Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1981, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1981, Qupperneq 5
mikla þýðing þýðinga Norræn samvinna er alltaf á dagskrá á íslandi. Stórveldastefnumenn á heimsvísu komast ekki hjá því aö eiga í illindum viö þá sem vilja eiga sem nánust viöskipti viö frændur okkar á Noröurlöndum. Inn í þetta fléttast afstaöa manna til Austursins og Vest- ursins. Viö íslendingar höfum staöiö í stórræöum viö Breta og háö viö þá tvær Golíatstyrjaldir á hafinu, bítum í skjaldarrendur og steytum okkar póli- tísku hnefa gegn heimsvaldastefnu Rússa meö bandarísku helsprengjuna aö hlífiskildi. Nú eru í sviðsljósi forseti vor og danadrottning, bókmenntaverölaun og samnorrænn sjónvarpshnöttur. A hnattaráöstefnunni eru menn nokkuö hikandi þessa stundina. Ekki er sá er þetta ritar maöur til aö taka glögga afstööu. Þegar Norösatmáliö var fyrst rætt á vegum rithöfunda hér, kom strax fram ákveöin andstaöa gegn því, vegna ótta viö ómenningaráhrif í stærri stíl en áöur þekktist. Ég tók raunar ekki þátt í þeirri andstööu. Mér fannst í fljótu bragði, aö ekki myndi þýöa aö spyrna fótum viö þessari þróun og samnorræn sjónvarpsstefna hlyti aö vera betri leið en alþjóölegt menning- ar- eöa ómenningarstríð, sem yfir myndi dynja hvaö sem hver segði. Ætli það hugboð muni ekki reynast rétt? En þetta eru efni, sem best er aö láta afskiptalaus í bili. Okkur íslendingum er þaö nokkurt metnaðarmál að eftir okkur sé tekiö á þeim sviöum, sem viö megum okkur nokkurs, þar sem viö þykjumst vera menn meö mönnum; í menningu og listum. Þar erum viö og höfum lerrgi veriö skolli sprækir. Þaö er eins og aö í þeim efnum skipti mannfjöldi ekki höfuömáli. Enda er þaö skiljanlegt, ef vel er aö gáö. Menning og list er sérstök heimseign, sem allir, er þegar hafa séð fyrir frumþörfum tilvistar, skjóls og matar, geta ausið af. Þaö er bara eitt, sem okkur vantar í þessa veröld okkar, áöur en hún springur; meiri samræmingu í trúarbrögðum. Þá held ég aö okkur væri borgið. En æ. Ég fer alltaf aö tala um eitthvað annaö en ég ætlaði mér. Þaö má auövitaö telja vel af sér vikiö af okkur íslendingum aö hafa á hálfri öld hlotið ein Nóbelsverðlaun og tvisv- ar sinnum bókmenntaverölaun Norö- urlandaráös, ennfremur tónskálda- verölaunin einu sinni. Nú og svo getum viö byrjaö aö vonast eftir frekari viöurkenningu á komandi árum. En fæst þessi heiöur fyrirhafnarlaust? Nei, svo sannarlega ekki. Höfum viö haldiö vel á okkar málum? Getum viö ekki eitthvað lært af reynslunni? Þess er þá fyrst aö geta, sem öllum ætti í rauninni aö vera Ijóst, aö aðstaða hinna norrænu þjóða til aö kynna verk sín, er mjög mismunandi. íslendingar, Færeyingar og finnskumælandi Finnar veröa aö láta þýða bækur sínar á Sigurður Skúlason magister Nokkur aðskota- orð í íslensku eitthvert aöalmálanna, og auk þess eru flestir höfundar þessara minnihluta- málsvæöa nær óþekktir, ekki aðeins í hópi verölaunanefndarmannanna, heldur líka hjá meginþorra væntan- legra lesenda bóka þeirra á hinum Noröurlöndunum. Nú eru liöin tuttugu ár frá stofnun verölaunanna. Á þessu tímabili hefur