Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1978, Blaðsíða 4
forseti Rúmenlu og römverji í slavahjörðinni
Margir eru Þeirrar skoðunar að í
Rúmeníu ríki meira frelsi en í öörum
kommúnistaríkjum og Þar gæti vest-
rænna áhrifa í auknum mæli. Þetta er á
misskilningi byggt. Rúmenía er lítið land
og bað sem greinir Það frá öörum
löndum í Varsjárbandalaginu er aö
forsetinn, Nickolai Ceausescu, borir að
taka sjálfstæöar ákvaröanir í utanríkis-
málum. Þeirri stefnu hefur hann haldið
undanfarin 10 ár og Þykir hún athyglis-
veröur Þáttur í sögu Evrópuríkja eftir
síðari heimsstyrjöldina.
Stutt skoöunarferð um miðborgina í
Búkarest varpar nokkru Ijósi á forsendur
þessarar stefnu forsetans.
Sé staöið við anddyri §ins stærsta
hótelsins í hjarta borgarinnar, Athenée-
Palace, blasir við á hægri hönd konungs-
höllin sem Karol konungur lét reisa fyrir
40 árum. í konungshöllinni er nú aðsetur
forsetaembættisins en Ceausescu býr
sjálfur í skemmtilegu úthverfi borgarinnar
og hefur valið sér vinnustaö í höfuðstööv-
um kommúnistaflokksins. Þær eru í stórri
byggingu andspænis konungshöllinni en
gríðarmikið torg á milli. Torgið var
skipulagt að ráði Karols konungs og gert
með tilliti' til þess að hersveitir hefðu
nægilegt svigrúm til að hefja skothríð á
mannfjölda við höllina ef þess gerðist
þörf.
í ágúst safnaðist mikill manngrúi á þetta
torg til að hlusta á Ceausescu og fagna
ræðu hans, þegar hann fordæmdi innrás
Rússa í Tékkóslóvakíu og lýsti því yfir að
Rúmenar mundu snúast hart gegn öllu
slíku hernaðarofbeldi.
Aöalgatan Calea Viktoriei liggur í
norður af torginu í bugðum og beygjum.
Húsin viö hana eru ýmist byggð á
millistríösárunum eöa í frönskum alda-
mótastíl. Á vinstri hönd er veitjngahúsiö
Caspa, sem lengi var taliö eitt bezta
veitingahús á Balkanskaga og lifir enn viö
góðan orðstír. Fastagestir þar eru
glæsikonur, liösforingjar í hernum og
fótboltaþjálfarar svo nokkuð sé nefnt.
Innan dyra sem utan gætir rómanskra
áhrifa og augljósa skýringu er aö finna í
þjóöminjasafninu sem er skammt frá við
sömu götu. Þar er aðalsýningargripurinn
nákvæm eftirlíking af hárri súlu, —
sigurmerki Trajans keisara Rómaveldis,
sem reist var eftir sigur hans yfir
Dacíumönnum.
Þessi súla er Rúmenum tákn latverskrar
arfðleifðar sem aðgreinir þá frá hinum
slavnesku þjóðunum allt um kring, og
leggja þeir mikla áherzlu á þetta upphaf
sitt. Bifreiðar sem framleiddar eru í
Rúmeníu á vegum Renault-verksmiðjanna
frönsku kalla þeir Dacía og sömuleiöis
vetrarhveitið sem ræktað er í héruðunum
umhverfis Scornicesti-þorpið. Þangað er
tveggja stunda akstur frá Búkarest og þar
fæddist Ceausescu fyrir 60 árum.
Hann var fjórða barn fátækra foreldra
af bændafólki. Ellefu ára gamall varö han
að fara að heiman til að vinna fyrir sér í
skóverksmiðju í Búkarest. Fimm árum
síðar gekk hann í ungkommúnistasamtök-
in og í rúmenska kommúnistaflokkinn.
