar opinberu stofnunar sem heitir
Skattstofa. Meöan tölva spáir og reiknar eftir
kúnstarinnar reglum hvaö skyldu menn Þá
hafast Þar að.
Sumir eru í Því að skrifa bréf. Til að fá
skýringar á torkennilegum atriðum í framtali.
Slíkt bréf fékk ég Þegar dag var vel tekið aö
lengja. Þaö var nógu forvitnilegt aflestrar.
En áður en að Því er vikið skal auðvitað
tekið fram að undirrituö er einstætt foreldri
með tvö börn undir sextán ára plús eitt
afkvæmi í menntaskóla, á framfæri. Sá tími
er liðínn að minnsta kosti að sinni að
viðkomandi fjölskylda lepji dauðann úr skel:
heimilisfólk hefur vel efni á Því að veita sér
að fara í bíó stöku sinnum, kaupa sér bók eða
flík. Þetta hefur kannski kostað vinnu og álag
sem skattstofan hefur ekki metið til mikils, en
ætti að líggja í augum uppi. Að vera eini
framfærandi heimilis á pessum síðustu
tímum, pegar öllum ber saman um að konur
leiti ekki aðeins út á vinnumarkaðinn að
gamni sínu eða til að nota menntun sína,
heldur beinlínis séu Þær neyddar til að
aðstoða viö aö framfleyta heimilinu.
Eínstætt foreldri á ekkert val. Það er lóðið.
Þeir vinna utan heimilis ekki síður, hvort sem
Þá langar til eöa ekki. Álagið er margfalt,
heimilisreksturinn um margt dýrari. Skatta-
lögin leyfa einstæðum foreldrum að fá
smáafslátt en hann hrekkur nú fjarska
skammt.
Alténd látum við svo vera. Undirritaö
foreldri hefur sætt sig við Þetta og unniö af
sannri ánægju að minnsta kosti oftast nær.
Það hefur einhvern veginn æxlast Þannig að
ekki hefur náözt að safna nógu hressilegum
skuldum til að Það geti orðið verulegur
frádráttarliöur, Því aö stööugt er verið aö
keppa við aö standa í skilum. Því er komiö
svo að viðkomandi Þegn er orðinn einn af
máttarstólpunum — að minnsta kosti miðað
við ýmsa Þá merku athafnamenn sem kunna
betur á skattalögin. Og Það hefur meira að
segja að mestu verið reynt að standa líka í
skilum meö opinber gjöld, Þótt Þar hafi nú
áreiðanlega ekki verið fullkomið réttlæti og
jafnfræði. En manni getur nú sárnað. Þegar
kemur svona eitt af bréfunum frá Skattstof-
unni. Til aö segja manni frá Því aö hinir
aðskiljanlegu liðir í frádrætti á framtali séu
ekki teknir til greina. Vegna Þess sérstæða
smásmyglishugsunargangs sem skín út úr
Þeim atriðum skal Það nú rakið Þótt fáranlegt
og lítið sé:
Dráttarvexti af vangreiddum opinberum
gjöldum um sl. áramót sem urðu Þrír tugir
Þúsunda voru taldir til frádráttar eins og lög
gera ráð fyrir. Skriffinnur skattstofunnar
véfengdi Þetta og krafðist sannana. Ekki hefði
hann Þurft annað en veifa hendi við kollega
sína handan götunnar til aö fá Þetta staðfest.
í öðru lagi er auðvitað ekki tekinn til greina
sumardvalarkostnaður fyrir yngsta barniö.
Það er heldur ekki skylt lögum samkvæmt. En
maður getur nú vonað. Látum Þó svo vera.
Þriðji liöurinn og sá málflutningur sem Þar var
uppi hafður gerði útslagiö á gríniö:
Blaðamenn mega telja til frádráttar bóka-
og blaðakaup. Ég hafði meira aö segja haldiö
saman nótum og sent meö. En fulltrúinn sagöi
að Það kæmi ekki fram á nótunum að petta
efni hefði veriö keypt í Þágu starfsins! Mér er
nú spurn hvernig eigi að búa Þessi gögn í
hendur svona embættismanna svo að Þeir
trúi. Og ætli Þeir séu svona gagnrýnir á
hvaðeina. Ekki hefur manni nú sýnzt Það á
skattskránni, en kannski er Þetta fyrirboði um
nýja nákvæmnistíma.
Jóhanna Kristjónsdóttir.
Krossgáta
Lesbókar
Morgunblaðsins
Lausn
á síðustu krossgátu
r í7KU r\nv ua IHL jpg^ ■ // >iií> Ad ; '..í; ■ ! HB99 I
1 ■ e T iL K A R l T A R i If s
\m É K H 'o M u N ’A N A g<st" „iK 0 K
r 1 -í "i fii** T A £> A M rrrr f K »■ ífL 1« L U, N b A
.v.l> F 'b L L e 1 T U R T tn h lj A '1' T
vc; u /V A A L V N T Asxur. S'fíFiR N j 'o A i»ex A R F 1
u F A <KufUt JH p. Á- $ K A WtiV á. B R ■ o fienoj INC.1t
■ r A T A ? E R A M Llíi P yi Fucl fiVK O R N
i> A N 47 J y sJlJLL fifti.it s L A A A // 7 Ö
■ E i & u R R A llXKf* f/A lí>A D R 'o 4 'Kjtti litJ5 T T
5 1 A *** X*B* I N M A M T F E R J A
N 0 i u 5 L 1 JtftTri TXTúT T A a L I ÖL* L N Du ÍU' 1 K iT T K-J- e ik 0.9-
S T E L L A fflKO R 'f í F A á. U H |R
Mo'sT- uó s l A L U R S'C. • ht)iK A T T 1 R N '1 A
9* A R. r A ■ I T R A T T *r- © A J K
é ú jglgJj s4 L-’iTIL
KVeiJ' íffí tfM
l LT- onfí yf/2- HófM AJO 5 'J U- L
£ ULUTI fC
KV- KÐIV KucfJ- PVK
1 ^ V D>ííT\
íc'ftriÐ
Te UÍL ÍKbLq- AílUfj
Du(aH- f-WíiR ÍKAW KAíSi FLfíU £ND- IN/k, \Jc?T- AF
fÉLhClL ■ ► Kfl F « PP A
U.Mfí\ / UR5 7 LA HíWP EKK' wtlí.- / M N
VTOTA- l 5 T uf/P- HtopujS
fit-i IV ■fóí' H c-T {’ÉVKW' fvw u Húí- Lbtf- A R.
(xt ft£) TftNT KÍKT 0« £>' fiPK'K'- aRCsKit 5TB RF Hll
lA. (3. - tcofnfl LÁT
r ÍM- HÆí>
Full / hJ
3^slN \J <■£> )uímhí\ Ktviei PlMM- SfrtfoR.
'fvélF VCon-
4> -> —
+ s v<rv _