Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1981, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1981, Blaðsíða 4
Eftir ár á þessum staö, fannst mér að hollt væri aó skipta um samfélag. Ég sá, aö þetta líferni var langt í frá að vera heilbrigt og aö þetta gæti ekki gengiö til lengdar. Svo ég sagði upp eftir að hafa fengið atvinnu hjá hótelhringnum Holiday Inn — einnig við rúllettur. Nú var það mitt fag og auk þess greitt hærra kaup fyrir þá vinnu. Þessi næsti áfangi var í Swazilandi, sem er dvergríki, svo til inni í Suöur-Afríku, en liggur líka að Mosambique. Þar býr sambland af Zulu-negrum og Búsk- mönnum og tala Zulumál, en margir tala ensku. Þetta er sjálfstætt ríki og fallegt land og ríkt af náttúrugæðum. Þar er hvítt fólk einnig og á Holiday Inn voru bæði hvítir og svartir gestir. Viðskiptavinir spilavítisins voru að minnsta kosti eins margir svartir eins og hvítir, en þeir áttu oft frekar litla peninga og áttu til að vera meö uppsteit og skapa spennu og óþægindi. En þeir hvítu voru oft lítiö betri, enda kynnist maður gjarnan verstu hliðum fólks í sambandi viö peninga. Þá koma leiðinlegustu hliðar mannskepn- unnar í Ijós. Stundum sauö uppúr, ef illa gekk og menn héldu áfram að tapa, kannski aleigunni. Til dæmis höfðu taugar eins hinna hvítu þanizt svo, að hann sagöi viö mig: „Ef ekki kemur upp rautt núna, þá lem ég þig.“ Hann iét samt nægja aö bölva, þegar spilagæfan hélt áfram að snúa við honum bakinu og fyrir þessa hótun var hann settur á svartan lista og fær þá ekki að koma inn í spilavítið. Eigi konur peninga, eru þær jafnvel ennþá æstari í spil og síður en svo auöveldara að eiga við þær. Dvölin í Swazilandi varð 18 mánuöir og allan þann tíma hafði ég engan fastan bústað. Framboö á húsnæði er mjög lítið og ég varð aö leysa málið með því aö búa annað veifið á hótelinu, en víkja, þegar það fylltist. Stundum bjó ég í húsvagni og jafnvel í moldarkofa, þar sem hænsni gengu út og inn. Hitinn er nógur, en í Swazilandi rignir svo til alltaf á nóttunni með þrumum og eldingum og eitthvert þak yfir höfuöið verður maður að hafa. Lífsstíllinn hjá starfsfólkinu var eins og ég hafði áður kynnzt; raunar haföi ég fariö úr öskunni í eldinn. Fyrst og fremst var alltof mikil drykkja. En mikill léttir var að vera laus við skothríöina og stööugan ótta við að vera sprengdur í loft upp. í þessu starfi kemur fólk og fer, en ílendist ekki. Eftir ársdvöl á Holiday Inn í Swazilandi fór smávegis heimþrá aö gera vart við sig, en allan jaennan tíma hitti ég aldrei einn einasta Islending. Þegar ég yfirgaf Rhodesíu, mátti ég aðeins taka með mér takmarkað af peningum, svo ég fjárfesti í flugfarmiða til íslands — og til baka. Og til íslands fór ég; þaö var í febrúarmánuði 1977, bjartviðri og vægt frost á Fróni. Ég stanzaði þó aöeins í þrjá mánuði og ég held að ég hafi varla fyrr veriö lent en mig fór að langa aftur til Afríku. Mér fannst allt svo grátt og kalt. Afríka kemst í blóðið. Það er sagt að enginn veröi sami maður eftir dvöl þar. Hvað það er? Kannski er það andrúmsloft- ið, gróðurinn og jafnvel dýrin. Og á kvöldin heyrir maður trumbuslátt í myrkrinu. Þaö er mjög seiömagnað. Ég hélt aftur utan til Swazilands vorið 77 og tók upp þráöinn í sþilavítinu á Holiday Inn. En eftir hálft ár til viðbótar fór ég framá að vera flutt. Það var samþykkt — ég var þá komin meö fjögur „game“ eins og það er kallað: Gat stjórnað rúllettu, Black Jack eða „21", en þar að auki Bakkara og Chemin de Fer. í þetta sinn var ég flutt til Lesotho, sem er annað sjálfstætt dvergríki, algerlega innan Suður-Afríku. Þar búa Besútar og eru ekki beint í áliti hjá öörum