Tveim árum síöar var hann settur í
fangelsi fyrir ólöglega pólitíska starfsemi.
Á myndum með lögregluskýrslum má
sjá ungan vörpulegan mann með dálítið
útstæð eyru. í vinsamlegum blaðaummæl-
um frá réttarhöldunum er sagt að hann sé
„lágvaxinn, grannur — með leiftrandi blik
í augum. Hann er hraömæltur eins og
hann vilji koma öllu að á sem stytztum
tíma.“ í dag viröist Ceausescu eiga lítt
sameignlegt með þessum unga manni.
Hann lifir hófsömu lífi, reykir hvorki né
neytir áfengis og lætur sér fátt um finnast
um lífsins lystisemdir. „Ég hef verið
kommúnisti frá 16 ára aldri en Rúmeni frá
fæðingu,“ er haft eftir honum. Þetta
tvennt hefur sett sinn svip á allan hans
feril.
í Scornicesti er sagt að á skólaárunum
hafi hann haft mestan áhuga á sögu en
einnig mikið yndi af Ijóöum. Enn gerir
hann sér þaö til gamans að fara með löng
og eldheit ættjarðarljóð.
Þjóðhollusta er eitt aðaleinkenni
Rúmena og hefur verið um aldir. Hins
vegar er hollusta við kommúnisma ekki
sérstakt þjóöareinkenni.
' Við lok síðari heimsstyrjaldarinnar voru
rúmenskir kommúnistar vart yfir 1000
talsins. Margir fyrri leiðtogar rúmenskra
kommúnista voru ungverskir, búlgarskir
eða rússneskir — varla nokkur af
rúmensku bergi brotinn. Ráðamenn í
Moskvu komu rúmenska kommúnista-
flokknum til valda 1945 og Moskvu-menn
höfðu síðan tögl og hagldir í rúmenskum
stjórnmálum fyrir milligöngu hinnar al-
ræmdu Önnu Pauker og félaga hennar
næstu ár. Hún hafði dvaliö í Sovétríkjun-
um á stríðsárunum og var trúr fylgjandi
Stalins.
Ceausescu var hins vegar í Rúmeníu öll
stríðsárin lengst af sem pólitískur fangi. í
fangelsinu í Tirgu-Jiu kynntist hann
Georgiu Dei. Hann var járnbrautarverka-
maður og einn fyrsti sanni rúmenski
kommúnistinn. Dei varð flokksforingi
kommúnista þegar hann slapp úr fangels-
inu í stríðslok. Síöar varð hann einn þeirra
sem steypti Önnu Pauker og félögum
hennar af stóli skömmu eftir 1950. Hann
lagði grundvöllinn að sjálfstæðari komm-
únistaflokki í Rúmeníu, þegar ráðamenn 1
Moskvu hugðust laga efnahagsstefnu
Rúmena að geðþótta sínum. Þá haföi Dei
tekist að fá Rússa til að flytja her sinn á
brott úr Rúmeníu og hann hefur ekki átt
þangaö afturkvæmt.
Dei andaðist 1965 og þá var Ceausescu
sjálfkjörinn arftaki hans í foringjastöðuna.
Síðan hann tók við embætti forseta fyrir
4 árum hafa öll völd í Rúmeníu verið í hans
hendi. Hann tekur allar meiriháttar
ákvarðanir varðandi stjórn landsins — og
margar þeirra minniháttar líka.
Stefna hans er augljós og einföld ef
skýra skal hana meö oröum, en því
erfiðari í framkvæmd. Hann vill koma
landinu í tölu hátæknivæddra þjóða. En
þar lifir enn helmingur landsmanna við
fábrotin landbúnaðarstörf. Mikil þörf er
því á aukinni fjárveitingu til iðnaðar — að
einkaneyzlu sé haldiö í skefjum og að
stjórnin sé öflug. Til þess hefur hún sér
við hlið sívökula öryggissveit Securitate,
og beitir henni þegar þörf krefur.
