Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1981, Síða 8
Karol Wojtyla — Jóhannes Páll II páfi — hefur ekki einskorðað sig innan þröngra veggja Vatikansins, en haft heiminn
undir svo að segja og bæði vakið meiri athygli og reynt áþreifanlegar að láta gott af sér leiða en nokkur annar páfi um
langan aldur. Uppruni hans er úr Karpatafjöllum, syðst í Póllandi, þar sem Góralar búa, harðsnúið bændafólk. Meðal þeirra
er Karol Wojtyla heima hjá sér og hann var ávallt karlmenni, hvort heldur var sem hermaður, íþróttamaður eða prestur.
Honum leiðast „ossingar og véringar“ og lætur helzt ekki aðra krjúpa fyrir sér.
Sæluríki sósíalismans er í Póllandi
byggt á úreltri 19. aldar hug-
myndafræði, sem styðst við hvers-
kyns ófrelsi. Fólkið er gott, en kjör
þess eru bág — í heimabyggð páfa
ekki síður en annarsstaðar. Nóg af
kringlum, gjörið þið svo vel, en
löng biðröð eftir kjöti og það
skammtað. Samt er landið gjöfult
og gott.
Páfi
úr Karpata-
Áreiðanlega hefðu hvorki faðirinn Karol
né móðirin Emilía Wojtyla, fædd Kaczor-
owska, kropið á kné fyrir verðandi páfa,
þegar þeim fæddist drengur 18. maí 1920.
Hann var grettinn og skorpinn og það
fyrsta sem hann sagði var „be-e-e!“ Þaö
verður dregið í efa, að Karol litli hefði valið
sér fæðingarstaö í Karpafafjöllum, ef hann
heföi mátt nokkru um það ráöa. Eða þá
fæðingarárið. Það voru neyðartímar í
Póllandi eftir fyrra heimsstríð. Faðir
drengsins varð liösforingi eftir að Pólland
fékk sjálfstæði 1918. En launin voru léleg,
svo aö fjölskyldan bjó við ærið þröngan
kost.
Hún átti heima í hrörlegu þorpi í grennd
við Kraká og bjó í tveggja herbergja íbúð.
Þarna ólst hinn verðandi páfi upp sín fyrstu
æviár. Móðir hans var mjög heilsuveil og
sjálfsagt hefur það snert drenginn óþægi-
lega. Hún unni drengnum heitt og kallaði
hann „Lolek". Ekki duldust henni góðir
hæfileikar hans og eitt sinn komst hún svo
aö orði við nágrannakonu sína: „Það megiö
þið reiöa ykkur á, að það verður einhvern-
tíma mikill maður úr honum Lolek litla.“
Karol Wojtyla var í grunnskóla og ekki
nema níu ára, þegar dauðinn barði að
dyrum á heimilinu; móðir hans dó úr
hjartabilun.
Eftir lát hennar ólst Karol einn uþþ hjá
Vanþróun, fátækt og hægfara breytingar setja svip sinn á lífið hjá þeim, sem Karol Wojtyla getur
með réttu talið sitt fólk. í Karpatafjöllum eru hús yfirleitt úr timbri, sem er nærtækt
byggingarefni og á bæjunum er smjörið strokkað með gamla laginu.
fjöllum
fööur sínum sem reyndist honum góður en
allstrangur faðir og ræddi margt viö
drenginn. Þó að hann væri strangur, alinn
upp við heraga, var hann góðlyndur og
menntaður maður og veitti Karol litla
leiðsögu í andlegum sem veraldlegum
efnum. Gáfur og námfýsi drengsins fóru
fljótt að segja til sín.
Drengurinn hafði frábæra tungumála-
gáfu; var bezti lærisveinn skólans í grísku
og latínu. Ágætiseinkunn hlaut hann ávallt
í þýzku, sögu, trúfræði og heimspeki. En
því fór fjarri að hann væri kennarasleikja
eða potaði sér áfram. Og hann var einkar
hjálplegur skólafélögum sínum. — Allir
sem höfðu náin kynni af Karol báru og bera
enn lof á hann: telja hann vel upp alinn,
alúðlegan, mjög vel menntaðan. Menn
segja aö hann hafi verið laus við hégóma-
girnd og frekar hlédrægur.
Karol tekur stúdentspróf 1938. Að
sjálfsögðu með ágætiseinkunn. Og nú
Jóhannes Páll II
í einni af mörgum heimsreisum sínum.
8