lítiö sem ekkert verið gert til þess aö ala upp og sérmennta þýðendur fagur- bókmennta á og af þessum þjóötung- um innbyrðis. Sú stefna var upptekin fyrir áratugum, aö hvetja bókmennta- unnendur til þess aö lesa bækur hvor annars á frumtungunum. Og í hátíða- ræöum heyrast þessar raddir enn. En reynslan sýnir, aö þessi hvatningarorð eru aö mestu leyti töluö fyrir daufum eyrum. Hjá hverri þessara þjóða er gefiö út meira og meira af bókum og allskonar fjölmiölagreinum fjölgar, en tími hvers einstaklings til aö sinna andlegum hugöarefnum veröur æ styttri með hverju ári sem líöur, tungur þjóðanna og túlkunarmáti þeirra verö- ur líka æ sundurleitari. Menn komast ekki yfir þaö nauösynlegasta og áhugaverðasta úr bókmenntum sinnar eigin þjóöar. Þessvegna minnka stöö- ugt líkurnar á því aö menn leggi á sig aukaerfiöi viö bókalestur. Ef þaö er gert þá er það fremur til þess aö lesa bókmenntir heimsþjóðanna. Ljóöagerð hefur og sérstööu í þessu efni. Þar þarf lesandi aö hafa sérstakt málskyn, sem hlýtur aö truflast viö lestur tungumáls, sem er líkt því sem maöur á aö venjast. Þaö sem er stórsnjallt á frummáli getur hljómaö sem argasta smekkleysa í eyrum útlendings sem vanur er að njóta skáldskapar á sinni eigin tungu. Þess- vegna tel ég aö nauðsynlegast af öllu sem gera þarf, sé einmitt að þýða bestu Ijóðabækur hvers árs yfir á granntungurnar og skapa meö þeim hætti samnorrænan bókamarkað. Þegar svo hefur veriö gert kemur þaö af sjálfu sér aö lausamálshöfundarnir fylgja á eftir. En þá er ég kominn aö því sem vera átti aðalefni þessa pistils. Hvernig á aö koma upp á nokkrum árum, viö skulum gefa okkur átta til tíu ár, stækkandi hópi hæfra þýðara? Fyrst er aö gera sér Ijósa þörfina og viöurkenna hana, síðan aö móta skynsamlega stefnu. íslendingar þurfa aö athuga hvaö hægt er aö gera fyrir þann litla hóp erlendra áhuga- og menntamanna, sem nú er til, sýna þeim einhvern þakklætis- og viröingarvott fyrir þaö sem þeir hafa gert og létta þeim róöurinn í framtíð- inni. Nú er þetta allt skipulagslaust og vanþakkaö. Ég ætla nú að nefna nokkur nöfn þýðenda, sem viö íslendingar eru í sérstakri þakklætisskuld viö. Því miöur verö ég aö gera þaö nokkuö af handahófi og miöa viö síöustu áratugi. Danmörk: Erik Sönderholm. Poul P.M. Pedersen, Þorsteinn Stefánson. Noregur: Ivar Orgland, Ivar Eskeland, Knut Ödegárd, Ásbjörn Hildremyr. Svíþjóö: Peter Hallberg, Ariane Wahl- gren, Ingegerd Fries, Inge Knutsson. Finnland: Maj Lis Holmberg, hún þýöir úr íslensku, bæöi á finnsku og sænsku. Sumir þessara þýðenda hafa þýtt á annan tug bóka. - Hvaö gerum viö til að létta þessu áhugasama fólki störfin? Meö hverju sýnum viö, aö viö kunnum aö meta þaö sem gert hefur verið? Fá þeir frá okkur bókasendingar og heimboð? Eöa ríkir hin opinbera ískalda íslenska þögn? Máliö er ekki útrætt. Jón úr Vör. FABULA, (FABULA), uppspunnin saga, lygasaga, dæmisaga (OM). Oröiö er komiö af fabula, frásögn, í lat. Þ. Fabel, d. fabel, e. fable, Oröiö fabúla finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1637 (OH). FABRIKKA, verksmiöja. Oröiö er komiö af fabrica í lat. og merkir