negrum. Þeir eru hiröingjar. En þótt fátækir séu, reyna þeir aö spila, eða réttara sagt: Þeir eru spilasjúkir, en þar að auki sagöir bæði þjófóttir og lygnir. Sem sagt; ágætis fólk, allt það fólk og hefur ýmsa framandlega siöi eins og gengur. Fyrir brúökaup verður tilvonandi tengdasonur aö ganga til rekkju með tengdamömmu og hún prófar karl- mennsku hans. Konur eru nokkurs virði þarna, því menn selja dætur sínar í 4 dvalizt í Suöur-Afríku. Úr því varö heilmikið þras í skrifstofubákninu, því passinn minn týndist. Því var borið viö, að þeir hefðu haldiö mig Eskimóa og þarmeö óæskilegan kynþátt, en ég var bara hortug og skammaöi þá fyrir fávísina og sagði að þeir ættu að sjá, aö ég svona Ijóshærð væri eins hreinn Aríi og Hitler hefði frekast getaö kosið sér og af miklu göfugri kynstofni en þeir sjálfir. Meiningin með þessu streði var að komast á einkaritaraskóla í Jóhannesar- borg — og það hafðist. Og á meðan bjó ég þar í borginni. í skólanum var kennd hraðritun, sem telst nú til fornleifa á tölvuöldinni, enda lagði ég enga áherzlu á hana og féll reyndar í henni. En ég lauk prófi í Public Relations, hvað sem það heitir nú á íslenzku, en einnig í ensku, framkomu, ferðaskrifstofuvinnu, bókhaldi og jafnvel í blómaskreytingum. En ég var orðin svo blönk, að ég átti ekki fyrir prófgjaldi í síöasta prófinu, sem var í að skrifa eftir segulbandi og varð því að sleppa því. Og nú lá leiöin heim á leiö og til þess að það væri fjárhagslega kleift, varö ég að ráöa mig í vinnu á ítalíu og fékk þá greitt flugiö þangað. ítalíudvölin varð alls 8 mánuöir; þar tóku við annarskonar ævin- týri og furðuleg lífsreynsla, sem ég hiröi ekki að greina frá hér. En þar kom að ég gafst upp á ævintýrum og hélt heim til íslands í ágústbyrjun 1979. Ég hitti þá fljótlega æskuvin minn og í nóvember sama ár var ég gift. Við eigum nú fjögurra mánaöa son, sem heitir Egill Anton og eins og stendur er ég bundin yfir honum. Eftir heimkomuna fékk ég vinnu hjá borginni og síðar einkaritarastöðu hjá Gunnlaugi Jósepssyni, en nú sem stendur er ég atvinnulaus. Nú er ég það sem kallað er Bara Húsmóðir og að sjálfsögðu er það æði frábrugðiö vistinni í sölum sþilavítanna. Ég er samt fegin því aö hafa fast land undir fótum og umfram allt að hafa nú fyrir öðrum að sjá en sjálfri mér einni. En Afríka — hún lúrir í leyni meö sinn galdur, með sinn töfraseiö, sem enginn kemst undan. Og þær stundir koma, að þessi seiður nær til mín, svo löngunin vaknar. En hvað verður — það veit enginn." Fjöll og grasi vafið land. Þannig lítur Lesotho út. En vegir eru engir til þar. Ragna með minjagrip frá Afríkudvölinni: Spilið Backgammon, sem er mjög vinsælt i Afríkulöndum og mikið notað í matartimum hjá fyrirtækjum. hjónaband. Gjald fyrir konu heitir Púla, sem þýöir regn; þetta gjald er annars gripir eöa peningar. Höfuðstaðurinn heitir Maseru og er bara þorp meö moldarkofum, nokkrum sæmi- legum húsum — og svo er þar hóteliö Holiday Inn. Feröamenn koma þangaö til að fara í fjallaferöir og á silungsveiðar. Og svo koma þeir í kasínóiö og leggja undir. Ástandið á liðinu í kringum rúllettuna var í stórum dráttum svipaö og á þeim stööum, sem ég hafði áöur kynnst. Þó var lifað ögn heilbrigðara lífi, farið út í náttúruna og til þesskonar ferða keyptum við saman stór- an jeppa. Vegir eru engir, bara rykugir troöningar. Ég var í Maseru á annað ár. En þá var það runnið uþþ fyrir mér fyrir alvöru, að svona gat maöur ekki farið með líf sitt. Svo ég geröi kapítulaskipti og hélt til Jóhannes- arborgar í Suður-Afríku. En það var ægilegt mál aö fá áritun til þess aö geta

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.