Ceausescu gerir sér mikið far um að
kynna stefnu og frægja veg Rúmena
meðal annarra þjóða. Bæði til að koma
á framfæri þeirri skoðun sinni að minni
þjóðir eigi ekki að gerast leppríki
stórvelda (þessi boöskapur kom fram í
ræðum sem hann hélt á ferð í Vietnam og
í Cambodíu í vor. Cambodíumönnum féll
hann betur í geö en Vietnömum). En
boðskapurinn er líka sterkasta vörn hans
gegn Sovétríkjunum.
Rúmenar hafa komið sér upp öflugu
landvarnarliöi og herskylda nær til allra
landsmanna frá 16—60 ára aldurs. Komið
hefur verið upp skriðdrekagildrum við
þjóðveginn um öll helztu fjallaskörð. Þó
mundu Rúmenar ekki bera sigurorð ef til
styrjaldar kæmi. Sú staðreynd er kveikjan
í utanríkisstefnu Ceausescu.
Ceausescu er einingartákn rúmensku
þjóðarinnar og hann nýtur óskoraðs fylgis
hennar. Rúmenum eru eðlislægar öfga-
kenndar skoðanir og hefur löngum verið
svo. En þeim er líka Ijóst aö þjóðareining
er þeim brýn nauðsyn.
Elena heitir eiginkona Ceausescu.
Henni kynntist hann áriö 1939. Hún vann
þá í vefnaðarverksmiðju í Búkarest og var
virkur meðlimur í kommúnistaflokknum.
Þau gengu í hjónaband eftir heims-
styrjöldina og nú á hún sæti í æðstu stjórn
kommúnistaflokksins og er mjög áhrifa-
mikil. Sagt er að hún eigi hönd í bagga
með ýmsum mikilvægum ákvörðunum
sem teknar eru í flokknum. Rúmenum
finnst stundum nóg um áhrifavald hennar
en í öðrum Austur-Evrópulöndum er það
talið hneyksli... Skyldmenni hjónanna
beggja skipa valdamiklar stöður innan
stjórnarinnar, m.a. einn sona þeirra.
í vor heimsótti Ceausescu Kína og var
hylltur af formanni kínverskra kommún-
ista Hua-Kuo-Feng í þjóöarhöllinni í
Peking. Síðan var ferðinni heitið til
Bretlands þar sem Bretadrottning hugðist
taka honum með pomp og pragt. Segja
má því aö þessum bóndasyni og forystu-
manni smáþjóöar sé hampað á ýmsum
vettvangi.
En hvaöa gagn má þjóðinni verða að
þessu ágæta atlæti við forsetann? Kæmi
þeim ekki betur meiri lífsþægindi og
slökun á stífum stjórnartaumum valda-
manna, eins og gangurinn virðist vera í
Póllandi og Ungverjalandi?
Ef til vill átti Ceausescu eKki um neitt
slíkt að velja. Fööurlandsástin stendur
djúpum og traustum rótum í hugum
menntamanna í Rúmeníu. Kommúnista-
flokkurinn þar, sem átti í litlum mæli
upphaf sitt í rúmönsku þjóðarsálinni, varð
að taka mið af þeirri staðreynd. Söguleg
þróun í Rúmeníu hefur löngum stefnt til
sjálfsákvörðunar í þjóðmálum og gerir
enn, en frelsishugsjón vestrænna þjóða á
þar hins vegar ekki upp á pallborðið.
Ceausescu siglir í dag þann beitivind.
Þessi mynd birtist í Morgunblaðinu 13. október 1970 og er hún frá heimsókn Ceausescu
Rúmeníuforseta til íslands. A myndinni, sem tekin er á tröppum Bessastaða, eru eins
og sjá má íslenzku forsetahjónin, frú Ceausescu og utanríkisráðherra Rúmeníu.