þar: iönaöarstarf og vinnustofa. Fr. fabrique, þ. Fabrik, d. fabrik. Enska oröiö fabric merkir oftast: vefnaður, en einnig bygg- ing, grind, kerfi. Finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1836 (OH). FAGOTT, blásturshljóöfæri meö bassatón (OM). Oröið er komiö af fagotto í ítölsku. Þ. Fagott, d. fagot. Finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1941 (OH). FAKÍR, (indverskur) meinlætamaöur. Oröiö er komiö af faqir í arabisku og merkir þar: fátækur. Þ. Fakir, d. og e. fakir. Finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1894 (OH). FAKTOR, verslunarstjóri (viö dönsku selstöðuverslanirnar) (OM). Oröiö er komiö af factor í lat., sá sem framkvæm- ir (af so. facere, starfa). Þ. Faktor, d. faktor, e. factor. Finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1669 (OH). FAKTÚRA, farmreikningur sem send- ur er kaupanda samtímis vörunni (OM). Orðiö er komiö af factura í lat. er merkir: tilbúningur (af so. facere, gjöra). ít. fattura, þ. Faktur(a), d. faktura, e. facture. Oröið finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1873 (OH). FALLERA, gata (á prófi); mm fallerast (um stúlku) láta vélast, eignast barn í lausaleik (OM). Oröið er komiö af þ. fallieren, d. fallere og merkir í þessum málum m.a.: veröa gjaldþrota. Finnst í ísl. fornmáli í merkingunni: viöhafa svik eöa fals (Fr.). Finnst næst í ritmáli frá 17. öld (OH). FALLÍTT, gjaldþrota. Oröiö er komiö af lo. fallito í ítölsku sem var upphaflega Ih. þt. af so. fallire, verða gjaldþrota. Þ. fallit, d. fallit. Orömyndin fallít finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1826 (OH). FALSETTA, höfuötónn (gagnstætt brjósttónn). Þetta tónlistarorð er ættaö úr ítölsku þar sem þaö heitir falsetto og er smækkunarmynd af falso, en þaö orö er komið af falsus, falskur, í lat. Þ. Falsett, d. falset, e. falsetto. Finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1946 (OH). FAMILÍA, fjölskylda. Orðið er komiö af familia í lat., en þaö er leitt af famulus, þjónn, og merkir m.a.: fjölskylda, en hefur auk þess ýmsar aörar merkingar. Þ. Familie, d. familie, e. family. Finnst í ísl. ritmáli frá byrjun 18. aldar (OH). FANTASÍA, ímyndunarafl, hugmynda- flug; ímyndun, draumórar; tónverk í frjálsu formi, oft með eldra lagi (lögum) sem uppistööu (OM). Oröiö er komið af fantasia í gr. og merkir þar: fyrirbrigöi. Þ. Phantasie, d. fantasi, e. fantasy. Finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1955 (OH). FARÍSEI, Gyöingur af sértrúarflokki á Krists dögum; farísei, maöur sem heldur sjálfan sig betri en aöra (OM). Orðiö er komiö af farisaios í gr., myndaö af hebreska oröinu parusch sem merkir eiginlega: einangraöur. Þ. Pharisáer, d. farisæer, e. pharisee. Finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1540 (OH). FASHANI, FASANI, fuglategund (phasianus colchicus) (OM). Oröiö er komið af fasianos í gr. og merkir þar: fugl frá ánni Fasis. Þ. Fasan, d. fasan, e. pheasant. Orðmyndirnar fashani og fas- ani finnast í ísl. ritmáli frá árinu 1962 (OH). FASI, þriggja fasa straumur, þrír riöstraumar, hver á eftir öörum (ekki í takt) (OM). Orðið er komiö af fasis í gr. og merkir þar: fyrirbrigöi. Fr. phase, e. phase og phasis, þ. Phase, d. fase. Finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1955 (OH). FÁNA, dýraríki (OM). Orðið er komiö af Fauna í lat. og merkir þar: gyöja dýraríkisins. Þ. Fauna, d. og e. fauna. Oröið finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1939 í samsetningunni skeldýrafána (OH). FERNIS, FERNISOLÍA, vökvi úr viöar- olíum notaöur til hlíföar og feguröar á við, undir olíumálningu á steinvegg (OM). Orðiö fernis er býsna langt að komið eða alla leiö sunnan úr Egypta- landi. Þaö var upphaflega dregiö af nafni borgarinnar Berenike, varö í miöaldalat- ínu aö veronix, í ít. aö vernice, í fr. aö vernis, í þ. aö Firnis og í d. aö fernis, en þaöan reyndist auðratað út hingaö. Af þessu oröi er myndaö so. fernísera (d. fernisere). Oröiö fernis finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1831 og fernisolía frá 1875 (OH). FÍGÚRA, skopleg, kjánaleg persóna (OM). Oröiö er komiö af figura í lat. og merkir þar: líkami, lögun, sniö o.fl. Þ. Figur, d. figur, e. figure. Oröiö finnst í ísl. fornmáli (Fr.) og frá árinu 1584 (OH). FIX, snotur o.fl. Þetta lo. er komiö af fixus í lat. og merkir þar: fastur. Þ. fix, d. fiks. Finnst í ísl. ritmáli frá fyrri hluta 17. aldar í merkingunni: fær eöa fimur í einhverju (OH). í nútímamerkingu finnst þaö á 20. öld (OH) og heyrist einnig býsna oft í talmáli. Af fix er myndaö so. fixa sem merkir: dubba, skreyta, lag- færa, snyrta (OM). Þ. fixen, d. fikse, Þetta so. ætti aö vera álíka gamalt í íslensku og fix í nútímamerkingu. FÍLAPENSILL, (graftar)nabbi, arta (í húö) (OM). Orðið er komiö af filipens í dönsku, en ekki er mér kunnugt um uppruna þess. Finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1946 (OH). FILMA, ræma til aö taka á myndir, myndalengja; kvikmynd (OM): Þetta orö er talið skylt ísl. orðinu fell sem merkir: húö. (Filma er einnig so. og merkir: taka kvikmynd). Þ. Film, d. og e. film. Oröiö finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1925 í merkingunni filma í Ijósmyndavél, en nokkru síöar í merkingunni kvikmynd (OH). FIÓL, fiöla (OM). Þetta aðskotaorö er ættaö úr latínu og heitir þar vitula. Þaö varö viola í ítölsku, viole í miölágþýsku og fiol í dönsku, en er þaöan komiö hingað; e. violin. Finnst í ísl. ritmáli frá því um miöja 17. öld (OH). FITTINGS, tengihlutar, tengsl í pípu- lögnum. E. og d. fittings. Finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1955 (OH). FLAMINGOI, flæmingi (OM). Þetta vaðfuglsheiti viröist vera komiö úr portú- gölsku þar sem þaö heitir flamingo. Á spænsku heitir fuglinn flamenco, en bæöi þessi rómönsku orö eru komin af flamma í lat, sem merkir: logi, eldur. E. og d. flamingo. Orömyndin flamingó finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1877 (OH). FLÖRT, daður. Orðiö mun vera ættaö úr ensku þar sem það er stafsett flirt, en boriö fram svipað því sem íslendingar rita þaö. í dönsku er það ritað eins og í ensku. Oröið finnst í ísl. ritmáli frá árinu 1946 (OH). 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.